Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar 14. maí 2026 07:21 Litrík húsþökin og nándin við fjöllin og sjóinn gefa Reykjavík sinn einstaka brag. Hún er borg sem hefur sinn eigin tón en er alls ekki einsleit, ekki frekar en fólkið sem í henni býr. Ábyrgð þess sem stýrir Reykjavíkurborg er mikil, sú manneskja þarf að líta til mismunandi þarfa þeirra sem þar búa. Mikilvægast þessara hlutverka eru samt einfaldlega grunnþarfirnar; að borgin virki fyrir fólkið sem býr í henni og sé gott umhverfi þar sem fólk getur blómstrað á sínum eigin forsendum. Þetta er ekki bara hugmyndafræðilegt hlutverk, borgarbúar greiðum stóran hluta launanna til sveitarfélagsins svo það geti sinnt skyldum sínum. Það er því mikil gæfa Reykvíkinga að nafna mín Hildur Björnsdóttir skuli bjóða fram krafta sína í þágu borgarbúa. Hildur sem fer nú fyrir nýjum hópi öflugra frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins verður happafengur við stjórn borgarinnar og þeirra ólíku verkefna sem borgarlífið krefst. Hildur er einfaldlega einstök. Hún hefur ekki aðeins þá þekkingu sem til þarf eftir að hafa veitt síbreytilegum meirihluta vinstrifólks og misvitrum ákvörðunum þeirra aðhald um árabil. Hún hefur hyggjuvitið og dugnaðinn sem þarf til að hlusta á skoðanir og þarfir íbúanna, forgangsraða og framkvæma. En borg er ekki bara grunnþarfir. Borg er líka rammi utan um það sem gefur lífinu gildi, sögusvið góðu stundanna og gullsins í tilverunni. Því verður einnig að hlúa að. Það er mismunandi eftir hverjum og einum hvort gullið í lífinu og galdurinn við Reykjavík séu skrefin á köldum iljum ofaní heitan pott eða strembin útihlaup í sjávargolu. Ég veit að Hildur skilur í fullri alvöru mikilvægi þess að hlúa að mismundi gullmolum tilverunnar stórum sem smáum þegar þeir gefast. Verkefni okkar íbúa er líka að velja fulltrúa okkar sem við treystum best hverju sinni til að sinna hagsmunagæslu fyrir okkar hönd og okkar daglega lífs. Það á ekki og má ekki ætlast til þess að venjulegt fólk sem er að reyna að fara í gegnum hvunndaginn sæmilega létt í lund séu að grafa sig djúpt ofan í verðteygni bílastæðagjalda til að ná hárnákvæmum skurðpunkti sem tryggir nýtingu en jafnframt flæði eða rökræða kosti og galla þess að sanda frekar en salta eða kynna sér nýjustu rannsóknir um hvað eina sem segir hitt og þetta. Við verðum þess vegna að geta treyst kjörnu fulltrúunum okkar fyrir verkefninu, að þeir vinni í okkar þágu. Því geta borgarbúar svo sannarlega treyst að Hildur mun gera. Hún hefur margoft sýnt að ábyrgðina tekur hún alvarlega, með því að hlusta, með því kynna sér staðreyndir og gögn, skilja svo á milli og taka ákvarðanir með sinni góðu dómgreind. Framkvæmdahluta ákvarðananna þarf enginn að hafa áhyggjur af. Það blása vorvindar um borgina okkar, borgarbúar geta loksins átt von á raunverulegum breytingum til batnaðar og til að það geti gerst skiptir hvert atkvæði til Sjálfstæðisflokksins máli. Það blasir einfaldlega við öllum hverslags dugnaðarforkur Hildur Björnsdóttir er í sínu starfi og til allra verka. Hún mun svo sannarlega framkvæma, og það strax. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hildur Sverrisdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar