Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 22. apríl 2026 15:15 Ég tók könnun fyrir stuttu sem er ekki frásögur færandi, nema það að mig rak í vörðurnar oftar en einu sinni þar sem mér fannst sumar spurningarnar óljósar og ekki gefa mér tækifæri til þess að koma skoðun minni til skila. Ein spurning sló mig sérstaklega illa þar sem hún gaf í skyn forsendur sem ég veit að eru ekki á rökum reistar og mætti telja til áróðurs. Áður en ég segi frá spurningunum sjálfum langar mig að rifja upp kafla úr Draumalandinu eftir Andra Snæ. Kaflinn fjallar um tungumálið og hvers vegna það er mikilvægt að við eigum orð yfir mismunandi hluti. Nefnir hann þar dæmi að ef við ættum ekki mismunandi orð yfir mismunandi stærðir kattardýra (köttur, ljón, tígrisdýr osf.) hefðum við ef til vill ekki aðrar leiðir til að greina þau í sundur en þyngd. Svo ef ég væri með nagdýravandamál (músagang) og leysti það með 4kg kattardýri (heimilisketti) myndi ég kannski segja nágranna mínum frá því. Nágranni minn gæti svo einnig lent í nagdýravandamáli og myndi kannski fá sér 150 kg kattardýr til að leysa það. Ég væri þá líkleg til að segja honum að 150 kg kattardýr séu stórhættuleg inni á heimili. Væri þá ekki skrítið ef nágranni minn kallaði mig hræsnara og spyrði hvort ég hefði eitthvað á móti öllum kattardýrum? Kattardýrið (ljónið) væri svo víst til að éta manninn en nagdýravandamálið (veikur naggrís) væri óleyst. Mér var hugsað til þessa kafla þegar ég fékk spurninguna Hversu jákvæð eða neikvæð ertu gagnvart vatnsaflsvirkjunum? Hvernig á ég að geta tekið afstöðu með eða á móti öllum vatnsaflsvirkjunum? Ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála birti grein í dag einmitt um það að endurnýjanleg orka gefur okkur sjálfstæði og við eigum að fara hratt í orkuskiptin. Ég gæti ekki verið meira sammála. En þó að vatnsaflsvirkjanir séu í eðli sínu góð orkuframleiðsla þá geta þær samt haft mikið rask á umhverfinu í för með sér. Til þess að taka góðar og upplýstar ákvarðanir um orkuframleiðslu eigum við faglega ferla, umhverfismat, lýðræðislega þátttöku almennings í samráðsferli og fleira. Landvernd eru frjáls félagasamtök sem gæta þess að farið sé eftir slíkum ferlum. Þó að orkuframleiðsla sé endurnýjanleg eru henni samt sem áður takmörk sett. Það er ekki hægt að vaða áfram og seðja alla eftirspurn sem skapast. Sé stefnan sú að mata öll þau gagnaver og aðra stórnotendur eins og þau geta í sig látið til framtíðar, munum við vakna upp við vondan draum eftir örfá ár, búin að tapa okkar dýrmætustu djásnum. Þess vegna er mikilvægt að forgangsraða orkunni í orkuskiptaverkefni. Þess vegna er mikilvægt að almenningur njóti forgangs og að sett verði arðsemisþak á sölu á raforku til íslenskra heimila. Alveg eins og gert er við vatnið okkar. Íslensk heimili nota um 5% orkunnar sem við framleiðum og samt erum við í hættu á að verða undir í verðkapphlaupi við óseðjandi stórnotendur. Það gerir mig virkilega reiða þegar ábyrgðinni er varpað á almenning, eins og okkur verði refsað með síhækkandi raforkuverði ef við erum ekki tilbúin að hlaupa á eftir öllum orkunotendum með náttúruperlur til fórna. Þess vegna varð ég reið þegar ég fékk eftirfarandi spurningu: Værir þú tilbúin(n/ð) að greiða hærra raforkuverð gegn því að haldið yrði aftur af virkjunarframkvæmdum með tilheyrandi umhverfisraski? Já Nei Fer eftir því hversu mikið hærra raforkuverðið væri Veit ekki Vil ekki svara Ég veit ekki hver það var sem lagði spurninguna fyrir en það gefur auga leið að spurningin er sett fram með ákveðna niðurstöðu í huga. Það er mikilvægt að almenningur sé vakandi fyrir slíkum áróðri og sýni að náttúran er okkur mikilvæg. Að við viljum hugsa okkur vel um áður en farið er af stað í framkvæmdir sem valda raski á umhverfinu. Þess vegna hvet ég öll til þess að mæta í Grænu gönguna á morgun, sumardaginn fyrsta, sem fer frá Arnarhóli í Hljómskálagarðinn klukkan 13:30. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira