Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar 6. maí 2026 20:02 Í samfélagi eins og hér í Mosfellsbæ skiptir jafnrétti miklu máli á öllum sviðum. Jafnrétti snýst um að öll hafi jöfn tækifæri til þátttöku, aðgengis að þjónustu og að njóta virðingar, óháð kyni, kynhneigð, uppruna, aldri, fötlun eða öðrum þáttum sem geta haft áhrif á stöðu fólks í samfélaginu. Mosfellsbær er með samning við Samtökin ’78 um fræðslu, sem er mikilvægt og jákvætt skref í átt að aukinni fræðslu og skilningi á hinseginleika í samfélaginu, og er það þróun sem vert er að fagna. Þetta á sérstaklega vel við núna, þar sem að hinseginfólkið okkar á Íslandi er að upplifa meiri fordóma núna en undanfarin ár. Samkvæmt PISA 2022 lýsa íslenskir nemendur almennt jákvæðri upplifun af skólanum, með góðum stuðningi kennara og mikilli þrautseigju miðað við jafnaldra í OECD-ríkjum. Hins vegar mælast þau undir meðaltali í samkennd og samvinnu, sem bendir til þess að styrkja megi félagslega færni og samskipti innan skólasamfélagsins. Mikilvægt er að hafa það í huga að við fullorðna fólkið erum fyrirmyndir fyrir börnin okkar og erum sterkustu félagsmótunaraðilarnir í lífi þeirra. Við fullorðna fólkið þurfum að stíga aðeins til baka og anda djúpt og sýna hversu mikilvægt það er í samfélagi að sýna samkennd og hlusta á alla hópa. Við erum samfélag, saman í félagi. Mín reynsla sem kennari er að nemendurnir mínir eru virkilega góð í samkennd. Stundum þurfum við fullorðnu að kenna og útskýra, en börn eru í grunninn góð og vilja öðrum vel. Í stjórnsýslu sveitarfélagsins birtist jafnrétti í því hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig þjónusta er veitt. Mikilvægt er að raddir allra hópa heyrist en ekki aðeins þeirra sem oftast fá tækifæri til að tjá sig. Við stefnumótun þarf að spyrja sig að því ,,hver fær ekki að tjá sig?”. Hver gæti upplifað sig útundan? Með markvissri vinnu að jafnréttismálum í stjórnsýslu má skapa traustari tengsl milli íbúa og sveitarfélags og tryggja að þjónustan nýtist raunverulega öllum. Mikilvægt er að gleyma ekki hópunum okkar sem þurfa mikið á rödd bæjarfulltrúanna sinna að halda. Í allri menntun er jafnrétti og jafnræði sérstaklega mikilvægt. Skólar eru ekki aðeins vettvangur fyrir nám í stærðfræði og í tungumálum, heldur líka fyrir mótun samfélagslegra gilda. Börn og ungmenni móta skilning sinn á heiminum í skólaumhverfinu og þar skiptir máli að sú upplifun sé af öryggi, virðingu og þau þurfa að finna það að þau tilheyri skólasamfélaginu. Þegar rætt er um jafnrétti eða jafnræði þá felur það í sér að vinna gegn einelti, stuðla að fjölbreytileika í kennsluefni og tryggja að öll kyn og fjölbreyttar fjölskyldugerðir séu sýnileg og eðlilegur hluti af samtalinu. Okkur á öllum að fá að líða vel. Hinseginleiki er mikilvægur hluti af þessu samtali. Að vera hinsegin er ekki eitthvað sem þarf að fela eða að fylgja því skömm. Hinseginleiki er einfaldlega hluti af mannlegum fjölbreytileika. Þegar samfélag eins og Mosfellsbær sýnir skýrt að hinsegin fólk er velkomið hefur það raunveruleg áhrif á líðan, sjálfsmynd og öryggi, sérstaklega hjá ungu fólki sem er að finna sinn stað í heiminum. Eins og ég sagði hér að ofan ,,Okkur öllum á að líða vel”. Jafnrétti þarf einnig að endurspeglast í menningu og daglegum viðhorfum. Jafnrétti birtist í orðavali, að hlusta, virða og í viðbrögðum okkar við mismunun. Rannsóknir sýna að, bara það, að stöðva hatursorðræðu hefur gríðarleg áhrif á andlega heilsu ungmenna í minnihlutahópum. Við þurfum að leiðrétta rangfærslur, bjóða fólk velkomið eins og það er og sýna virðingu í samskiptum. Mosfellsbær hefur tækifæri á því að halda áfram að að bæta sig í að vera samfélag þar sem fjölbreytileiki er styrkur og þar sem öll sem þar búa, óháð bakgrunni eða sjálfsmynd, finna að þau tilheyri, hafi áhrif og geta upplifað að rödd þeirra skipti máli. Slíkt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það krefst samtals, vilja og vinnu. Við verðum að halda áfram að vera gott samfélag þar sem fólk getur verið það sjálft, tekið þátt á eigin forsendum og lifað með reisn og af virðingu. Græðum við ekki öll á því? Höfundur er kennari og frambjóðandi fyrir Vini Mosfellsbæjar. Heimildir Goldbach, J. T., Rhoades, H., Mamey, M. R., Senese, J., Karys, P., & Marsiglia, F. F. (2021). Reducing behavioral health symptoms by addressing minority stressors in LGBTQ adolescents: A randomized controlled trial of Proud & Empowered. BMC Public Health, 21, 2315.https://doi.org/10.1186/s12889-021-12357-5 Menntamálastofnun. (2023). PISA 2022: Helstu niðurstöður á Íslandi.https://mms.is/sites/mms.is/files/pisa_2022_helsta_island.pdf? Ríkisútvarpið (RÚV). (2026, 30. apríl). Það þarf bara eitt svona atvik til þess að ég sé ekki hérna lengur. https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-04-30-thad-tharf-bara-eitt-svona-atvik-til-thess-ad-eg-se-ekki-herna-lengur-473953 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Skoðun Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar