„Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 22:13 Rúnar Kristinsson gat leyft sér að vera ánægður í kvöld. Vísir / Hulda Margrét Rúnar Kristinsson fer glaður inn í landsleikjahlé með sína menn í Fram sitjandi í þriðja sæti Bestu deildarinnar þegar þriðjungur mótsins er búinn. Hans menn fá verðskuldað viku frí.
Fram var miklu sterkari aðilinn í 4-3 sigri kvöldsins sem var síst of stór. Rúnari stóð ekki alveg á sama þegar Breiðablik minnkaði muninn í 4-3. „Við hleyptum þeim inn í þennan leik. Við vörðum teiginn okkar ekki nægilega vel og klikkuðum á að verjast fyrirgjöfum. Við eigum að gera það betur en svona er bara fótbolti. Þannig varð spenna úr þessum leik var algjör óþarfi eftir að við vorum komnir í 4-1,“ segir Rúnar. Gott er að hafa einn Kennie Chopart. Hann skoraði tvö mörk á fyrstu fimm mínútum leiksins og hljóp eins og berserkur í 90 mínútur. „Hann er náttúrulega bara ótrúlegur og setur þessi tvö mörk á fyrstu mínútum, ég vissi bara ekki hvað var að gerast hérna. Maður átti alls ekki von á þessari byrjun. En við erum kröftugir, viljum sækja fram völlinn, gefa fyrirgjafir og spila kröftugan fótbolta og þetta er alltaf gaman þegar þú skorar mörk og ert með lið sem tilbúið að sækja svona hratt fram völlinn,“ segir Rúnar. Kennie er 36 ára gamall, gast þú hlaupið svona á þeim aldri? „Nei, ég hljóp aldrei eins hratt og hann en ég var bara klókari. Ég þurfti ekki að hlaupa svona mikið, ég var búinn að lesa þetta allt,“ segir Rúnar og glottir. Líkt og segir að ofan er Fram í þriðja sæti deildarinnar eftir frábæran fyrsta þriðjung. Leikmenn liðsins fá verðskuldaða pásu. „Ég held að allir þjálfarar í deildinni segi það við sitt lið fyrir þessa helgina að fara í fríið með sigur á bakinu, sem er yndislegt. Í staðinn fyrir að bíða í rúmar tvær vikur eftir næsta leik og fá að rétta sinn hlut,“ „Þeir fá viku frí hjá okkur og ég ætla að leyfa þeim að njóta þess, þeir fá nú eitthvað prógram með sér, en það er kærkomið fyrir þá að fá smá frí og þeir eiga það svo sannarlega skilið,“ segir Rúnar.
Fram Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Fótbolti Fleiri fréttir „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjá meira