Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson, Berglind Friðrikisdóttir, Pálmi Þór Ásbergsson og Bryndís Sigurðardóttir skrifa 7. maí 2026 13:01 Alma Möller heilbrigðisráðherra var gestur á fundi Samfylkingar og félaga um málefni eldra fólks í Ölfusi sem fór fram í gær, miðvikudag. Hún hélt erindi um áherslur sínar og ríkisstjórnarinnar í málaflokknum og sagði meðal annars frá þjóðarátaki um uppbyggingu hjúkrunarheimila sem hefur verið á fleygiferð. Eftir erindi hennar var opnað fyrir umræður og þar var hún spurð út í stöðuna á hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn en stjórnvöld í Sveitarfélaginu Ölfusi hafa fullyrt að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn. Svarið hennar var mjög skýrt. Þorlákshöfn er ekki á framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila og það hefur ekkert erindi borist frá Sveitarfélaginu Ölfusi eða ósk um viðræður þess efnis. Hún sagði jafnframt að það væri forsenda fyrir því að verkefni kæmist á framkvæmdaáætlun til ársins 2030 að sýnt væri fram á þörfina á hjúkrunarheimili og það væru oftar en ekki sveitarfélög sem gerðu það með erindi til ráðuneytanna, það er ríkið sem greiðir fyrir þjónustuna með samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Í fréttatilkynningu frá 23. september 2025 þegar fullyrt var að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn var jafnframt sagt að hjúkrunarheimilið væri ,,órjúfanlegur hluti af stærra þróunarverkefni sem nær einnig til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis við Óseyrarbraut”. Þessi fullyrðing var svo hrakin á íbúafundi sem haldinn var um fasteignaverkefnið í október síðastliðnum, þegar aðilarnir á bakvið það voru spurðir beint út í það hvort rétt væri að hjúkrunarheimilið væri órjúfanlegur hluti af fasteignaverkefninu. Fyrirtækið gat ekki staðfest það. Fasteignaverkerkefnið er virkilega umdeilt. Það á að byggja 155 íbúðir ofan í hafnarsvæðinu sem takmarkar verulega þróun þess og býður hættunni heim varðandi átök íbúa og atvinnusvæðis þegar kemur í ljós sem víst er, að það verði ekki hægt að búa svo nálægt umsvifamikilli inn- og útflutningshöfn með mikilli gámaumferð, svolítið eins og að byggja íbúðahverfi ofan í Sundahöfn. Íbúar í gamla hverfinu svo kallaða eru líka margir mjög ósáttir við þessa fyrirætlan. Í Ölfusi eru 266 íbúðir á byggingarstigi samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og 174 íbúðir til sölu í Ölfusi dag og ljóst að ekki er þörf á að fara í þéttingarstefnu eins og þessa. Í Ölfusi er nóg af landsvæði. Samfylkingin og félagar leggja áherslu á samstarf sem hefur skort verulega á síðustu ár hjá meirihluta Sjálfstæðisflokks. Það er einlægur vilji okkar að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn og við ætlum að beita okkur fyrir því í góðu samstarfi við ríkið. Þá ætlum við líka að koma í veg fyrir að þrengt verði að höfninni með þessu skipulagsslysi sem er í uppsiglingu hjá Sjálfstæðisflokknum. Hér er mynd af fasteignaverkefninu Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti Samfylkingar og félaga Berglind Friðrikisdóttir, 2. sæti Pálmi Þór Ásbergsson, 3. sæti Bryndís Sigurðardóttir, 4. sæti Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar