Félagshagfræðileg greining Sundabrautar er byggð á sandi Hans Guttormur Þormar skrifar 2. febrúar 2026 20:32 Í janúar 2022 var kynnt skýrsla félagshagfræðilegrar greiningar Sundabrautar unnin af Mannviti og Cowi að beiðni og með aðstoð frá starfshóp sem skipaður var starfsmönnum frá Vegagerðinni, Reykjavíkurborg, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóahöfnum. Þar kemur fram gríðarlegur ávinningur af framkvæmdinni sem er nægjanlegur til að réttlæta hundruð milljarða framkvæmdir við Sundabraut. En er allt sem sýnist? Hverjar eru forsendur skýrslunnar og hvernig var hún unnin? Hvaða gögn var stuðst við og á hvaða gagnrýnisraddir var hlustað? Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fór yfir skýrsluna að beiðni starfshópsins. Hagfræðistofnun benti á um 30 atriði sem þyrftu nánari skoðunar við og væru mörg hver ekki í samræmi við evrópuviðmið. Ekki virðist hafa verið vilji, hvorki hjá starfshóp, Vegagerðini né Mannviti/Cowi að betrumbæta skýrsluna neitt að ráði þótt sumar athugasemdirnar væru býsna alvarlegar. Fyrir þá sem ekki hafa tíma eða getu til að sökkva sér ofan í skýrslu starfshópsins og skýrslu Hagfræðistofnunar er hér stutt upptalning á nokkrum þeirra atriða sem eru mjög ámælisverð í skýrslunni og gera verkefnið mun óhagkvæmara. (HH = Hagfræðistofnun HÍ, AU = Athugasemdir undirritaðs). 1.Reiknað er með að öll umferð til og frá Hvalfjarðargöngum fari um Sundabraut og engin umferð fari aðra leið (AU). 2.Meirihluti allra gagna um ferðavenjur eru fengnar frá Danmörku þar sem um er að ræða lestir, metro, strætó, hjól, bíla o.s.frv.. Þetta er engan vegin sambærilegt við íslenskan veruleika (HH). 3.Meirihluti allra kostnaðartalna eru fengnar frá Danmörku, þ.m.t. prósenta af tímavirði/tímakostnaðar/sparnaðar við styttingu ferða. Þær tölur eru miklu hærri en viðmið evrópusambandins. (HH). Sem dæmi má nefna að kostnaður hækkar talsvert vegna þess að notendur í Metro hífa tölurnar upp. Þetta er heldur ekki í neinu samræmi við íslenskan veruleika og hækkar verðmætagreiningu verulega. 4.Ekki er farið eftir evrópuviðmiðum í uppsetningu sviðsmynda (HH). 5.Ekki er farið yfir né kostnaðargreind sérstaklega sumarleyfisumferð sem er verulegur hluti af umferð um Kjalarnes á ársgrundvelli, en er mest á föstudögum og sunnudögum frá maí til sept (AU). 6.Ekki eru skoðaðar né reiknaðar tafir á umferð áður keyrt er inn eða út af Sundabraut, hvort heldur er í Grafarvogi, Sundahöfn eða Kjalarnesi (AU). 7.Engin tilraun er gerð til að skoða fjölda bílferða um Kjalarnes í báðar áttir sem hlutfall af heildarumferð um t.d. Ártúnsbrekku til að meta raunverulega þörf fyrir Sundabraut. 8.Engin tilraun er gerð til að meta raunverulegan greiðsluvilja m.v. mest 9 km styttingu leiðar og núverandi umferðartafir á leið að og frá Sundabraut. Óskiljanlegir útreikningar um m.a. greiðsluvilja eru ólíklegir til að gefa hugmynd um það (Greiðsluvilji við Vaðlaheiðargögn/Víkurskarð 14 km stytting væri til dæmis hægt að hafa til hliðsjónar) (AU). 9.Samfélagsleg ávöxtunarkrafa er of lág miðað við íslenskt vaxtaumhverfi (HH). 10.Gert er ráð fyrir 2,3 % umferðaraukningu á höfuðborgarsvæðinu árlega næstu áratugina. Það þýðir einfaldlega að umferð í borginni verður stopp frá kl. 8-12 og 15-18 alla daga eftir nokkur ár. Mundi þar engu máli skipta þótt akreinum og mislægum gatnamótum fjölgaði. Umferðin myndi bara aukast enn meir í kjölfarið eins og reynsla allra annarra borga hefur sýnt. Hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sett niður fyrir sig hvernig þau ætla að leysa þann vanda? Væri kannski rétt að nýta hluta þeirra fjármuna sem áttu að fara í Sundabraut í að bæta alla samgöngumáta á höfuðborgarsvæðinu? Svo mætti útrýma fleiri slysagildrum á þjóðvegi 1 áður en farið er í eins stóra framkvæmd og Sundabraut sem gerir fáum gott.Til Vegagerðarinnar: Hefur farið fram könnun á ferðavenjum um Kjalarnes á þeim 4 árum sem liðin eru frá þessari skýrslu? Hefur verið lögð vinna í að útbúa kostnaðarmat, um t.d. tímasparnað fólks og fyrirtækja á Íslandi fyrir umferðarmannvirki af þesari stærðargráðu? Ef svo er ekki, afhverju hefur það ekki verið gert? Á síðasta ári keyrði ég um 40 sinnum um Kjalarnes. Ekki í eitt einasta skipti lenti ég í umferðartöfum á þeirri leið, enda á leiðinni norður að morgni og suður að kvöldi. Þannig er það langflesta daga fyrir utan háannatíma á öllu höfuðborgarsvæðinu. Þær tafir leysast ekki með Sundabraut og eru ekki nægjanleg ástæða til að eyða á annað hundrað milljörðum í mest 9 km styttingu vegar á mjög hæpnum forsendum. Það fara 200-400 bilar í hvora átt á klst við Kjalarnes á mesta annatíma um kl 16 en miklu minna á öðrum tímum (undantekningar eru sumarleyfisumferðin mest á föstudögum og sunnudögum). Þetta er bara brotabrot af þeirri umferð sem fer um aðalgötur höfuðborgarsvæðisins á sama tíma. Eigum við virkilega að byggja Sundabraut fyrir þessa litlu umferð? Höfundur starfar í vísindum og nýsköpun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundabraut Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar