Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar 14. apríl 2026 10:15 Ég er fæddur og uppalinn í Kópavogi og bý í dag á Kársnesi með fjölskyldunni minni. Í daglegu lífi skiptir máli að grunnþjónustan virki – að rusl sé hirt, snjómokstur í lagi og leikskólar mannaðir. Það eru líka lífsgæði að búa í bæ þar sem skipulag, náttúra og lifandi mannlíf fara saman. Sú uppbygging sem hefur átt sér stað í Kópavogi undanfarin ár er ekki tilviljun, heldur afrakstur skýrrar stefnu, ábyrgðar í rekstri og vilja til að fylgja málum eftir. Íþróttir hafa alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Ég kem úr HK og spilaði bæði fótbolta og handbolta, þar af átján ár í meistaraflokki í fótbolta og sem fyrirliði liðsins í nær áratug. Sú reynsla kenndi mér hversu mikilvægt öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf er, ekki aðeins fyrir árangur á vellinum heldur fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Í íþróttum lærir maður líka að ekkert gerist af sjálfu sér. Árangur krefst vinnu, ábyrgðar og þrautseigju. Það sama á við um rekstur og uppbyggingu bæjarfélags. Uppbygging nýs keppnisvallar og stúku við Kórinn er gott dæmi um þessa hugsun í verki. Hún er fjárfesting í framtíðinni sem mun þjóna þúsundum barna og ungmenna, styrkja félagsstarf og skapa mikilvægan samkomustað fyrir íbúa. Slík uppbygging skiptir ekki aðeins máli fyrir HK heldur fyrir efri byggðir Kópavogs í heild sinni. Væntanleg uppbygging á Kársnesi er annað dæmi um skýra framtíðarsýn í Kópavogi sem nær langt út fyrir hverfið sjálft. Þar er verið að byggja upp nýjan miðbæ með fjölbreyttri verslun og þjónustu sem mun tengja saman menningarhúsin okkar í Hamraborginni. Uppbygging yndishafnar á vesturhluta Kársness mun skapa heildstætt og lifandi svæði þar sem heimili, útivist og atvinnulíf fara saman. Sem íbúi á Kársnesi sé ég daglega hvaða möguleikar felast í þessu svæði og hvernig þessi nálgun mun skapa raunveruleg lífsgæði fyrir íbúa og styrkja stöðu Kópavogs á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið mikil og góð uppbygging í Kópavogi á undanförnum árum. Undir forystu Ásdísar bæjarstjóra, ásamt kjörnum fulltrúum, öflugu starfsfólki bæjarins og skýrri stefnu hefur tekist að halda utan um rekstur og uppbyggingu með ábyrgum hætti. En góð stefna og skýr markmið skipta litlu máli án festu og vilja til að standa við þau. Þess vegna ákvað ég að gefa kost á mér í 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég tel mikilvægt að halda áfram á þeirri vegferð sem hefur skilað árangri og vil leggja mitt af mörkum til að gera bæinn okkar enn betri. Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins er skipaður fólki sem hefur trú á bæjarfélaginu okkar og er reiðubúið að láta verkin tala til að tryggja að Kópavogur verði áfram sveitarfélag í fremstu röð. Kópavogur er í sókn. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar. Höfundur er 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar