Dreifing byggðar ýtir fólki inn á áhættusvæði Guðni Freyr Öfjörð skrifar 11. maí 2026 13:10 Nýjar skýrslur Veðurstofu Íslands um hraunavá hafa verið að birtast og er umræðan því mjög tímabær, sérstaklega núna rétt fyrir kosningar. Þétting byggðar snýst ekki lengur eingöngu um að minnka umferð, færa þjónustu og atvinnu nær fólki eða gera almenningssamgöngur skilvirkari. Hún snýst einnig um öryggi: Ætlum við að halda áfram að dreifa byggðinni og byggja á hættusvæðum vegna eldgosa? Gamlar lausnir á nýjum vandamálum Höfuðborgarsvæðið er nú þegar mjög dreift. Reykjavík er dreifð borg, sérstaklega í samanburði við margar evrópskar höfuðborgir af svipaðri stærð. Að mínu mati eigum við að halda áfram að þétta byggð og byggja inn á við. Það þarf að gera vel, með áherslu á birtu, græn svæði og gæði íbúða. Til þess er borgarhönnunarstefna Pírata komin fram. Staðan í dag kallar einfaldlega á endurskoðun á þeirri dreifingarstefnu höfuðborgarsvæðisins sem mótaði skipulag síðustu aldar. Eitt af því sem vekur athygli mína er að í Hafnarfirði virðist uppbygging halda áfram á svæðum sem sérfræðingar hafa varað við, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar. Mér finnst almannahagsmunir ekki fá nægilegt vægi í þeim ákvörðunum. Í nýlegri grein á Vísi skrifar Orri Björnsson meðal annars: „Vandinn liggur ekki í skorti á vilja til uppbyggingar í Hafnarfirði, heldur í þeim skorðum sem settar hafa verið. Þær skorður skrifast á vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins og andstöðu vinstri flokkanna í sveitarstjórnum, sér í lagi í borgarstjórn Reykjavíkur, til að gera nauðsynlegar breytingar.“ Ari, oddviti Miðflokksins, tók nýverið í sama streng og kallaði eftir því að vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins yrðu víkkuð enn frekar. Með öðrum orðum: Hann vill byggja á áhættusvæðum. Píratar hlusta á sérfræðinga Píratar eru hluti af meirihluta í Reykjavík og við deilum ekki sýn Orra og Ara. Þvert á móti höfum við lagt áherslu á langtímahugsun, forgangsröðun í þágu almannahagsmuna og höfnun á plásturslausnum. Við viljum byggja borg sem er bæði mannvæn og sjálfbær, og við höfnum því að byggja á áhættusvæðum. Við hlustum á sérfræðinga. Þess vegna hafna Píratar því að víkka út vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins. Í ljósi nýs hættumats verðum við að horfast í augu við að útþensla ýtir fólki inn á áhættusvæði. Ef við víkkum áfram vaxtarmörkin neyðumst við til að byggja lengra frá miðjunni, inn á ósnortin svæði sem mörg hver liggja á eldvirkum svæðum. Á sama tíma eru fjölmörg tækifæri innan núverandi byggðar. Þar má nefna Ártúnshöfða og þau tækifæri sem skapast þegar stofnbrautir fara í stokk eða göng, sem losar um verðmætt land fyrir íbúðir og atvinnustarfsemi á yfirborði. Auk þess eru gífurleg tækifæri í nýtingu ríkislóða þar sem hægt er að byggja á þéttingarreitum á bestu stöðum borgarinnar, nær þjónustu, og svo er það auðvitað stærsta tækifærið: Vatnsmýrin. Loftslagsbreytingar og landfyllingar Píratar hafna uppbyggingu á landfyllingum þar sem flóðahætta er mikil. Vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum vitum við að sjávarmál fer hækkandi og aftakaveður verða tíðari. Það er því glapræði að halda áfram að teygja byggðina út í sjó á dýrum landfyllingum sem munu krefjast enn dýrari varnargarða í náinni framtíð. Þrátt fyrir tal hægri flokkanna um aðhald og minni opinber afskipti, er samt lagt til að ráðast í eina dýrustu tegund uppbyggingar sem til er, landfyllingu á Granda og víðar. Með því er verið að byggja vanda inn í kerfið og senda reikninginn til komandi kynslóða. Við eigum ekki að hanna ný hverfi sem eru í beinni andstöðu við náttúruöflin og vísindalegar spár um hækkun sjávar. Á sama tíma er dregin í efa uppbygging almenningssamgangna, sem eru lykilatriði fyrir sjálfbæran vöxt borga. Í staðinn er ýtt undir stórar og kostnaðarsamar framkvæmdir fyrir einkabílinn, sem kosta samfélagið gífurlegar fjárhæðir og taka verðmætt land undir malbik. Lærum af mistökum fortíðar Píratar hafna uppbyggingu í Geldinganesi, að minnsta kosti í náinni framtíð. Geldinganes gæti vel orðið eitt af framtíðarsvæðum borgarinnar, en fyrst ættum við að nýta það land sem nær stendur frekar en að dreifa byggðinni um of. Slík uppbygging yrði afar kostnaðarsöm fyrir borgina og borgarbúa, þar sem dreifð byggð er dýr í rekstri og viðhaldi. Við höfum séð dæmi um þetta í Gufunesi og Bryggjuhverfinu, þar sem íbúðir risu langt á undan nauðsynlegum innviðum og þjónustu. Borgin er enn að vinda ofan af þeirri þróun, sem hefur kostað bæði samfélagið og íbúa verulegar fjárhæðir. Að kalla eftir uppbyggingu í Geldinganesi núna er í raun að kalla eftir sömu mistökum og gerð voru í Gufunesi nema í enn stærri og dýrari skala. Ábyrgð í stað plásturslausna Við þurfum að hætta að treysta á skammtímalausnir. Skipulagsmál snúast um langtímahagsmuni og öryggi. Þétting byggðar snýst ekki lengur bara um styttri vegalengdir, skilvirkari almenningssamgöngur og minni umferð — hún snýst um ábyrgð. Píratar vilja takast á við rót vandans, en ekki setja plástur á afleiðingarnar sem framtíðarkynslóðir þurfa svo að borga fyrir. Við höfnum þeirri hugmyndafræði að einkavæða gróðann en ríkisvæða tapið. Þegar byggt er á áhættusvæðum hirða verktakar gróðann af sölunni, en samfélagið, í gegnum Náttúruhamfaratryggingu og skattfé, situr eftir með reikninginn þegar náttúran lætur til sín taka. Þessi nálgun hefur of lengi fengið að viðgangast hjá sumum flokkum. Píratar vilja byggja inn á við. Með því tryggjum við öryggi, hagkvæmni og lífsgæði til framtíðar. Höfundur skipar 9. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar