Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar 15. maí 2026 08:40 Að stilla upp starfsfólki sveitarfélags upp á móti þjónustuþegum þess er ódýr pólitík. Að stilla af eftirspurn eftir þjónustu með hækkuðum gjaldskrám er ódýr pólitík. Að benda fólki á að flytja í önnur sveitarfélög til að fá viðeigandi lögbunda þjónustu er ódýr pólitík. Að hafna samráði við bæjarbúa og tilkynna ákvarðanir áður en umræða hefur átt sér stað er ódýr pólitík. Að meina starfsfólki og stjórnendum sveitarfélagsins að tjá sig við önnur framboð en sitt eigið er ódýr pólitík. Það er komið nóg af ódýrri pólitík. Viðreisn í Kópavogi boðar breytta tíma. Skipulagsmál fyrir íbúa í umboði íbúa Verktakar í bænum, flokkur Vina Kópavogs, íbúasamtök og húsfélög út um allan bæ hafa öskrað sig hás allt kjörtímabilið eftir áheyrn hjá bænum. Íbúar óttast breytt skipulag sem aldrei var borið undir þá. Verktakar fá ekki að byggja íbúðir sem þeir vita fyrir víst að munu seljast. Að vera kjörinn fulltrúi er ekki grænt ljós frá íbúum til að bjóða upp lóðir til hæstbjóðanda og velja gamla vinnufélaga til samstarfs. Bæjarstjórn starfar fyrir íbúa, í umboði íbúa og þeirra hagsmunir eiga að ganga framar sérhagsmunum. Frelsi til að njóta efri áranna Fólk sem hefur unnið alla sína ævi og komið börnum og barnabörnum á legg, á að hafa frelsi til að velja hvernig efri árin líta út. Hvort sem fólk kýs að fara inn á hjúkrunarheimili eða vera lengur sjálfstætt heima, valið á að vera í höndum fólksins. Biðlistar eftir þjónustu takmarka þetta val og skerða frelsi eldri borgara til að stýra því hvernig þeir kjósa að haga sínu lífi þegar loksins hægist á. Þessu viljum við breyta. Biðliðstar sem árangusmælikvarði Við höfum oft verið spurð að því á seinustu vikum hvernig við ætlum að leggja mat á árangur í rekstri Kópavogsbæjar. Svarið er einfalt: staðan á biðlistum bæjarins eftir þjónustu sem sveitarfélaginu ber samkvæmt lögum að veita, og aldur elstu barna við innritun á leikskóla. Á meðan það eru biðlistar eftir þjónustu þá skiptir minna máli hversu mikill rekstrarafgangur er hjá bænum.Þetta eru fjármunir íbúa og þeim ber að verja í þjónustu við íbúa. Sanngjarnar gjaldskrár Okkur finnst eðlilegt að fólk greiði fyrir þá þjónustu sem það þarf að nota. Okkur finnst ekki eðlilegt að gjaldskrár bæjarins séu nýttar til að stilla af eftirspurn eftir þjónustu. Sitjandi meirihluti hefur sagt opinberlega að gjaldskrá leikskóla hafi verið hækkuð viljandi til fá foreldra til að stytta dvöl barna og þar með draga úr eftirspurn eftir þjónustu.Lögbundin þjónusta eða ekki, þá eru þetta ámælisverð vinnubrögð og léleg skilaboð til eigin útsvarsgreiðenda og fólksins sem ætlar að halda samfélaginu okkar uppi á næstu árum og áratugum. Það er ekki eðlilegt að fólk með eitt barn greiði tæplega 60.000 krónur fyrir eitt barn í átta tíma á dag og tæplega 100.000 krónur fyrir tvö börn, með fullum systkinaafslætti. Við ætlum að lækka gjaldskrá leikskólanna aftur, vegna þess að það er sanngjarnt. Virðing við starfsumhverfi kennara Það er ekki eðlilegt að leikskólastarfsfólk óttist um framtíð síns starfsumhverfis og sjái fyrir sér að neyðast til að yfirgefa sveitarfélagið sé létt á gjaldskrá leikskóla. Stjórnendur sveitarfélaga bera ábyrgð á því að tryggja starfsaðstæður síns starfsfólks samhliða því sem þeim ber skylda til að tryggja sanngjarna gjaldtöku fyrir veitta þjónustu. Eitt þarf ekki og á ekki að útiloka annað. Víða um land hefur tekist að stórbæta starfsaðstæður í leikskólum án þess að stórhækka álögur á heimilin.Fordæmin eru víða og við vitum vel að leikskólakerfið verður dýrara í rekstri fyrir bæinn ef við lækkum aftur leikskólagjöldin. Það þarf að fjölga stöðugildum og bjóða bætt kjör fyrir starfsfólk kennara til að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur í þessum málum. Það kostar peninga. Og það er bara allt í lagi. Leikskólakerfið er grunnforsenda þess að fjölskyldur geti og vilji setjast að í bænum og við verðum fyrir miklum tekjumissi til framtíðar þegar ungar barnafjölskyldur sniðganga sveitarfélagið eins og tölurnar sýna að er að gerast núna. Það er fjárfesting að viðhalda góðu starfsumhverfi á leikskólunum og það er fjárfesting í því að laða ungar fjölskyldur að í bæinn. Og þetta er fjárfesting sem er í forgangi hjá Viðreisn í Kópavogi. Börn og ungmenni í forgang Viðreisn út um allt land setur börn og ungmenni í forgang. Ástæðurnar eru af ýmsum toga og rökstuðningurinn nær víða en kjarninn er þessi: Börn þurfa stuðning, þau þurfa þorp, þau þurfa samfélag sem heldur utan um þau. Með því að taka utan um börnin okkar og ungmennin okkar þá erum við líka að létta á foreldrum. Og það skiptir öllu máli. Það skiptir öllu máli að foreldrar, stærsti hluti útsvars- og fasteignagjaldagreiðenda í hverju sveitarfélagi, upplifi það að þeir fjármunir sem þeir greiða til sveitarfélagsins skili þeim í léttari lífi. Léttara líf foreldra felst í þeirri fullvissu um að börnin þeirra fái viðunandi menntun, að þau hafi gott aðgengi að sérfræðiaðstoð um leið og þörfin kemur upp og að það sé öruggt og auðvelt að sækja allskonar frístundir í nærumhverfi. Fjölskyldur í forgang Fjölskyldur í forgang er lykilatriði í að létta á öllum aldurshópum í Kópavogi og sætta stríðandi fylkingar innan bæjarins. Með því að sinna barnafjölskyldunum okkar almennilega og láta ekki okkar elstu og bestu íbúa hanga á biðlistum, léttum við á miðaldra hvunndagshetjum sem sinna báðum kynslóðum eftir bestu getu og leyfum þeim að njóta beggja kynslóða en ekki þjóta á milli stofnanna. Viðreisn í Kópavogi stendur með öllum fjölskyldum, af öllum stærðum, gerðum og aldursbilum. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar