Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 14. maí 2026 19:40 Sterkt samfélag byggist ekki aðeins á góðum innviðum eða fallegum byggingum. Það byggist á fólkinu sem þar býr. Öllum íbúum þarf að finnast að rödd þeirra skipti máli og að á þau sé hlustað, óháð tungumáli, fötlun eða aðstæðum. Kópavogur er fjölbreytt samfélag og enginn hópur á að sitja eftir. Sveitarfélagið á að vera tilbúið að mæta fólki þar sem það er statt og tryggja að allir geti tekið þátt á eigin forsendum. Að berjast fyrir eigin tungumáli Það segir margt um samfélag þegar íbúi þarf að berjast fyrir því að fá að nota eigið tungumál í samskiptum við sveitarfélagið sitt. Heyrnarlaus maður í Kópavogi hafði samband við velferðarsvið bæjarins með aðstoð táknmálstúlks. Hann óskaði eftir viðtali við ráðgjafa sem gæti átt samskipti á táknmáli án milliliða, eins og Reykjavíkurborg hafði og sá ráðgjafi var líka sjálfstæður meðferðaraðili. Kópavogsbær hefði getað keypt slíka þjónustu fyrir tiltölulega litla fjárhæð. Í stað þess var erindið flækt, gert stærra en það var, jafnvel flóknara og að lokum var manninum bent á að flytja til Reykjavíkur. Með öllu óásættanlegt Þessi viðbrögð eru ekki aðeins særandi, þau eru með öllu óásættanleg. Hér var um að ræða íbúa sem hafði búið í Kópavogi í nær tuttugu ár, greitt sín gjöld og aldrei áður leitað eftir aðstoð frá velferðarsviði. Að segja við slíkan íbúa að hann eigi einfaldlega að leita annað sendir hættuleg skilaboð: að sumir íbúar séu minna velkomnir en aðrir. Sveitarfélög eiga ekki að spyrja: „Getur þú farið annað?“ heldur: „Hvernig getum við leyst þetta?“ Kópavogur fyrir alla Heyrnarlausir íbúar eiga að geta fengið upplýsingar, þjónustu og samskipti á eigin tungumáli án þess að upplifa sig sem byrði á kerfinu. Fatlaðir íbúar eru ekki vandamál sem þarf að leysa. Þeir eru hluti af samfélaginu og eiga sama rétt og aðrir til þátttöku, virðingar og þjónustu. Viðreisn í Kópavogi vill samfélag sem hlustar, skilur þarfir fólks og kemur til móts við íbúa af virðingu. Það er ekki kostnaður. Það er mælikvarði á réttlátt samfélag. Höfundur situr í 10. sæti á lista Viðreisn í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Viðreisn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Af svifryki, strætó og sjálfstæðum krökkum Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptir máli að kjósa í Garðabæ? Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Sjá meira
Sterkt samfélag byggist ekki aðeins á góðum innviðum eða fallegum byggingum. Það byggist á fólkinu sem þar býr. Öllum íbúum þarf að finnast að rödd þeirra skipti máli og að á þau sé hlustað, óháð tungumáli, fötlun eða aðstæðum. Kópavogur er fjölbreytt samfélag og enginn hópur á að sitja eftir. Sveitarfélagið á að vera tilbúið að mæta fólki þar sem það er statt og tryggja að allir geti tekið þátt á eigin forsendum. Að berjast fyrir eigin tungumáli Það segir margt um samfélag þegar íbúi þarf að berjast fyrir því að fá að nota eigið tungumál í samskiptum við sveitarfélagið sitt. Heyrnarlaus maður í Kópavogi hafði samband við velferðarsvið bæjarins með aðstoð táknmálstúlks. Hann óskaði eftir viðtali við ráðgjafa sem gæti átt samskipti á táknmáli án milliliða, eins og Reykjavíkurborg hafði og sá ráðgjafi var líka sjálfstæður meðferðaraðili. Kópavogsbær hefði getað keypt slíka þjónustu fyrir tiltölulega litla fjárhæð. Í stað þess var erindið flækt, gert stærra en það var, jafnvel flóknara og að lokum var manninum bent á að flytja til Reykjavíkur. Með öllu óásættanlegt Þessi viðbrögð eru ekki aðeins særandi, þau eru með öllu óásættanleg. Hér var um að ræða íbúa sem hafði búið í Kópavogi í nær tuttugu ár, greitt sín gjöld og aldrei áður leitað eftir aðstoð frá velferðarsviði. Að segja við slíkan íbúa að hann eigi einfaldlega að leita annað sendir hættuleg skilaboð: að sumir íbúar séu minna velkomnir en aðrir. Sveitarfélög eiga ekki að spyrja: „Getur þú farið annað?“ heldur: „Hvernig getum við leyst þetta?“ Kópavogur fyrir alla Heyrnarlausir íbúar eiga að geta fengið upplýsingar, þjónustu og samskipti á eigin tungumáli án þess að upplifa sig sem byrði á kerfinu. Fatlaðir íbúar eru ekki vandamál sem þarf að leysa. Þeir eru hluti af samfélaginu og eiga sama rétt og aðrir til þátttöku, virðingar og þjónustu. Viðreisn í Kópavogi vill samfélag sem hlustar, skilur þarfir fólks og kemur til móts við íbúa af virðingu. Það er ekki kostnaður. Það er mælikvarði á réttlátt samfélag. Höfundur situr í 10. sæti á lista Viðreisn í Kópavogi.
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun