Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar 26. apríl 2026 10:03 Talið er að um 6.500 íbúðir standi nú óseldar og auðar á Íslandi. Þetta er ekki tímabundin skekkja heldur einkenni óstöðugs kerfis sem sveiflast milli skorts og offramboðs með miklum samfélagslegum kostnaði. Vitað er að fjöldi fólks myndi vilja kaupa íbúðir en hefur ekki nægan kaupmátt. Helsta ástæða eru háir vextir og ráðstafanir Seðlabankans til að draga úr verðbólgu. Gjaldmiðillinn okkar er stór hluti vandans en látum það liggja milli hluta hér. Þegar íbúðir seljast ekki þrengir það að byggingaraðilum. Fjárfestingar dragast saman, verkefni eru sett á ís og nýbyggingarstarfsemi dregst saman. Afleiðingarnar eru vel þekktar: þekking og geta í greininni glatast smám saman, fyrirtæki minnka við sig eða hverfa af markaði og fólk missir vinnu. Þegar næsta uppsveifla kemur blasir hins vegar við sama vandamál og áður – skortur á íbúðum, hækkandi verð og spennuþrýstingur í hagkerfinu. Þáttur sveitarfélaga Sveitarfélög eiga að leitast við hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi varðandi framfærslu og húsnæði. Sumir segja að húsnæði séu mannréttindi. Til að sinna þessu eiga sum sveitarfélögin margar íbúðir og leigja undir markaðsverði. Einnig hjálpa sum með húsaleigubótum. Reykjavíkurborg á um 3.000 íbúðir og Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær eiga hvert um sig einhver hundruð íbúða. Samtals eiga sveitarfélög líklega um 4.000 íbúðir. Sveitarfélögin ættu að stíga inn á húsnæðismarkaðinn þegar að kreppir eins og nú, með markvissum hætti. Þau gætu til dæmis keypt verulegt magn óseldra íbúða hvert á sínu svæði, á kjörum sem endurspegla stöðuna – þar sem líklegt er að magnafsláttur fengist við slík kaup. Við núverandi aðstæður þyrftu þau að kaupa um 3.000 íbúðir svo um muni. Þar sem vöntun er á leiguhúsnæði gætu sveitarfélög leigt þær út tímabundið á vægu leigumarkaðsverði og þannig dregið úr þrýstingi á leigumarkaði. Þar sem eftirspurn eftir slíku er lítil gætu geymt þær þar til kaupmáttur fólks vex. Byggingafélög Þessi nálgun myndi styðja við byggingariðnaðinn og gera þeim kleift að halda áfram að byggja, byggingarstarfsfólk héldi vinnu, þekking og atvinnutæki héldust innan greinarinnar. Stöðugra húsnæðisverð Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma. Þegar næsta uppsveifla hefst gætu sveitarfélög selt hluta af eignasafni sínu aftur inn á markaðinn og þannig aukið framboð þegar mest reynir á. Það myndi draga úr verðbólguskoti á fasteignamarkaði sem hefur verið endurtekið vandamál hér á landi. Nettó kostnaður sveitarfélaga með þessari nálgun þarf ekki að vera mikill. Betra húsaleiguverð Þessi leið myndi styrkja leigumarkaðinn. Með auknu framboði á leiguíbúðum þegar þörfin er mest myndi húsaleiga lækka eða að minnsta kosti hækka hægar, sem skiptir verulegu máli fyrir heimili sem ekki eru í stöðu til að kaupa. Fjármögnun er auðveld Fjármögnun sveitarfélaga til húsnæðiskaupa ætti ekki að vera flókin. Lífeyrissjóðir og bankar hafa bæði bolmagn og hagsmuni af stöðugum húsnæðismarkaði. Þeir fjármagna nú hvort sem er byggingu og kaup fólks á íbúðum að miklu leyti. Hér væri því bara um flutning lána frá byggjendum til sveitarfélaga og síðar til almennara húsnæðiskaupenda. Hugsum til framtíðar Það sem hér er lagt til er í raun ekki róttæk hugmynd. Húsnæðismarkaður sem sveiflast á milli skorts og offramboðs er ekki náttúrulögmál. Með markvissum aðgerðum er hægt að skapa meiri stöðugleika og betri lífskjör. Spurningin er ekki hvort við höfum efni á því að grípa inn í. Spurningin er hvort við höfum efni á því að gera það ekki. Höfundur er viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar