Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar 17. apríl 2026 08:17 Akureyri er sterkur skólabær og það er ekki tilviljun. Hér hefur byggst upp öflugt menntasamfélag sem samanstendur af leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og háskóla. Það að bærinn okkar sé „sterkur skólabær“ er ekki endanleg staða og engan veginn tryggt til framtíðar! Þetta er lifandi verkefni sem krefst stöðugrar árvekni, skýrrar framtíðarsýnar og samstarfs ríkis og sveitarfélags sem setur menntun í forgang. Á Akureyri eru allar forsendur til staðar til að skapa raunverulegt menntasamfélag. Horfa þarf á þjónustu við nemendur í víðu samhengi, frá fyrstu skrefum í leikskóla og alla leið upp í háskóla. Óháð því hvort einstaklingurinn sé með sérþarfir, búi við þröngan kost, sé stutt kominn í aðlögun sinni að tungumáli og menningu eða ekkert af framangreindu eigi við: Við þurfum öll sanngjarnt aðgengi að menntun. Menntun er meira en kennslan ein og sér. Fimm lykilþættir ráða því hvernig okkur tekst til með áframhaldandi uppbyggingu bæjarins okkar sem sterks skólabæjar: Aðgengi að námi, aðbúnaður í skólum, stuðningur við nemendur og fjölskyldur þeirra, þátttaka ungs fólks í ákvörðunum um tilhögun menntunar, félagslífs og tómstunda og samtal ríkis, bæjarfélags og hagsmunaaðila. Plássleysi, mannekla og ójafnt aðgengi að þjónustu sýna að kerfið er undir þrýstingi. Þetta hefur keðjuverkandi áhrif, ekki aðeins á yngstu börnin, heldur á allt samfélagið. Leikskólar bæjarins eru gjaldfrjálsir – en aðeins að hluta til. Eftir klukkan tvö tekur við gjaldtaka fyrir viðveru barns. Þetta hefur sérstaklega áhrif á fjölskyldur sem vinna fullan vinnudag til að ná endum saman og því miður hefur reynslan sýnt okkur að aukin pressa á foreldra að draga úr eigin vinnutíma leggst mun harðar á konur. Vissulega er tekið tillit til svoleiðis aðstæðna en að bjóða afslætti er ekki lausn á þessu vandamáli. Það er einfaldlega viðurkenning á því að kerfið nær ekki að tryggja jafnt aðgengi. Ef við ætlum að ná jafnræði í menntun verðum við að byrja á byrjuninni. Grunnskólarnir okkar standa frammi fyrir skýrum áskorunum. Það vantar kennara og stuðningsfulltrúa, og er það ekki nýtt vandamál. Við háskólann okkar er kennd kennarafræði sem var hærri skráning í í fyrra en nokkru sinni fyrr. Margir sem stunda kennaranám við HA eru einnig að vinna fyrir Akureyrarbæ. Þeir þurfa að mæta tvisvar á misseri í lotur við HA og þurfa að taka sér launalaust leyfi frá vinnu því bærinn greiðir ekki fyrir menntun, á meðan önnur sveitarfélög greiða í hið minnsta hluta af launum á meðan á lotu stendur. Þá kvarta skólar víða undan plássleysi og það er ekki aðstaða alls staðar fyrir list- og verkgreinakennslu sem er grunnur að því að allir nemendur bæjarins fái jafnt aðgengi að kennslu. Síðan eru það okkar ástsælu framhaldsskólar. Vissulega eru þeir reknir af ríkinu en nærsamfélag þeirra er á okkar ábyrgð! Strætókerfið okkar er úrelt, og þar með er erfitt fyrir nemendur og samfélagið í heild að nýta sér það almennilega. Ef nemandi missir af einni ferð getur hann þurft að bíða í allt að klukkutíma. Það er engan veginn raunhæft fyrir virkt skóla- og félagslíf og að geta tekið strætó á ekki að vera lúxus heldur einfaldlega grundvöllur fyrir aðgang að menntun. Það þarf að endurhugsa þetta kerfi svo að öll geti nýtt sér þetta. Þá þarf einnig að horfa til húsnæðismála, sérstaklega fyrir þau sem koma í bæinn fyrir iðnnám. Ekki allir vilja eða geta búið á heimavistinni, sérstaklega eldri nemendur eða fjölskyldufólk. Ef við viljum laða fólk að til náms verðum við að skapa raunveruleg góð lífsskilyrði – ekki bara bjóða upp á námið. Varðandi nám þá erum við með einn besta og vinsælasta verkmenntaskóla utan höfuðborgarsvæðisins. Nemendur annarra verkmenntaskóla, eins og VA, þurfa t.a.m. í ákveðnum tilfellum að koma í VMA til að klára þeirra nám. Til þess að það gangi upp, verður aðstaða til náms að vera í lagi. Við VMA vantar stofur og aðstöður fyrir það nám sem er í boði þar sem er óásættanlegt. Með því að laga þetta verðum við betri skólabær! Háskólinn á Akureyri er einn mikilvægasti hornsteinn bæjarins. Hann laðar að ungt fólk alls staðar að og hefur bein áhrif á þróun samfélagsins. En til að halda í stúdenta þarf meira en góða kennslu. Það þarf að tengja háskólann betur við bæinn, skapa tækifæri til atvinnu, hvetja fólk til að verða eftir eftir útskrift og tryggja að lífsgæði á Akureyri séu samkeppnishæf við aðra staði. Félagslífið í bænum er æðislegt, en við verðum að stuðla að því að framhaldsskólanemar sjái haginn í því að verða eftir, sækjast í háskólann okkar og vinna í þessari paradís sem við eigum. Til þess þarf að bæta aðstöðu fyrir stúdenta, hvort sem það er húsnæði eða félagsaðstaða, sýnileika innan bæjarins og margt fleira. Akureyri hefur alla burði til að vera fyrirmyndar skólabær. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það krefst þess að við tökumst á við áskoranir af heiðarleika. Tryggjum jafnt aðgengi að menntun; styðjum betur við kennara og nemendur; bætum samgöngur og aðstöðu; og vinnum markvisst saman, ríkið, bærinn, leik-, grunn-, framhaldsskólar, háskóli og atvinnulífið og samfélagið í heild. Við verðum að skapa menningu sem lætur fólk vilja vera eftir. Sterkur skólabær er ekki mældur í stefnum eða slagorðum. Hann er mældur í því hvort öll fái raunverulegt tækifæri til að læra, lifa og byggja sér framtíð – hér á Akureyri! Höldum í okkar fólk, fáum fólk norður, bætum samfélagið og verum stoltur sterkur skólabær! Höfundur skipar fjórða sætið hjá Samfylkingunni á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun