Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Lovísa Arnardóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 4. mars 2026 11:57 Myndin er tekin á flugvellinum í Slóvakíu í gær þegar eitt slíkt björgunarflug frá Jórdaníu lenti þar í gær. Vísir/EPA Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum.
Um eitt hundrað og fjörutíu Íslendingar eru á átakasvæðinu og borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins sendi í gær tölvupóst á fólk þar sem því var bent á þrjú björgunarflug á vegum samstarfsríkja. Tvö þeirra eru á morgun og þá annars vegar frá Amman í Jórdaníu til Bratislava í Slóvakíu og hitt er frá Ríad í Sádí Arabíu til Vínarborgar í Austurríki. Það þriðja fer einnig frá Amman til Bratislava á föstudag. Fréttastofa hefur á síðustu dögum rætt við Íslendinga á svæðinu sem hafa verið að reyna að koma sér heim og þá að skoða ýmsar leiðir til þess, meðal annars að keyra til Ríad og fljúga þaðan. Þá eru einhverjar ferðir á áætlun frá Dúbaí í dag en ljóst er að eftirspurn eftir sætum er langt umfram framboð. Aðrir mögulega í forgangi Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins benti Íslendingum á að hafa samband, hafi þeir áhuga á að komast í fyrrnefndar björgunarferðir. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa átján íslenskir ríkisborgarar haft samband og óskað eftir því að komast í ferðirnar. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eiga ríkisborgarar Austurríkis og Slóvakíu forgang í ferðirnar þar sem þær voru skipulagðar af hálfu þeirra ríkja. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga en samkvæmt svari utanríkisráðuneytisins hefur borgaraþjónustan komið beiðnum þeirra á framfæri við viðkomandi samstarfsríki.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Utanríkismál Íslendingar erlendis Jórdanía Sádi-Arabía Tengdar fréttir Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki. 4. mars 2026 09:33 Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti á hlutabréfamarkaðnum í Suður-Kóreu voru stöðvuð í 20 mínútur í morgun, þegar hlutabréfaverð féll um meira en átta prósent. 4. mars 2026 07:20 Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. 4. mars 2026 06:40 Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira
Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki. 4. mars 2026 09:33
Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti á hlutabréfamarkaðnum í Suður-Kóreu voru stöðvuð í 20 mínútur í morgun, þegar hlutabréfaverð féll um meira en átta prósent. 4. mars 2026 07:20
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. 4. mars 2026 06:40