Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir og Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifa 4. maí 2026 15:30 Það skiptir máli hvernig samfélag mætir eldra fólki. Í Hveragerði eru einstök tækifæri til að byggja upp þjónustu sem styður við sjálfstæði, öryggi og lífsgæði. Hér eru stuttar vegalengdir, gott aðgengi að þjónustu og samfélag sem tekur virkan þátt. Sem hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu á öldrunarhjúkrun og daglega reynslu af starfsemi heilsugæslu og heimahjúkrunar þekkjum við vel styrkleika kerfisins, en sjáum líka hvar tækifæri liggja til úrbóta. Á kjörtímabilinu var hrint af stað verkefninu „Gott að eldast“ í Hveragerði. Markmið þess er að samræma þjónustu við eldri einstaklinga þannig að hún verði heildstæðari, aðgengilegri og betur sniðin að þörfum hvers og eins. Í stað þess að fólk þurfi sjálft að rata á milli kerfa er þjónustan tengd betur saman og samhæfð af aðilum úr heilbrigðis- og félagsþjónustu ásamt öðrum stuðningsúrræðum. Þessi samþætta nálgun eykur öryggi, einfaldar aðgengi og styður fólk til að búa lengur heima við sem best lífsgæði. Hér hefur þegar verið stigið mikilvægt skref og smæð samfélagsins er þar helsti styrkurinn. Stuttar boðleiðir, gott aðgengi og skýr yfirsýn gera þjónustuna skilvirkari og persónulegri. En það sem skiptir ekki síður máli er það öfluga og metnaðarfulla starfsfólk sem stendur á bak við verkefnið í daglegu starfi. Það eru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, félagsliðar, iðjuþjálfar og annað fagfólk sem vinnur þétt saman, þekkir einstaklingana og mætir þeim þar sem þeir eru staddir hverju sinni. Með fagmennsku, frumkvæði og einlægum áhuga á velferð eldra fólks verður verkefnið að veruleika á hverjum einasta degi. Þessi mannlegi þáttur er kjarninn í góðri þjónustu og lykillinn að því að samþætting skili raunverulegum árangri. En við megum ekki staðna. Verkefnið þarf áframhaldandi stuðning og markvissa þróun, og við í Framsókn munum leggja okkar af mörkum til að tryggja að svo verði. Farsæl öldrun hefst löngu áður en þörf verður á umfangsmikilli þjónustu. Við viljum leggja aukna áherslu á heilsueflingu, vellíðan og virkni eldra fólks. Heilsuefling snýst ekki eingöngu um hreyfingu heldur einnig um félagsleg tengsl, andlega líðan, öflugar forvarnir og öryggi í daglegu lífi. Við í Framsókn ætlum að innleiða frístundastyrk fyrir eldra fólk til að draga úr einangrun og styðja við sjálfstætt og virkt líf til lengri tíma. Aðgengismál þurfa jafnframt að vera í forgangi. Sundlaugin og heilsuræktin gegna lykilhlutverki í heilsueflingu en þar þarf að tryggja raunverulegt aðgengi fyrir alla. Þetta er mál sem kallað hefur verið eftir að verði tekið fastari tökum og við ætlum að bregðast við því. Samgöngur skipta sköpum. Fyrir margt eldra fólk er lykilatriði að komast leiðar sinnar á öruggan, einfaldan og aðgengilegan hátt. Hvort sem er í verslun, á heilsugæslu, í sund eða í félagsstarf. Núverandi akstursþjónusta nýtist ákveðnum hópi vel en nær ekki til allra. Við viljum skoða raunhæfar leiðir til úrbóta, til dæmis með innanbæjarstrætó eða sambærilegum lausnum sem auka öryggi og nýtast öllum íbúum Hveragerðis. Við trúum því að bestu lausnirnar verði ekki til nema í nánu samstarfi við það fólk sem þjónustan snýr að. Íbúaþing 60+, sem haldið var á vegum Öldungaráðs í fyrra, sýndi skýrt að eldri íbúar vilja hafa áhrif og taka virkan þátt. Við viljum vinna með eldra fólki en ekki aðeins fyrir það. Raddir þeirra þurfa að hafa raunverulegt vægi við mótun stefnu og ákvarðana. Síðasta vetur var skipaður starfshópur vegna þjónustukjarna eldri borgara. Í hópnum áttu sæti fulltrúar frá félagi eldri borgara, starfsmaður Hveragerðisbæjar ásamt fulltrúum frá hverju stjórnmálaafli. Hópurinn kynnti niðurstöður sínar fyrir bæjarstjórn nú í apríl. Með þessari vinnu voru stigin mikilvæg skref en þetta er aðeins byrjun. Nú þarf að fylgja þessu eftir af festu, með skýra sýn um samþætta þjónustu, aukið aðgengi og betri nýtingu úrræða. Þar liggja raunveruleg tækifæri til framfara. Eldra fólk er ekki einsleitur hópur heldur fjölbreyttur og öflugur hluti samfélagsins með reynslu, þekkingu og vilja til þátttöku. Það er mikilvægt að þessi hópur verði ekki jaðarsettur í eigin bæjarfélagi. Við viljum skapa aðstæður þar sem þeirra reynsla fær að njóta sín, þar sem fólk hefur raunveruleg áhrif og getur áfram tekið virkan þátt í samfélaginu. Skilaboðin sem við höfum heyrt í aðdraganda kosninga eru skýr: „Nú er komið að okkur.“ Við tökum heilshugar undir það. Nú þarf að fylgja þeim orðum eftir með aðgerðum og við í Framsókn erum tilbúin að gera það. Markmiðið er skýrt - Að tryggja að það sé sannarlega gott að eldast í Hveragerði. Höfundar greinarinnar eru Berglind Rós Ragnarsdóttir, hjúkrunarstjóri á Heilsugæslunni í Hveragerði og Þorlákshöfn (HSU) og fulltrúi Öldungaráðs í Hveragerði, og Sæbjörg Lára Másdóttir, hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun og heimaspítala HSU, varaformaður í velferðar- og fræðslunefnd Hveragerðisbæjar og skipar 5. sæti á lista Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar