Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar 19. júní 2026 16:15 Á morgun eru sumarsólstöður, lengsti dagur ársins. Á Íslandi og víða á norðlægum slóðum ríkir birtan nánast allan sólarhringinn og minnir okkur á hve stórkostlegur riðmi náttúrunnar er. Að alast upp á Siglufirði, á einum nyrsta stað landsins, höfðu sumarsólstöður yfir sér ákveðna töfra. Sem unglingur, skipulögðum við ferðir út við göng (Strákagöng) til að horfa á sjóndeildarhringinn og sólsetrið. Fyrir framan okkur var ekkert nema Atlantshafið og sólin sveif rétt yfir hafinu rauðgullin og björt. Hún settist aldrei almennilega. Hún hékk bara þarna á mörkum dags og nætur. Enn í dag fæ ég hlýtt í hjartað þegar ég hugsa til baka. Í gegnum aldirnar hafa sumarsólstöður verið tími til að fagna lífinu, birtunni, gnægðinni og tengslum okkar við náttúruna. Þær bjóða okkur að staldra við og veita athygli að birtunni, bæði þeirri sem umlykur okkur og þeirri sem býr innra með okkur. Ein þjóðtrú sem ég man eftir úr æsku var að velta sér nakinn upp úr dögginni á sumarsólstöðum eða Jónsmessunótt. Talið var að döggin bæri með sér heilandi og endurnærandi kraft. Ég prófaði það einu sinni þegar ég var yngri. Hvort döggin hafi haft einhverja töframætti veit ég ekki, en ég man að mér fannst ég óvenju lifandi og þetta var alla vega skemmtilegt. Ef þig langar að heiðra sumarsólstöðurnar á morgun eru hér nokkrar einfaldar hugmyndir: Heilsaðu sólinni Vaknaðu snemma eða vertu vakandi fram á nótt og gefðu þér nokkrar mínútur til að njóta sólarupprásarinnar eða miðnætursólarinnar. Leyfðu þér að vera í þögninni og taka inn birtuna. Hugleiddu síðustu mánuði Taktu fram dagbók eða blað og skrifaðu niður hvað hefur vaxið og dafnað í lífi þínu það sem af er ári. Hvað ert þú þakklát fyrir? Hverju vilt þú hlúa að næstu mánuðina? Færðu náttúrunni þakkir Safnaðu blómum, fjöðrum, laufum eða steinum og búðu til litla þakkargjörð til náttúrunnar. Það þarf ekki að vera flókið. Aðalatriðið er ásetningurinn. Kveiktu á kerti Í mörgum hefðum tengjast sumarsólstöður eldi. Kveiktu á kerti og hugleiddu hvað færir þér birtu í lífinu. Þú getur líka skrifað niður eitthvað sem þú ert tilbúin að sleppa takinu á og brennt blaðið á öruggan hátt sem táknræna athöfn. Verðu tíma úti Kannski einfaldasta athöfnin af öllum. Farðu í göngutúr, sestu við sjóinn, hallaðu þér upp að tré eða leyfðu sólinni að verma húðina. Vertu bara til staðar. Sumarsólstöður minna okkur á að lífið er hringrás. Jafnvel þegar birtan er í hámarki er okkur boðið að njóta augnabliksins og þess sem er hér og nú. Hvernig sem þú velur að verja deginum á morgun vona ég að hann færi þér tengingu, þakklæti og kannski einhverja töfra. Sjálf mun ég fagna sumarsólstöðunum með öðrum hætti en áður. Við sólarupprás hér í Valencia mun ég taka þátt í athöfn á ströndinni. Þó hefðirnar séu aðrar en þær sem ég ólst upp við á Íslandi finnst mér tilgangurinn sá sami: að koma saman, heilsa sólinni og minnast tengsla okkar við náttúruna og einhvers sem er stærra en við sjálf. Ég mæti án allra væntinga, en með forvitni, opnum huga og þakklæti. Kannski er það líka falleg leið til að mæta sumarsólstöðunum. Hvaða hefðir eða trú sem við fylgjum er boðskapurinn kannski sá sami: að staldra við, njóta birtunnar og tengjast því sem skiptir mestu máli. Gleðilegar sumarsólstöður. Höfundur er áhugamanneskja um helgisiði og náttúrutengingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar