Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 06:35 JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna og aðalsamningamaður þeirra, talar við blaðamenn fyrir fundinn. Með honum eru Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, og Sheikh Mohammed bin Abdulrahman bin Jassim al-Thani, forsætisráðherra Katar. Vísir/EPA Fyrstu samningalotu Bandaríkjanna og Írans um að ná endanlegu samkomulagi til að binda enda á stríðið lauk snemma í morgun, mánudag. Viðræðurnar hófust í gær í Sviss, í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og Írans í síðustu viku. Tæknilegar viðræður munu halda áfram alla vikuna en áframhaldandi átök í Líbanon eru sögð hafa veruleg áhrif.
Í sameiginlegri yfirlýsingu snemma á mánudag sögðu fulltrúar sáttasemjara frá Katar og Pakistan að „háttsett nefnd“ hefði samþykkt „vegvísi að endanlegu samkomulagi innan 60 daga“. Í frétt BBC um málið er haft eftir utanríkisráðherra Írans, Seyed Abbas Araghchi, að viðræðurnar hefðu „skilað miklum árangri“ til að binda enda á átökin í Líbanon. Í sameiginlegri yfirlýsingu sáttasemjaranna kom fram að „samskiptaleið“ hefði verið komið á „til að forðast atvik og misskilning með það að markmiði að tryggja örugga siglingu kaupskipa um Hormússund“. Vilja binda enda á hernað í Líbanon Báðir aðilar samþykktu einnig að koma á fót „afvopnunardeild“ milli Bandaríkjanna, Írans og Líbanons, með aðstoð fulltrúa ríkja sem aðstoða við viðræður, til að binda enda á átök og hernaðaraðgerðir í Líbanon. Viljayfirlýsingin sem undirrituð var í síðustu viku felur í sér skuldbindingu um að ná endanlegu samkomulagi innan 60 daga, auk þess að binda enda á bardaga á „öllum vígstöðvum“, þar á meðal í Líbanon, og enduropnun Hormússunds. Í erlendum miðlum hefur verið greint frá því um helgina að Bandaríkin segi sundið opið en írönsk yfirvöld segjast hafa þurft að loka því aftur vegna áframhaldandi átaka Ísrael í Líbanon. Frá fundi samninganefndanna í Sviss. Vísir/EPA Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, brást harkalega við því og sagði í yfirlýsingu að það yrði ekkert Íran ef sundinu yrði lokað. Trump sagði einnig á samfélagsmiðlum að Íran yrði að láta af öllum aðgerðum í Líbanon og að það yrði brugðist við því ef það yrði ekki gert. Greint er frá á Guardian. Í frétt AP segir að þessar yfirlýsingar hafi gert það erfitt að halda Íran við efnið í samningaviðræðunum. Hafa banað tugum Frá því að viljayfirlýsingin var undirrituð hafa bardagar milli Hezbollah og ísraelskra hersveita í suðurhluta Líbanons aukist og ísraelskar loftárásir hafa að sögn heilbrigðisráðuneytisins banað tugum Líbanona, þar á meðal konum og börnum. Á sunnudag var greint frá því að átök hefðu minnkað en Benjamín Netanahjú forsætisráðherra Ísraels fullyrti að ísraelski herinn myndi dvelja áfram í suðurhluta Líbanons eins lengi og nauðsynlegt væri til að vernda norðurhluta Ísraels. Leiðtogi Hezbollah, Naim Qassem, vill enga ísraelska hernaðarviðveru í suðurhluta Líbanons og sagði að Hezbollah myndi verja sig. Vance með Kushner Áður en viðræðurnar hófust í svissneska dvalarstaðnum Bürgenstock sagði aðalsamningamaður Bandaríkjanna, varaforsetinn JD Vance, að Trump hefði beðið samningamenn um að „snúa við blaðinu“. Hann bætti við að ef forysta Írans væri tilbúin að hætta að vera „drifkraftur óstöðugleika á svæðinu“ og gefa upp „kjarnorkuvopnaáform sín til lengri tíma“, þá væru Bandaríkin „tilbúin að gjörbreyta sambandi“ sínu við þau. Í frétt BBC um málið kemur fram að Íran hafi ávallt haldið því fram að kjarnorkuáætlun þeirra sé friðsamleg. Með Vance í för voru tengdasonur Trumps, Jared Kushner, og sérstakur sendifulltrúi, Steve Witkoff. Ghalibaf var í fylgd með utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi. Forsætisráðherra og herforingi Pakistans og forsætisráðherra Katars voru einnig þar en þau hafa gegnt hlutverki sáttasemjara í stríðinu og hýstu fyrri samningalotu milli Bandaríkjanna og Írans. Fagnar áframhaldandi viðræðum Katar hefur einnig haft milligöngu og seint á sunnudag sagði Sheikh Mohammed bin Abdul Rahman Al Thani, forsætisráðherra Katars, að hann fagnaði áframhaldandi viðræðum Bandaríkjanna og Írans. Í frétt BBC segir að þó svo að Íran og Bandaríkin hafi náð samkomulagi um enduropnun Hormússunds fyrir helgi eigi enn eftir að semja um kjarnorkuáætlun Írans.
Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Líbanon Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Sviss Katar Pakistan Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira