Frelsið til að eiga heimili Guðný María Jóhannsdóttir skrifar 4. maí 2026 11:01 Séreignarstefnan – eða áhersla á að sem flestum sé gert kleift að eiga eigið húsnæði hefur lengi verið hornsteinn í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Séreignastefnan er frelsisstefna. Að gera launafólki kleift að búa við fjárhagslegt sjálfstæði. Frelsið er nefnilega kjarninn í okkar málflutningi, hvort sem um ræðir samgöngur, leikskólamál eða atvinnulífið. Sama gildir um húsnæðismarkaðinn. Þess þarf að gæta að hið opinbera búi ekki þannig um hnútana að fólk hafi ekki raunverulegt frelsi til að haga sinni búsetu eins og það kýs. Fólk vill eiga Í nýlegri könnun HMS kom fram að tæplega níu af hverjum tíu vilja helst af öllu búa í eigin húsnæði. Stjórnmálamönnum hættir þó til að sjá heiminn með pólitískum kreddugleraugum. Því miður virðist Samfylkingin í Reykjavík hafa fallið í þá gryfju. Húsnæðisuppbygging verður nefnilega að taka mið af því hvernig fólk vill raunverulega búa, en ekki því hvernig stjórnmálamenn telja að við eigum að búa. Of stór hluti þeirra nýju hverfi sem skipulögð hafa verið í borginni eru eyrnamerkt svokölluðum „óhagnaðardrifnum leigufélögum“ eða félagslega kerfinu. Rekstur Félagsbústaða hefur í þokkabót verið ósjálfbær lengi, og reikningar fegraðir með matsbreytingum. Við verðum að vinda ofan af þessu og gera fólki kleift að eignast heimili. Byggjum fyrir fólkið Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins, og getur sem slíkt haft mest áhrif á húsnæðisuppbyggingu í landinu. Kjörnir fulltrúar í Reykjavík bera því ríka ábyrgð og eiga að stuðla að hér sé byggt húsnæði sem fólk vill eignast. Við þurfum að vinda ofan af óhóflegri þétttingu, og breyta skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal þannig þau mæti þeim kröfum sem borgarbúar gera í raun. Við íbúðir þurfa að vera næg bílastæði. Við viljum sömuleiðis hefja uppbyggingu íbúðahverfa í Geldinganesi og úti á Granda á landfyllingum. Nýjum lóðum á að úthluta í Gufunesi. Stór kostnaðarliður við uppbyggingu húsnæðis í borginni er fjármagnskostnaður sem hleðst upp meðan beðið er svara frá Reykjavíkurborg. Nauðsynlegt er að þjónustuvæða embætti skiplagsfulltrúa og byggingafulltrúa og tryggja skilvirka þjónustu. Erindum á að svara fljótt og örugglega. Húsnæðisuppbygging tekur vitaskuld tíma, en þetta er einfalt atriði sem kippa má strax í liðinn. Gerum öllum kleift að eignast húsnæði. Hröðum uppbyggingu, vindum ofan af óhóflegri þéttingu, drögum úr opinberum afskiptum og treystum markaðnum til að þróa lausnir sem eftirspurn er eftir. Höfundur skipar 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðný María Jóhannsdóttir Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Séreignarstefnan – eða áhersla á að sem flestum sé gert kleift að eiga eigið húsnæði hefur lengi verið hornsteinn í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Séreignastefnan er frelsisstefna. Að gera launafólki kleift að búa við fjárhagslegt sjálfstæði. Frelsið er nefnilega kjarninn í okkar málflutningi, hvort sem um ræðir samgöngur, leikskólamál eða atvinnulífið. Sama gildir um húsnæðismarkaðinn. Þess þarf að gæta að hið opinbera búi ekki þannig um hnútana að fólk hafi ekki raunverulegt frelsi til að haga sinni búsetu eins og það kýs. Fólk vill eiga Í nýlegri könnun HMS kom fram að tæplega níu af hverjum tíu vilja helst af öllu búa í eigin húsnæði. Stjórnmálamönnum hættir þó til að sjá heiminn með pólitískum kreddugleraugum. Því miður virðist Samfylkingin í Reykjavík hafa fallið í þá gryfju. Húsnæðisuppbygging verður nefnilega að taka mið af því hvernig fólk vill raunverulega búa, en ekki því hvernig stjórnmálamenn telja að við eigum að búa. Of stór hluti þeirra nýju hverfi sem skipulögð hafa verið í borginni eru eyrnamerkt svokölluðum „óhagnaðardrifnum leigufélögum“ eða félagslega kerfinu. Rekstur Félagsbústaða hefur í þokkabót verið ósjálfbær lengi, og reikningar fegraðir með matsbreytingum. Við verðum að vinda ofan af þessu og gera fólki kleift að eignast heimili. Byggjum fyrir fólkið Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins, og getur sem slíkt haft mest áhrif á húsnæðisuppbyggingu í landinu. Kjörnir fulltrúar í Reykjavík bera því ríka ábyrgð og eiga að stuðla að hér sé byggt húsnæði sem fólk vill eignast. Við þurfum að vinda ofan af óhóflegri þétttingu, og breyta skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal þannig þau mæti þeim kröfum sem borgarbúar gera í raun. Við íbúðir þurfa að vera næg bílastæði. Við viljum sömuleiðis hefja uppbyggingu íbúðahverfa í Geldinganesi og úti á Granda á landfyllingum. Nýjum lóðum á að úthluta í Gufunesi. Stór kostnaðarliður við uppbyggingu húsnæðis í borginni er fjármagnskostnaður sem hleðst upp meðan beðið er svara frá Reykjavíkurborg. Nauðsynlegt er að þjónustuvæða embætti skiplagsfulltrúa og byggingafulltrúa og tryggja skilvirka þjónustu. Erindum á að svara fljótt og örugglega. Húsnæðisuppbygging tekur vitaskuld tíma, en þetta er einfalt atriði sem kippa má strax í liðinn. Gerum öllum kleift að eignast húsnæði. Hröðum uppbyggingu, vindum ofan af óhóflegri þéttingu, drögum úr opinberum afskiptum og treystum markaðnum til að þróa lausnir sem eftirspurn er eftir. Höfundur skipar 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun