Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 18. júní 2026 19:59 Mollee Swift faðmar Maríu Evu Eyjólfsdóttur sem skoraði sigurmarkið í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Mollee Swift, markvörður og fyrirliði Þróttar, var ánægð eftir 1-0 sigur liðsins gegn Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á AVIS-vellinum í Laugardalnum í kvöld. „
Úff, já, þetta var erfiður leikur,“ sagði Mollee eftir leik. Hún sagði Víkinga hafa mætt mjög sterka til leiks en var stolt af því hvernig Þróttarar kláruðu verkefnið. „Mér fannst þær mæta með allt sitt besta í dag og mér fannst við líka gera eins vel og við gátum. Það voru kannski aðeins þreyttir fætur en við ýttum okkur í gegnum það og sýndum greinilega að við gátum klárað leikinn mjög sterkt.“ Sigurmarkið kom seint í leiknum þegar María Eva Eyjólfsdóttir kom Þrótti yfir á 85. mínútu. Mollee sagðist þó ekki hafa verið stressuð á lokamínútunum. „Nei, satt að segja ekki. Vörnin okkar er svo sterk. Það hefur verið mikill heiður að vera fyrir aftan svona sterka vörn, miðju og sókn,“ sagði Mollee. „Ég vissi að við myndum halda tengingunni. Þetta snerist bara um að koma boltanum fyrst í netið. Það var það mikilvægasta.“ Þróttur er þar með komið í undanúrslit bikarsins, fjórða sinni á síðustu sex árum. Félagið hefur þó aldrei orðið bikarmeistari kvennamegin og Mollee hefur trú á að það geti breyst. „Ég hef fulla trú á liðinu okkar. Mér finnst við vera tilbúnar og hugarfarið er virkilega til staðar,“ sagði Mollee. „Það er spennandi að sjá og við höldum bara áfram, 90 mínútur í einu,“ sagði Mollee að lokum.
Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Þróttarakonur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar þriðja árið í röð eftir 1-0 sigur á Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkursbikar kvenna í fótbolta í Laugardalnum. 18. júní 2026 19:24 Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum Þróttarakonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarsins í kvöld og aðeins nokkrum mínútum síðar fengu þær að vita um mótherja sinn í undanúrslitaleiknum. 18. júní 2026 19:37 Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport Fleiri fréttir Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Sjá meira
María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Þróttarakonur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar þriðja árið í röð eftir 1-0 sigur á Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkursbikar kvenna í fótbolta í Laugardalnum. 18. júní 2026 19:24
Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum Þróttarakonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarsins í kvöld og aðeins nokkrum mínútum síðar fengu þær að vita um mótherja sinn í undanúrslitaleiknum. 18. júní 2026 19:37