Vaktin: Sprengjum rignir enn Samúel Karl Ólason og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 2. mars 2026 09:32 F/A-18E Super Hornetherþotu lent á flugmóðurskipinu USS Gerald R. Ford í gær. AP/Sjóher Bandaríkjanna Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt. Íranar og bandamenn þeirra hafa svarað með eldflauga- og drónaárásum á nágrannaríki Íran í Mið-Austurlöndum og herstöðvar Bandaríkjanna og annarra. Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna átakanna. Helstu tíðindi -Íranski rauði hálfmáninn segir að minnsta kosti 555 Írani hafa fallið í loftárásum undanfarinna daga. Forsvarsmenn samtakanna segja að árásir hafi verið gerðar á að minnsta kosti 131 borg í Íran. -Að minnsta kosti tíu eru látnir í Ísrael. Þá hefur að minnsta kosti 52 fallið í Líbanon, fjórir í Írak, þrír í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og einn í Barein. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásum Írana í Kúveit. -Þrjár bandarískar herþotur af gerðinni F-15 brotlentu í Kúveit í morgun en svo virðist sem þær hafi verið skotnar niður af vinveittum loftvarnarkerfum. -Ráðamenn í Íran hafa tilkynnt að sérstök nefnd muni stjórna landinu um tíma, þar til búið er að velja arftaka Ali Khamenei, æðstaklerks Íran. Margir aðrir leiðtogar landsins hafa verið felldir í árásum. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Íranar og bandamenn þeirra hafa svarað með eldflauga- og drónaárásum á nágrannaríki Íran í Mið-Austurlöndum og herstöðvar Bandaríkjanna og annarra. Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna átakanna. Helstu tíðindi -Íranski rauði hálfmáninn segir að minnsta kosti 555 Írani hafa fallið í loftárásum undanfarinna daga. Forsvarsmenn samtakanna segja að árásir hafi verið gerðar á að minnsta kosti 131 borg í Íran. -Að minnsta kosti tíu eru látnir í Ísrael. Þá hefur að minnsta kosti 52 fallið í Líbanon, fjórir í Írak, þrír í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og einn í Barein. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásum Írana í Kúveit. -Þrjár bandarískar herþotur af gerðinni F-15 brotlentu í Kúveit í morgun en svo virðist sem þær hafi verið skotnar niður af vinveittum loftvarnarkerfum. -Ráðamenn í Íran hafa tilkynnt að sérstök nefnd muni stjórna landinu um tíma, þar til búið er að velja arftaka Ali Khamenei, æðstaklerks Íran. Margir aðrir leiðtogar landsins hafa verið felldir í árásum. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Helstu tíðindi -Íranski rauði hálfmáninn segir að minnsta kosti 555 Írani hafa fallið í loftárásum undanfarinna daga. Forsvarsmenn samtakanna segja að árásir hafi verið gerðar á að minnsta kosti 131 borg í Íran. -Að minnsta kosti tíu eru látnir í Ísrael. Þá hefur að minnsta kosti 52 fallið í Líbanon, fjórir í Írak, þrír í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og einn í Barein. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásum Írana í Kúveit. -Þrjár bandarískar herþotur af gerðinni F-15 brotlentu í Kúveit í morgun en svo virðist sem þær hafi verið skotnar niður af vinveittum loftvarnarkerfum. -Ráðamenn í Íran hafa tilkynnt að sérstök nefnd muni stjórna landinu um tíma, þar til búið er að velja arftaka Ali Khamenei, æðstaklerks Íran. Margir aðrir leiðtogar landsins hafa verið felldir í árásum.
Íran Bandaríkin Ísrael Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira