„Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júní 2026 22:06 Bílarnir skildu eftir sig djúp hjólför. Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. „
Þeir hafa verið kallaðir á lögreglustöð og greitt sekt fyrir athæfi sitt,“ staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, í sambandi við fréttastofu. „Við náðum í hnakkadrambið á þeim, eins og sagt er.“ Ökumennirnir ypptu öxlum Leiðsögumenn sem komu að mönnunum á ólíkum stöðum, þar á meðal á Emstruleið og við Kötlujökul, lýstu tómlæti mannanna þegar þeim var bent á að utanvegaakstur væri ólöglegur. Annar tónn virðist þó vera kominn virðist hafa verið kominn í þá nú undir kvöldið. „Þeir hlýddu fyrirmælum lögreglu um að halda á lögreglustöð á Selfossi og þar fengu þeir sína refsingu.“ Málinu hefur þegar verið lokið með greiðslu sektar. Í fyrri umfjöllunum um mál af þessu tagi hefur komið fram að sektargreiðslur geti jafnvel numið hundruðum þúsunda. Vakti sterk viðbrögð landsmanna Athæfi mannanna hefur þegar vakið sterk viðbrögð, meðal annars á Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar þar sem fleiri hundruð hafa lýst vanþóknun sinni. „Þetta var með því ljótara,“ segir Þorsteinn. Þorsteinn segir jákvætt hve margir hafi látið vita af athæfinu og hve fljótt hafi verið hægt að leysa úr því. Þegar mál sem þessi komi upp sé þó mikilvægt að láta vita beint í síma 112 en ekki eftir krókaleiðum. Almennt geti þessi mál verið flókin þar sem bifreiðarnar séu á ferðum fjarri byggðum og geti jafnvel verið á ferð milli lögregluumdæma. Það geti því reynt á góða samvinnu við úrlausn slíkra mála.
Utanvegaakstur Lögreglumál Rangárþing eystra Umhverfismál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira