Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar 4. apríl 2026 11:32 Þegar hljóð og mynd fer ekki saman er eðlilegt að spyrja sig spurninga. Núverandi ríkisstjórn hefur haft háleit markmið og ekki farið leynt með það að þau ætli sér að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangnagerð og almennt í samgöngumálum. Innviðaráðherra Eyjólfur Ármannsson hefur látið hafa þetta eftir sér. En nú þarf að standa við stóru orðin sem hefur alls ekki verið raunin fram að þessu. Jarðgöng í gegnum Reynisfjall bíða Undanfarnar vikur og mánuði hefur mikið verið rætt um Fjarðarheiðagöng í þessu samhengi og að þau séu einu göngin sem tilbúin eru til útboðs. Það eru hins vegar önnur jarðgöng sem lítið fer fyrir í umræðunni en hafa nú þegar farið í gegnum langt undirbúningsferli, þar á meðal umhverfismat. Það eru jarðgöng í gegnum Reynisfjall og nýr láglendisvegur um Mýrdal. Í ágúst árið 2024 skrifaði undirritaður grein í kjölfar þess að Vegagerðin hafði birt niðurstöður úr umhverfismati og Skipulagsstofnun gefið út sitt álit. Vegagerðin lagði til að færa veglínuna upp fyrir þéttbýlið í Vík og Skipulagsstofnun lagði til að áfram yrði notast við sömu veglínu. Allt þvert gegn Aðalskipulagi Mýrdalshrepps sem hefur frá árinu 2013 gert ráð fyrir nýjum láglendisvegi um Mýrdal og jarðgöngum í gegnum Reynisfjall. Rifjum upp söguna Áður en lengra er haldið er mikilvægt að rifja upp nokkur atriði úr greininni minni frá því í ágúst 2024: „Fyrir liggur kjörin lýðræðislegur meirihluti í Mýrdalshreppi fyrir þeirri leið sem er á Aðalskipulagi. Einnig má benda á afgerandi umsagnir frá Skaftárhreppi og Sveitarfélaginu Hornafirði vegna umhverfismatsins þar sem talað er með jarðgöngum. Rökin á bakvið þær umsagnir eru greiðfærni og umferðaröryggissjónarmið. Enda er hér um að ræða mikið hagsmunamál ekki aðeins fyrir þá sem búa á svæðinu sem um ræðir, þessi framkvæmd mun hafa afar jákvæð áhrif allt austur á firði. Áður en lengra er haldið er vert að benda á að ekki er hægt að lesa annað út úr umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar en að öruggasta og greiðfærasta leiðin er nýr láglendisvegur um Mýrdal með jarðgöngum í gegnum Reynisfjall.“ „Miðað við umferðartölur Vegagerðarinnar má ætla að Reynisfjallsgöng yrðu önnur umferðarmestu göng á landinu á eftir Hvalfjarðargöngum. Meðaltal dagsumferðar á veginum við Reynisfjall árið 2023 voru 2900 bílar. Ef við gefum okkur þessa tölu og miðum við að 1 ferð í gegnum göngin myndi kosta kr. 1000, þá myndi það skila á einu ári kr. 1.058.500.000. Auðvitað er ekki hægt að gefa sér það að allir nýti sér öruggustu og greiðfærustu leiðina og fari í gegnum göngin. En miðað við það að umferðin haldi áfram að vaxa, eins og kemur m.a. fram í umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar, þá eru Reynisfjallsgöng framkvæmd sem mun borga sig upp á nokkrum árum. Lengd jarðgangnanna er áætluð 1500 metrar og til að setja það í samanburð eru Almannaskarðgöng 1300 metrar. Þau kostuðu eftir því sem undirritaður kemst næst 1,1 milljarð króna árið 2004 sem í dag myndi reiknast sem 3 milljarðar króna.“ „Kostnaður við jarðgangnagerð í gegnum Reynisfjall myndi kosta ein og sér 10,6 milljarða króna samkvæmt því sem fram kemur í umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar. Það skal ítrekað að hér er aðeins átt við að gera jarðgöng í gegnum þessa 1500 metra, inni í þessari tölu er engin vegtenging. Það verður að segjast alveg eins og er að þessi tala er grunsamlega há og afar erfitt að skilja hvernig þetta megi standast. Til að setja þetta í samhengi gerir áætlunin ráð fyrir að kostnaður á 1000 metra í Reynisfjallsgöngum sé u.þ.b. tvisvar sinnum hærri en áætlaður kostnaður á 1000 metra í Fjarðarheiðargöngum og framkvæmdakostnaður var á 1000 metra í Vaðlaheiðargöngum.“ Þess má geta að samkvæmt talningu Vegagerðarinnar var meðal umferð á dag á hringveginum við Reynisfjall um 3000 bílar árið 2025. Til að setja þessar umferðartölur í samhengi þá skulum við taka umferðartölur um Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði sem dæmi. Um Holtavörðuheiði fóru að meðaltali um 1800 bílar á dag en um Öxnadalsheiði um 1650. Þessar tölur ættu að setja það vel í samhengi fyrir þá sem ekki þekkja til hversu gríðarlega mikil umferðin er á þessu svæði. Viljayfirlýsing undirrituð milli þriggja sveitarfélaga og Summu rekstrarfélags. Í grein undirritaðs frá árinu 2024 var skorað á sveitarfélögin á svæðinu að taka höndum saman og hefja samtal um hvernig þau gætu staðið saman að því að koma þessu máli í góðan farveg. Boltinn fór fljótt að rúlla og eftir gott samtal milli sveitarfélaganna Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps, Hornafjarðar og Summu rekstrarfélags var undirrituð viljayfirlýsing milli þessara aðila í maí árið 2025 „vegna fjármögnunar á göngum í gegnum Reynisfjall.“ Í viljayfirlýsingunni segir m.a.: „Markmið þessarar viljayfirlýsingar er að stuðla að framkvæmd ganga í gegnum Reynisfjall, sem munu bæta öryggi samgangna, stytta ferðatíma og stuðla að aukinni hagkvæmni í samgöngukerfi landsins. Þar kemur einnig fram að: „Aðilar eru sammála um að verkefnið muni bæta öryggi vegfarenda með því að útrýma hættulegum köflum á núverandi vegi og stytta ferðatíma milli svæða og bæta aðgengi að þjónustu. Auk þess mun verkefnið styðja við efnahagslega uppbyggingu svæðisins og efla ferðaþjónustu auk þess að draga úr umhverfisáhrifum með bættri vegtengingu og skilvirkari akstri. Metnaðarfull og kraftmikil viljayfirlýsing og talsverð bjartsýni ríkti í kjölfar undirritunnar í ljósi þeirra stefnu sem að ríkisstjórnin boðaði að nú ætti að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangnagerð og gera enn betur í samgöngumálum. Því var ekki annað hægt ætla en að auðvelt ætti að vera fá áheyrn frá Innviðaráðherra fyrir jafn metnaðarfullu verkefni og hér um ræðir. Þar sem þrjú sveitarfélög ásamt fjárfestingasjóði eru saman komin og vilja hrinda þessari brýnu framkvæmd af stað. En hvað er að frétta? Viljayfirlýsingin gildir í eitt ár frá undirritun og rennur þar af leiðandi út 8. maí næstkomandi. Mánuðum saman hefur verið beðið eftir fundi með Innviðaráðherra, til að kynna verkefnið, sem hefur einhverra hluta vegna ekki orðið við fundarbeiðni. Í umsögn Skaftárhrepps um samgönguáætlun frá 8. febrúar 2026 segir um þetta verkefni: „Staða þessa máls í dag er sú að ekkert hefur gengið að fá áheyrn Innviðaráðherra vegna áframhaldandi kynningar og undirbúningsvinnu.“ Hljóð og mynd fara ekki saman – því má breyta! „Við ætlum að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangnagerð“, segir Innviðaráðherra. Reynisfjallsgöng bíða og vilji er til þess að fara í verkefnið í einkaframkvæmd. Ef Innviðaráðherra vill raunverulega standa við orð sín og ríkisstjórnarinnar um að gera enn betur í samgöngumálum. Þá skora ég hér með á Innviðaráðherra að setjast niður með fulltrúum sveitarfélaganna þriggja og Summu rekstrarfélags. Gríðarlega mikil vinna liggur nú þegar að baki í undirbúningi nýs láglendisvegar um Mýrdal ásamt jarðgöngum í gegnum Reynisfjall, umhverfismat og þar af leiðandi fjöldi rannsókna. Látum þessa vinnu ekki verða að engu – ræsum vélarnar! Höfundur er 26 ára Mýrdælingur og mikill áhugamaður um samgöngur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mýrdalshreppur Samgöngur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar Skoðun Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Anna Sigrún Jóhönnudóttir skrifar Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar Skoðun Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun
Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun