Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar 1. maí 2026 14:46 Ójöfnuður er til staðar á Íslandi og hefur veruleg áhrif á líf fólks. Helmingur alls auðs er í höndum tíu prósent landsmanna. Á sama tíma búa þúsundir barna við fátækt. Þegar auður og völd safnast á hendur fárra skapast skekkja sem bitnar á samfélaginu í heild. Þetta sjáum við skýrt í húsnæðismálum, þar sem fólk á í erfiðleikum með að finna heimili á meðan íbúðir standa tómar og eru notaðar sem fjárfesting. Húsnæðisstefnur sveitarfélaga sem forgangsraða óhagnaðardrifinni húsnæðisuppbyggingu og sanngjörn skattheimta eru lykilatriði í að tryggja réttlátara samfélag. Til þess að slíkt verði að veruleika þurfum við nógu sterkt afl sem sameinast um slíkar áherslur. Lausnin liggur í samstöðu. Þegar við leiðum hugann að því þá erum við flest nær því að lenda í fjárhagsvanda en að sjá nafn okkar birtast á hátekjulista. Þess vegna er það hagur okkar að sameinast gegn ójöfnuði og óréttlæti hvar sem slíkt birtist. Þegar við erum sundruð beinist athyglin ekki að rót vandans, sem er misskipting auðs og tekna þar sem þeir ríkustu halda áfram að græða á meðan við hin stöndum í stað eða bætum við okkur skuldum. Við sem myndum þetta samfélag komum úr ólíkum áttum, með því að standa saman getum við haft raunveruleg áhrif og skapað betra samfélag fyrir okkur öll. Vinstrið stendur með ólíkum hópum líkt og eftirlaunafólki, harkandi leigubílstjórum, öryrkjum, fátæku fólki, hinsegin samfélaginu, sísparandi millistéttinni sem á samt aldrei pening, innflytjendum, einstæðum foreldrum, þeim sem berjast fyrir kvenfrelsi, náttúruverndarsinnum og blönkum núðlukaupandi stúdentum. Það sem sameinar veruleika ólíkra hópa er sú staðreynd að ójöfnuður og óréttlæti ógna frelsi okkar allra. Þegar við stöndum saman erum við sterkari og getum skapað samfélag sem er réttlátara og mannúðlegra. Þess vegna býður Vinstrið fram fyrir þig, fyrir Reykjavík og fyrir okkur öll. Ég trúi því að við séum öll betur sett í jafnara samfélagi og að sveitarstjórnarstigið skipti þar sköpum. Ef þú tekur undir hvet ég þig til að leggja þitt á vogarskálarnar með því að kjósa Vinstrið í komandi sveitarstjórnarkosningum. Með því að setja X við A styrkjum við rödd þeirra sem vilja sanngjarnara samfélag. Vinstrið býður fram fjölbreytt fólk með fjölbreytta reynslu og þannig viljum við tryggja að sem flestar raddir komi að borðinu þar sem ákvarðanir eru teknar. Gerum þetta saman! Höfundur er borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins í kosningum í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar