Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar 8. maí 2026 07:40 Nú þegar frambjóðendur til sveitarstjórna kynna áherslur sínar fyrir komandi kosningar er mikilvægt að minna á eitt mikilvægasta samfélagsverkefni nútímans, sem er að byggja sveitarfélög þar sem öll fá raunveruleg tækifæri til að tilheyra, taka þátt og blómstra. Þar skipta innflytjendur, börn þeirra og fjölskyldur miklu máli. Sveitarfélög eru oft fyrsti snertiflötur margra við íslenskt samfélag. Þar eru leikskólarnir, grunnskólarnir, frístundastarfið, íþróttafélögin, bókasöfnin og félagsmiðstöðvarnar. Það er mikilvægt að styðja innflytjendur með markvissum hætti. Fólkið sem býr hér, vinnur, elur upp börn sín, greiðir skatta og tekur þátt í daglegum viðfangsefnum sveitarfélaganna með mismunandi hætti. Þegar fólk fær tækifæri til að læra tungumálið, skilja kerfið, taka þátt í félagslífi og upplifa að það sé velkomið verður samfélagið sterkara. Börn sem upplifa að þau tilheyri ná frekar árangri í námi, verða virkari í félagsstarfi og íþróttum og þróa með sér heilbrigða sjálfsmynd. Ávinningurinn af því skilar sér til allra. Góð almenn þátttaka í samfélaginu og félagsleg tengsl eru grunnur að heilbrigðu samfélagi fyrir okkur öll. Börn innflytjenda eru hluti af framtíð Íslands. Þau eru bekkjarfélagar, liðsfélagar, vinir, nágrannar og framtíðarstarfsfólk, frumkvöðlar, leiðtogar og foreldrar. Til þess að þau nái að blómstra samfélaginu til hagsbóta þurfa sveitarfélög að huga sérstaklega að inngildingu í skóla- og frístundastarfi. Það þarf að tryggja að upplýsingar berist til foreldra með skýrum og aðgengilegum hætti. Það þarf að styðja starfsfólk skóla og stofnana í fjölmenningarlegu starfi. Finna þarf skýringu á því hvers vegna börn með erlendan bakgrunn nýta ekki frístundastyrk sveitarfélaganna til jafns við jafnaldra sína. Það þarf að skapa vettvang þar sem fjölskyldur af ólíkum uppruna geta hist, myndað félagsleg tengsl og byggt upp gagnkvæmt traust. Fjölbreytt samfélag verður ekki sjálfkrafa inngildandi samfélag. Til þess að svo verði þarf að vera til staðar meðvituð stefna, hún innleidd og henni fylgt eftir. Frambjóðendur til sveitarstjórna ættu því að spyrja sig hvernig tryggja megi að öll börn fái jöfn tækifæri í skólum og frístundum. Hvernig styðja megi foreldra sem eru að fóta sig í nýju samfélagi. Hvernig þjónusta sveitarfélagsins verði aðgengileg fólki með ólíkan bakgrunn og hvernig byggja megi brýr milli ólíkra hópa í stað þess að leyfa vantrausti að vaxa. Styrkleiki sveitarfélaga verður ekki einungis mældur í umfangi framkvæmda eða fjárhagsstöðu. Hann mælist líka í því hversu vel þau ná að virkja mannauðinn sem þar býr. Að fjárfesta í inngildingu er að fjárfesta í börnum, fjölskyldum, menntun, vinnumarkaði, félagsauði og framtíðinni. Það er leið til þess að byggja samfélag þar sem allir geta lagt sitt af mörkum og finna að framlag þeirra skipti máli. Höfundur er varaformaður faghóps um fjölbreytileika og inngildingu hjá Stjórnvísi og skrifar í nafni faghópsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar