Heiðarleiki og raunhæfar lausnir Ragnar Þór Reynisson skrifar 8. apríl 2026 17:31 Sveitarstjórnarkosningar eru á næsta leiti og flokkar eru á síðustu metrunum við að kynna sína lista. Það er farið að kynda undir kosningabaráttunni og eins og oft áður einkennist hún af ólíkum áherslum, sumir flokkar virðast leggja meiri metnað í að tala aðra niður en að kynna eigin sýn, á meðan aðrir einbeita sér að því hvað þeir ætla raunverulega að gera fyrir íbúana. Ég hef fylgst náið með pólitíkinni í Hafnarfirði í nokkur ár, látið mitt nærumhverfi mig varða og komið að málum sem snerta íbúalýðræði. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með hvernig minnihlutaflokkarnir koma sinni pólitík á framfæri. Oft virðist dagskrá bæjarstjórnarfundar undirbúin með það eitt í huga að nota hana sem vopn í kosningabaráttu til að lyfta sjálfum sér upp með því að tala meirihlutann niður. Við þetta myndast gjarnan upplýsingaóreiða sem þjónar engum, síst af öllu íbúunum. Þeir sem þekkja til mála sjá í gegnum þetta, en fyrir almennan íbúa getur verið erfitt að greina á milli pólitísks leikrits og raunverulegra málefna. Eitt eftirminnilegt dæmi um þetta var þegar meirihlutinn samþykkti óvænt tillögu frá minnihlutanum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, minnihlutinn var svo óviðbúinn samþykktinni að hann átti engin andsvör, einfaldlega vegna þess að undirbúningurinn miðaðist við átök en ekki samvinnu. Metnaður og árangur Framsóknar Við í Framsókn í Hafnarfirði höfum nú hafið okkar baráttu. Okkar nálgun verður einföld, kynna málefnin og segja skýrt hvað við ætlum að gera fyrir Hafnfirðinga. Framsókn hefur verið í meirihlutasamstarfi allt þetta kjörtímabil og árangurinn talar sínu máli. Málefnasamningurinn fyrir árin 2022–2026 inniheldur 45 metnaðarfulla liði. Þegar staðan er skoðuð í dag hafa aðeins fimm atriði ekki verið sett í ferli, öll hin hafa annaðhvort verið kláruð eða eru í virkri vinnslu. Eitt af þeim málum sem minnihlutinn ætlar að gera að stóru kosningamáli er gjaldfrjáls strætó fyrir 12–17 ára. Þetta er gott mál sem við í Framsókn tökum undir og viljum vinna að. Munurinn liggur hins vegar í útfærslunni. Við könnumst öll við það úr daglegu lífi eða af vinnustöðum að góð hugmynd getur breyst og batnað eftir samtal og faglega úrvinnslu. Hugmyndin verður ekkert síðri fyrir það þótt henni sé hagrætt og hún gerð rekstrarlega skynsamlegri. Ég hef fulla trú á því að gjaldfrjáls strætó fyrir þennan hóp verði að veruleika á þessu ári á þann hátt að hann sé fullfjármagnaður og án þess að anað sé út í óvissu með fjármuni íbúa. Heildstæð sýn á velferð og útivist Stóru málin í Hafnarfirði eru skýr, samgöngur, uppbygging íbúða, málefni eldri borgara og heilbrigðismál. En það eru fleiri mál sem brenna á fólki. Við þurfum fjölbreyttar lausnir í geðheilbrigðismálum, félagslegri þjónustu og búsetuúrræðum. Hópurinn sem þarf á þessu að halda er margvíslegur og því dugar ekki ein lausn fyrir alla. Málefni heimilislausra og þeirra sem eru að byggja upp nýtt líf án baklands skipta miklu. Á bak við hvert mál eru fjölskyldur sem upplifa skert lífsgæði og vinnutap vegna umönnunar. Hér þurfum við að vera brautriðjendur í samstarfi við ríkið og samtök sveitarfélaga til að finna varanlegar lausnir. Við megum heldur ekki gleyma útivistarperlum okkar. Hvaleyravatn, Stórhöfði og Helgafell bjóða upp á ómæld tækifæri til heilsueflingar. Við þurfum að ráðast í stórátak í innviðum þar, bæta stíga, aðkomu og aðstöðu, jafnframt því að halda áfram skógrækt og koma uppbyggingu nýs golfvallar í framkvæmd. Þá er sorphirðan, sérstaklega hjá þeim sem búa í fjölbýli, mál sem Framsókn ætlar að bæta í nánu samstarfi við íbúa og fyrirtæki. Hjartað í Vallarhverfi Sem íbúi í Vallarhverfi þekki ég áskoranir ört vaxandi samfélags. Fyrir mér skiptir höfuðmáli að við klárum uppbyggingu Skarðshlíðar og Hamraness í sátt við íbúa. Við þurfum að „loka hringnum“ í hverfinu okkar svo samgöngur og innviðir þjóni okkur sem skyldi. Fegra þarf aðkomuna inn í hverfið með gróðri og vönduðu skipulagi, fylla í „götin“ á Tjarnarvöllum og skipuleggja svæðin við Krísuvíkurveg þannig að þau rami hverfið betur inn. Pólitík á að snúast fyrst og fremst um það að bæta lífsgæði fólks. Við í Framsókn ætlum að gera það með kærleika, mennsku og heiðarleika að leiðarljósi. Þetta snýst um Hafnarfjörð. Höfundur er frambjóðandi á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar