Franskur floti á leið til Persaflóa Samúel Karl Ólason og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 7. maí 2026 09:14 Mynd af þilfari flugmóðurskipsins Charles de Gaulle í Súesskurðinum í gær. Franski herinn Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu.
Olíuverð hækkaði lítillega á ný á Asíumörkuðum í morgun eftir lækkanir gærdagsins. Eftir að Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í vikunni að aðgerðum á Hormussundi hefði verið frestað og að góðar líkur væru á friðarsamningum við Íran lækkaði verðið töluvert í gær. Í dag virðast menn hins vegar orðnir efins um að nokkuð hafi verið að marka þau ummæli og því hefur verðið þokast upp á við á ný, um tæpt prósent það sem af er dags. Þegar líða tók á daginn í gær kom í ljós að Íranir hafa ýmislegt að athuga við friðartillögur Bandaríkjamanna sem eru í fjórtán liðum. Sjá einnig: Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Þá sagði Trump í gær að enn væri of snemmt að halda beinar viðræður á milli ríkjanna tveggja. Ísraelar gerðu síðan árásir á Beirút, höfuðborg Líbanon, í gærkvöldi, þær fyrstu sem gerðar eru á höfuðborgina síðan þeir sömdu um vopnahlé í Líbanon þann 16. apríl síðastliðinn. Sjá einnig: Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Skotmark þeirra mun hafa verið íbúð hátt setts Hezbollah-liða og segir Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels að hann hafi sjálfur heimilað árásina. Nú í morgun sögðu talsmenn hersins að tveir háttsettir leiðtogar Hezbollah hefðu fallið í árásunum. Ætla ekki að taka þátt í átökum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði á X í gær að hann hefði fundað með Massoud Pezeshkian, forseta Íran, þar sem hann hefði fordæmt árásir Írana á borgaralega innviði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og árásir á flutningaskip á Persaflóa. Um níu hundruð franskir hermenn eru í furstadæmunum þar sem þeir hafa komið að því að skjóta niður dróna og eldflaugar frá Íran. Þá sagði forsetinn franski að allir aðilar þyrftu að opna Hormússundið á nýjan leik og það skilyrðislaust. Frelsi til siglinga yrði að vera tryggt. Þá vísaði Macron til fjölþjóðaverkefnis sem Frakkar og Bretar stýra og ætlað er að auka traust stjórnenda flutningafyrirtækja og forsvarsmanna tryggingafélaga. Hann sagðist vonast til þess að flugmóðurskipið franska og fylgifloti þess myndi hjálpa til með það. Auk flugmóðurskipsins eru átta freigátur og tvö skip sem hönnuð eru til að flytja hermenn í flotanum. Macron ítrekaði að flotanum væri ekki ætlað að taka þátt í átökunum í Mið-Austurlöndum. Macron sagði einnig að þegar friður væri kominn á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar, væri hægt að eiga í frekari viðræðum um kjarnorkuáætlun Íran, eldflaugar og önnur málefni. Evrópa myndi taka þátt í því. Je viens de m’entretenir avec le Président iranien Massoud Pezeshkian.J’ai marqué ma vive préoccupation sur l'escalade en cours, et condamné les frappes injustifiées contre les infrastructures civiles émiriennes et plusieurs navires.Toutes les parties doivent lever le blocus…— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) May 6, 2026 Í samtali við AP fréttaveitunna sagði talsmaður formanns herforingjaráðs Frakklands að hið alþjóðlega samstarf um Hormússund, sem Frakkar og Bretar hefðu myndað og rúmlega fimmtíu þjóðir tækju þátt í, myndi ekki hefja störf fyrr en búið væri að draga úr ógninni á Hormússundi. Þá þyrftu þau ríki sem liggja við Persaflóa að samþykkja veru flotans á svæðinu. Íran er þar á meðal. 📍Canal de Suez | Le Groupe Aéronaval en océan Indien 🗺️ Face à l'évolution du contexte international à Ormuz le groupe aéronaval fait désormais route vers la mer Rouge et le golfe d'Aden ⚓️Prépositionnement d’une capacité unique en Europe, visant à rassurer et à renforcer la… pic.twitter.com/sVSXo5svxl— Armée française - Opérations militaires (@EtatMajorFR) May 6, 2026
Frakkland Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira