Ábyrg uppbygging og samheldið samfélag í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir og Þorsteinn Hjartarson skrifa 12. maí 2026 08:11 Á undanförnum árum hefur Hveragerði vaxið hratt og laðað til sín nýja íbúa sem vilja njóta þeirra lífsgæða sem bærinn hefur uppá að bjóða. Náttúran, grænu svæðin, blómin og samheldið samfélag eru meðal helstu styrkleika bæjarins. Þeir sem verða kosnir í bæjarstjórn verða að takast á við vöxt bæjarins af ábyrgð og mikilvægt er að uppbygging samfélagsins verði bæði skynsöm og sjálfbær. Skipulagsmál byggi á virku samtali við íbúa S-listinn leggur áherslu á að þróun bæjarins byggi á skýrri framtíðarsýn þar sem innviðir, þjónusta og skipulag haldast í hendur við íbúafjölgun. Við viljum ekki hraða uppbyggingu án þess að skólar, leikskólar, umferðarmál, íþróttir, tómstundir og önnur grunnþjónusta fylgi með. Skipulagsmál þurfa að byggja á fagmennsku og virku samtali við íbúana. Við ætlum að tryggja að börn og ungmenni búi við öryggi og styðjandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góða skóla, öflugt frístundastarf og jöfn tækifæri til þátttöku og þroska. Jafnframt þarf að hlúa að eldra fólki með góðri heimaþjónustu og enn fleiri tækifærum til þátttöku í samfélaginu svo fólk geti búið við öryggi og góð lífsgæði á efri æviárum. Ábyrg stjórnsýsla og rekstur Traust og ábyrg stjórnsýsla er forsenda fyrir heilbrigðu samfélagi. Rekstur bæjarfélagsins þarf að einkennast af ráðdeild, gagnsæi og skýrri forgangsröðun. Fjármunum bæjarins þarf að verja af ábyrgð þannig að þeir nýtist sem best til að efla þjónustu og bæta lífsgæði íbúa. Það skiptir máli að ákvarðanir séu alltaf teknar á faglegum grunni og að upplýsingagjöf til íbúa sé opin og aðgengileg. S-listinn vill efla faglega stjórnsýslu bæjarins þannig að hún sé vel í stakk búin til að mæta auknum verkefnum og þjónustuþörf samhliða vexti samfélagsins. Fagleg stjórnsýsla tryggir stöðugleika, eykur traust milli íbúa og bæjaryfirvalda og gerir sveitarfélaginu kleift að bregðast hratt og vel við þörfum íbúa og atvinnulífs. Samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi og samheldni Við á S-listanum ætlum að byggja upp samheldið samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi. Þess vegna þarf að hlúa að menningu, íþróttum, frístundastarfi og grænum svæðum samhliða annarri uppbyggingu. Það eru ekki aðeins húsin sem skapa góðan bæ — heldur fólkið, þjónustan og bæjarbragurinn. Framtíð Hveragerðis á að byggjast á ábyrgri uppbyggingu, faglegri stjórnsýslu og skýrri sýn á það hvernig bærinn þróast á næstu árum. S-listinn ætlar að vinna með íbúum að þeirri framtíðarsýn af miklum metnaði fyrir hönd allra sem hér búa. S-listinn í Hveragerði óskar eftir stuðningi þínum 16. maí næstkomandi. Greinarhöfundar skipa forystusæti S-listans í Hveragerði. Birgitta Ragnarsdóttir er í 1. sæti og Þorsteinn Hjartarson í 2. sæti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar