Fjárfestum í börnum Pétur Marteinsson skrifar 24. apríl 2026 07:03 Á síðustu tíu árum hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað hratt í skólum landsins. Hlutfall þeirra hefur víða meira en tvöfaldast síðan 2015 og er nú á bilinu 15–20% í grunnskólum, hærra í sumum hverfum Reykjavíkur. Þessi börn eru flest komin hingað til að vera, fjölskyldur þeirra eru að byggja sér líf á Íslandi og það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Ég bjó um árabil í Svíþjóð og hef því fylgst grannt með þróun mála þar – bæði hvað hefur gengið vel og hvað hefði mátt betur fara. Þrátt fyrir góðan ásetning hefur það þó farið svo að ákveðnir hópar innflytjenda hafa einangrast, ýmist í ákveðnum hverfum eða félagslega, án raunverulegra tækifæra. Þannig verða til tvö samfélög, tengsl tapast og þar með vonin um gott líf. Tungumál og þátttaka er lykillinn Hér í Reykjavík viljum við byggja samfélag þar sem öll börn hafa jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Þess vegna leggjum við í Samfylkingunni áherslu á að taka íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna fastari tökum. Tungumálið er lykillinn að samfélaginu. Að hafa góð tök á tungunni eflir sjálfstraust, gerir þau fær um að stunda frekara nám á framhalds- og háskólastigi, eflir félagsleg tengsl og sjálfstæði. Við viljum tryggja að fleiri kennarar geti sérhæft sig í kennslu íslensku sem annars tungumáls á meðan við sköpum einnig tækifæri fyrir aðra kennara til að þróa sig áfram í móttöku barna með annað móðurmálinni í almennum bekkjum. Hver skóli þarf að fá rými til að marka sér stefnu og finna bestu leiðirnar fyrir sinn nemendahóp – samhliða því sem við eflum samtal skóla til að deila reynslu og þekkingu. Þetta gerist ekki bara í kennslustofunni, á Íslandi vinna margir aðilar saman að því að ala upp næstu kynslóðir. Tómstunda- og íþróttastarf eru ekki síður öflug leið til að hraða íslenskufærni og ýta undir tengsl við samfélagið. Ég vil vinna með þessum aðilum að aukinni þátttöku barna af erlendum uppruna, samfélaginu öllu til hagsbóta. Trú á framtíðinni Ég hef óbilandi trú á nemendum í reykvískum skólum – og ég veit að kennararnir hafa það líka. Við þurfum að skapa aðstæður þar sem hægt er að mæta öllum nemendum og undirbúa þá vel fyrir lífið. Það er fjárfesting sem skilar sér margfalt. Nú er aðkallandi að við styðjum við þann fjölda barna og foreldra sem hafa eða munu setjast að í Reykjavík á komandi árum. Samfélag þar sem öll börn finna að þau eru mikils virði og hafa tækifæri til að ná góðri færni í íslensku og efla með sér trú á framtíðina. Þannig borg vil ég búa í. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Marteinsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar