Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 12:30 Eldsneytisdreifing á Íslandi er á höndum örfárra fákeppnisaðila sem virðast lítt hrifnir af virkri samkeppni. Aðilarnir eru þekktir af því að fylgja heimsmarkaðshækkunum fljótt og vel en fregnir af lækkunum á heimsmarkaði virðast berast þeim seint og illa. Einnig er þrálát þjóðsaga á kreiki um þunga birgðastöðu sem er bábilja. Birgi fákeppnisfyrirtækjanna sem er einn og hinn sami á eldsneytisbirgðir hér á landi utan þess sem er á hverri dælustöð á hverjum tíma. Fákeppnisaðilarnir eiga einnig mjög erfitt með að lækka verð vegna stjórnvaldsaðgerða. Þannig komu lækkanir vegna kerfisbreytinga um síðast liðin áramót ekki að fullu fram heldur notuðu fyrirtækin tækifæri til að hækka álagningu sína. Þetta hefur orðið til þess að nú þegar ríkisstjórnin hefur sett fram aumasta kosningavíxil í langan tíma, þ.e. að lækka virðisaukaskatt af eldsneyti tímabundið fram yfir tvennar kosningar neyðist stjórnin til að setja sérstök lagaákvæði til að tryggja að lækkunin skili sér til neytenda. Sporin hræða. Nú er það þannig að eldsneyti er þannig vara að verð á henni er alls ekki stöðugt eða fyrirsjáanlegt. Þó er það svo að í flestum nágrannalöndum er verð að staðaldri lægra og stöðugra en á Íslandi enda er þar virk samkeppni á eldsneytismarkaði. Nefna má að í Danmörku var verð á eldsneytislítra fyrir kerfisbreytinguna hér um áramótin að jafnaði þrjátíu krónum lægra en hér yfir mörg ár hvað sem leið gengi DKK eða heimsmarkaðsverði. Danir kunna þó ágætlega að skattleggja eldsneyti. Í kjölfarið á kerfisbreytingunni sem skilaði sér ekki nema að hluta til neytenda gripu fákeppnisfélögin til þess ráðs að hella yfir markaðinn auglýsingum sem eru í besta falli ósvífnar en í versta falli móðgun. Flestar eru auglýsingarnar glaðbeittar og gera mikið úr ,,besta verði” á dælu. ,,Besta verð”á höfuðborgarsvæðinu er í þessum skrifuðu orðum fjórum krónum yfir verði á líter í Kauptúni sem setur verðviðmið. Tilviljun hlýtur að ráða því að sami verðmunur er hjá öllum söluaðilum í nánd við Kauptún. Ein auglýsing frá fákeppnisaðila náði eyrum mínum í síðustu viku þar sem viðskiptavinir voru beðnir um að dæla en æla ekki á bensínstöðum viðkomandi. Væntanlega hefur hér verið um að ræða misheppnaða tilraun til spaugs en þegar betur er að gáð hittir auglýsingin í mark því auðvitað verður viðskiptavinum óglatt af því að versla við fákeppnisaðila sem ekki einungis svínar á verði heldur stærir sig af því og gerir lítið úr viðskiptavinum sínum. Þar sem fákeppni er alls ráðandi er erfitt að sýna vilja sinn ,,með fótunum” og fara annað. Þó væri sjálfsagt hægt að sniðganga eitt olíufélag í hverri viku ef neytendur kæmu sér saman um það. Fákeppnin fengi þá alla vega að vita hug neytenda. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Sæmundsson Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar