Amma er farin í „sveitina”… Bryndís Rut Logadóttir skrifar 30. mars 2026 10:02 Þegar ég var barn þá voru gæludýrin send í sveitina þegar þau voru orðin gömul og veik. Ég man að ég ímyndaði mér sveitabæ fullan af gömlum og veikum gæludýrum og lét mig dreyma um að gera mér ferð á þennan tiltekna sveitabæ. Hins vegar var „sveitin” lengra í burtu en sunnudags bítúrarnir leyfðu og sá ég því þessi gæludýr aldrei framar. Viljayfirlýsingar með minnsta mögulega meirihluta Á heimasíðu Kópavogsbæjar má finna frétt frá janúar 2024 þar sem fram kemur að bæjarráð Kópavogs hafi samþykkt að vísa áfram til samþykktar bæjarstjórnar drögum að viljayfirlýsingu við Aflvaka Þróunarfélag um uppbyggingu 5.000 íbúða „Lífsgæðakjarna” fyrir eldri borgara, utan þéttbýlis, á jörðinni Gunnarshólma sem liggur norðan við Suðurlandsveg, skammt austan við Hólmsheiði og Rauðavatn. Þessi staðsetning er ekki innan vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins. Málið var tekið upp á bæjarstjórnarfundi í febrúar sama ár og vakti miklar umræður þar sem ekki var samstaða meðal kjörinna bæjarfulltrúa um málið. Bæjarstjórn samþykkti viljayfirlýsinguna með sex atkvæðum gegn fimm. Helstu rök meirihlutans voru þau að fjölgun íbúa á 3. og 4. æviskeiði verði svo mikið að ekki verði pláss innan Kópavogs fyrir þennan íbúahóp. Móðgun við eldri íbúa bæjarins Eftir að hafa skoðað málið vel og kynnt mér það efni sem finna má á heimasíðu Kópavogsbæjar þá finnst mér sú hugmynd sem lögð er fram vera á allan hátt óraunsæ og hálfgerð móðgun við eldri íbúa bæjarins. Ég tel mig vita með vissu að Kópavogsbúar hafa engan áhuga á að láta smala sér út fyrir þéttbýli þar sem þeim ber að eyða ævikvöldinu. Kópavogsbúar vilja vera í Kópavogi. Bænum sem þeir þekkja. Bænum þar sem þeir eiga sína hverfisbúð, sínar menningarmiðstöðvar, sundlaugar, líkamsrækt og kunnugleg andlit á hverju götuhorni. Að fá að tilheyra samfélagi manna Kópavogur er nefnilega samfélag. Samfélag þar sem öll aldursskeið koma saman og mynda heilbrigt og gott bæjarfélag þar sem öllum líður vel saman. Í Kópavogi eru fjórir kjarnar þar sem skapast hefur samfélag eldri íbúa bæjarins. Í Boðaþingi hefur myndast lífsgæðakjarni þar sem samfélag íbúa á mismunandi þjónustustigum njóta samveru saman, hvort sem þeir búa í sjálfstæðri búsetu eða í hjúkrunarrými. Í Sunnuhlíð er samskonar þjónusta og samfélag. Í Gullsmára og Gjábakka má finna íbúðarkjarna og fjölbreytt félagsstarf sem er vel sótt. Einnig má nefna íþróttafélögin sem hafa boðið upp á aðstöðu til hreyfingar í frábæru samstarfsverkefni sem kallast Virkni og vellíðan. Töfrar í lífsgæðakjörnum Í starfi mínu við uppbyggingu lífsgæðakjarnans á Sléttunni hef ég séð töfrana sem slíkir lífsgæðakjarnar geta skapað og bætt lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustuna. Samheldni, samvinna og kærleikur eru orð sem lýsa best þeim anda sem ríkir á Sléttunni. Allir eru sammála um að það sé gott að eldast á Sléttunni. En væri sama uppi á teningnum ef slíkur kjarni stæði sem eyland í miðri sveit í engri tengingu við nærsamfélagið og kunnuglegt umhverfi? Ég er ekki svo viss. Hver væri viðbragðstími sjúkrabíla og annara neyðarþjónustu? Hversu eftirsóknarvert væri að starfa við umönnun þessa íbúa? Hversu oft fengju íbúar heimsóknir ættingja? Myndi fólk ekki bara upplifa sig eins og gæludýrin góðu sem voru send í „sveitina” í gamla daga? Það er pláss fyrir öll aldursskeið í Kópavogi Kópavogur er með fjóra frábæra kjarna sem hafa alla burði og rými til þess að stækka og útvíkka starfsemina. Starfsemi á öllum þjónustustigum. Starfsemi þar sem fólk fær að eldast vel, með reisn og halda heilsu og sjálfstæði. Það er pláss fyrir öll aldursskeið í Kópavogi. Höfundur er í 6. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Hann er einnig formaður Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu og starfar sem þjónustustjóri á Sléttunni Lífsgæðakjarna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar