Sjálfstæðisflokkurinn vill 5 bílastæði á íbúð - sem getur kostað allt að 70 milljónir Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 06:16 Reykjavík stendur frammi fyrir fjölþættum áskorunum: Plássleysi vegna sívaxandi bílafjölda, hagkvæmni við uppbyggingu og rekstur innviða í stækkandi samfélagi, auknum kostnaði fólks við rekstur heimila og áskorunum þegar koma að loftgæðum og loftslagsmálum. Bílum á höfuðborgarsvæðinu fjölgar um 70 í viku hverri og þróunin er ekki sjálfbær til lengdar. Svar borgarinnar til að mæta öllum þessum áskorunum er skýrt. Að breyta ferðavenjum með því að auka aðgengi að vistvænum ferðamátum, að byggja upp borgina á sjálfbæran hátt og draga úr nauðsyn bílanotkunar. Það er ekki aðeins stefna borgaryfirvalda heldur einnig vilji íbúa. Þótt um 70 prósent aki í dag til vinnu eða skóla segjast einungis 41 prósent vilja helst ferðast á bíl. Það þýðir að stór hluti þeirra sem aka í dag myndi kjósa aðra kosti ef þeir væru raunhæfir. Þetta skiptir máli. Reykjavík er í samkeppni við borgir nágrannalandanna um fólk, hugvit og fjárfestingar. Borgir sem bjóða upp á fjölbreytta, hagkvæma og heilsusamlega ferðamáta standa þar sterkari að vígi. Bílanotkun er þó ekki það sama og bílaeign. Kjarni málsins er að byrja á réttum enda. Að tryggja aðgengi að öðrum ferðamátum. Þar hafa sannarlega verið stigin mikilvæg skref. Uppbygging Borgarlínu er hafin fyrir tilstuðlan metnaðar þeirra flokka sem hér hafa stýrt síðustu ár. Tíðni strætó var sömuleiðis stórlega aukin á álagstímum síðastliðið haust. Samhliða þessu stendur yfir endurskoðun bílastæðareglna borgarinnar á grundvelli samstarfssáttmála Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna með því markmiði að rýmka reglurnar. Reglurnar hafa sætt gagnrýni, einkum vegna þess að þær taka mið af framtíðarkerfi Borgarlínu sem enn er í uppbyggingu. Þrátt fyrir það hafa þær þegar haft áhrif á þróun byggðar síðustu ára. Í þessari vinnu við rýmkun reglnanna felst auðmýkt og vilji til að mæta þeirri gagnrýni sem hefur komið fram í umræðunni. Þó að einstök verkefni hafi falið í sér færri bílastæði en áður tíðkaðist er heildarmyndin áfram skýr: Bílastæði eru afar mörg í borginni. Þau eru um 40 þúsund fleiri en íbúar og ókeypis bílastæði á borgarlandi eru yfir 26 þúsund. Í umræðum borgarstjórnar í vikunni kom fram skýr afstaða minnihlutans. Sjálfstæðisflokkurinn lýsti sig mótfallinn nokkrum takmörkunum á bílastæðafjölda og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði blákalt að fimm bílastæði mættu gjarnan fylgja hverri íbúð – í bílakjallara. Hvert slíkt stæði kostar á bilinu 7 til 14 milljónir króna. Fimm stæði geta því hækkað verð íbúðar um allt að 70 milljónir króna. Hver á að borga fyrir það? Þetta verður að kallast ansi kaldar kveðjur til ungs fólks sem er að keppast við að komast inn á fasteignamarkaðinn. Það er ábyrgðahluti að fara með vald. Framsóknarflokkurinn talaði á sama fundi fyrir því að heimila fólki að malbika garðana sína til að útbúa þar bílastæði. Sú framtíðarsýn vekur upp spurningu um hvers konar borg við viljum byggja, ef græn svæði og garðar víkja fyrir bílastæðum fyrir einkabíla? Bílaeign á Íslandi er þegar meira í líkingu við Bandaríkin en Evrópu. Nú stöndum við á krossgötum. Ákvarðanir dagsins í dag móta framtíðina. Hvort viljum við frekar líkjast evrópskum mannlífsborgum eða bandarískum bílaborgum? Svari hver fyrir sig. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Borgarstjórn Bílastæði Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar