Heilbrigðisþjónusta fyrir sum Telma Sigtryggsdóttir og Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifa 5. febrúar 2026 10:45 Heilsa fólks með örorku er marktækt verri en meðal þeirra sem eru ekki með örorku. Þetta sýna niðurstöður rannsóknarinnar Lífskjör og heilbrigðisþjónusta á Íslandi, sem unnin var af Felagsvísindastofnun Háskóla Íslands í samstarfi við ÖBÍ rétttindasamtök. Eins og kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar meta einstaklingar með 75% örorku bæði líkamlega og andlega heilsu sína mun verr en þeir sem ekki eru með örorku. Hlutfall þeirra sem meta andlega heilsu sína sem slæma er tvöfalt til þrefalt hærra meðal fólks með örorku en í hópi þeirra sem ekki eru með örorku. Þetta ætti ekki að koma á óvart, fólk er ekki metið með örorku að ástæðulausu. Heilsa þeirra hefur áhrif á daglegt líf, starfsgetu og félagslega þátttöku. Með þessar upplýsingar til hliðsjónar er ekki skrítið að niðurstöður skýrslunnar sýni einnig að fólk með örorku nýtir heilbrigðisþjónustu oftar en aðrir. Örorkulífeyristakar fara oftar til heimilislækna, sérgreinalækna, sjúkraþjálfara og sálfræðinga en aðrir hópar í samfélaginu. Að sama skapi fer hærra hlutfall tekna þeirra í heilbrigðisþjónustu en annarra. Örorkulífeyristakar greiða einnig meira fyrir lyf án lyfseðils. Aðgengi sem brotnar niður þegar mest á reynir Þrátt fyrir að heilbrigðiskerfið eigi að tryggja öllum jafnt aðgengi kemur í ljós að þeir sem eru veikastir og hafa jafnframt minnst á milli handanna fresta oftar nauðsynlegri þjónustu. Kostnaður er stærsta hindrunin, hvort sem um er að ræða læknisheimsóknir, sjúkraþjálfun eða lyfjakaup. Þegar fólk með langvinn veikindi, sem þarf reglulega þjónustu, neyðist til að fresta henni vegna fjárhagsstöðu, þá er kerfið ekki að virka eins og það á að gera. Þetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að snemmtæk meðferð og reglulegt eftirlit eru lykilatriði í að draga úr heilsutjóni og kostnaði til lengri tíma. Kostnaður sem bítur fastast í þá sem hafa minnst Kostnaðarbyrðin er einn skýrasti ójöfnuðurinn sem skýrslan dregur fram. Örorkulífeyristakar og tekjulágir greiða hærri upphæðir fyrir læknisþjónustu, lyf og aðra heilbrigðisþjónustu, bæði í krónum talið og sem hlutfall af tekjum. Þetta þýðir að þeir sem hafa minnst þurfa að verja stærri hluta ráðstöfunartekna sinna í heilbrigðisþjónustu en þeir sem hafa meira. Þetta er ekki aðeins ósanngjarnt heldur óhagkvæmt fyrir samfélagið, þar sem fjárhagslegar hindranir leiða til frestunar, versnandi heilsu og aukins kostnaðar síðar meir. Þegar öll gögnin eru lögð saman blasir við heildarmynd sem erfitt er að horfa fram hjá. Örorkulífeyristakar og tekjulágt fólk eru með lakari heilsu, þurfa meiri þjónustu, hafa lakara aðgengi og greiða meira. Sú staða kallar á að við horfum heiðarlega á hvernig heilbrigðiskerfið er uppbyggt og hverjir sitja eftir. Ef markmiðið er jafn aðgengi að heilbrigðisþjónustu þarf að tryggja að þeir sem hafa minnst séu ekki látnir bera þyngstu byrðarnar. Heilbrigðiskerfi sem virkar fyrir sum er ekki jafnt kerfi. Niðurstöður rannsóknarinnar sem hér um ræðir verða kynntar ítarlega á málþinginu “Heilbrigðisþjónusta fyrir suma?” sem haldið verður í dag, fimmtudaginn 5. febrúar kl.15:00 í Háskóla Íslands. Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir málþinginu. Sérstök áhersla verður lögð á stöðu öryrkja og tekjulágra en niðurstöðurnar varpa því miður ljósi á ójöfnuð innan heilbrigðiskerfisins. Höfundar eru formaður ÖBÍ réttindasamtaka og formaður heilbrigðishóps ÖBÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar