Fyrir og eftir Kópavogsmódelið Ásgeir Haukur Guðmundsson skrifar 12. maí 2026 11:50 Fyrir Kópavogsmódelið vorum við hjónin með dóttur okkar á leikskóla í Kópavogi. En áður en hún komst inn á leikskóla vorum við í miklum vandræðum með að finna pláss hjá dagmömmu. Konan mín var byrjuð að vinna aftur í fullu starfi, ég að klára fæðingarorlofið og þegar nokkrir dagar voru eftir af orlofinu voru dagvistunarmálin ennþá í lausu lofti. Það var því mikill léttir þegar við fengum skyndilega pláss hjá dagmömmu sem gat tekið dóttur okkar inn, en þó aðeins hálfan daginn. Við tók ákveðið púsluspil með pössunarpíum, ömmum og öfum. Eftir hálft ár af þessu fyrirkomulagi fékk dóttir okkar úthlutað leikskólaplássi, þá 16 mánaða gömul. Það var mikið fagnaðarefni fyrir okkur hjónin og fjölskylduna alla. Fyrsti veturinn gekk nokkuð áfallalaust. Stöku tölvupóstar frá leikskólastjóranum um að sækja fyrr annað slagið og nokkrar lokanir hér og þar, en ekkert sérstaklega íþyngjandi. Markmið leikskólans var að láta rask á starfseminni bitna sem minnst á yngstu börnunum. Veturinn á eftir – veturinn áður en Kópavogsmódelið var innleitt – var staðan miklu verri. Við vorum aftur komin í endalaust púsluspil. Endalausar lokanir vegna manneklu og veikinda og stöðugir póstar þar sem foreldrar voru beðnir um að sækja fyrr. Starfsfólkinu var mikil vorkunn, mönnunin var slæm, veikindin voru mikil og álagið ekki boðlegt. Einn morguninn þegar ég mætti með dóttur mína að leikskólanum var allt læst. Ég hafði ekki fengið neina tilkynningu, en á hurðinni hékk miði: „Lokað í dag vegna veikinda“. Eftir að Kópavogsmódelinu var komið á legg hefur ekki verið einn einasti lokunardagur vegna manneklu eða veikinda. Ég hef ekki fengið einn einasta póst þar sem foreldrar eru hvattir til að sækja börnin sín fyrr. Við hjónin erum bæði í fullu starfi í dag og ég þarf ekki lengur að vinna á kvöldin til að brúa bilið. Fjölskyldan á fleiri gæðastundir saman og dóttir okkar blómstrar á leikskólanum. Kópavogsmódelið hefur dregið úr sóun í kerfinu, stytt dvalartíma barna - sem var með þeim lengsta í Evrópu - og stórbætt mönnunin. Ég get ekki betur séð en allir sem starfa á leiksólanum séu ánægðir með þessar breytingar. Það sem skiptir mestu máli er að börnum líði vel í leikskólanum og foreldrar í Kópavogi geta nú treyst á góða þjónustu alla daga. Fyrir það er ég þakklátur. Ég man vel hvernig ástandið var áður og ég held að það langi engan til baka. Höfundur er tveggja barna faðir í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar