Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júlí 2026 14:26 Í október í fyrra kviknaði umfangsmikill eldur í iðnaðarhúsnæði á Siglufirði sem hýsti starfsemi fyrirtækisins Primex. Slökkvilið Fjallabyggðar Heildarupphæð bættra brunatjóna nam rúmum þremur milljörðum í fyrra en fjöldi bættra tjóna var lægri en undanfarin ár og stórbrunar færri. Bruni í atvinnuhúsnæði fyrirtækisins Primex á Siglufirði nam þriðjungi þeirra bættra tjóna.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í árlegri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um yfirlit eignatjóna vegna eldsvoða. Samantektin byggi á gögnum frá tryggingastofnunum. Alls hafi 708 brunatjón verið tilkynnt í fyrra, 343 þeirra voru tjón á heimilum, 293 í atvinnuhúsnæði og 72 tjón voru flokkuð óskilgreind. Tvö andlát urðu í eldsvoða á síðasta ári. Báðir hafi látist vegna íkveikju í fjölbýlishúsi á Hjarðarhaga í Vesturbæ og var eldsvoðinn einn sá alvarlegasti það árið með tilliti til manntjóns. Bruninn „undirstrikar þá miklu hættu sem skapast þegar eldur er borinn að í íbúðarhúsnæði, þar sem líf og heilsa íbúa getur verið í bráðri hættu,“ segir HMS. Tjón í atvinnuhúsnæði hafi numið rúmum tveimur milljörðum en í samantekt HMS segir að einn stór atburður hafi numið þriðjungi af bættum tjónum síðasta árs. Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri sviðs brunavarna og leigumarkaðar hjá HMS, staðfestir í samtali við Vísi að atvikið sem um ræðir sé eldsvoði í iðnaðarhúsnæði sem hýsti fyrirtækið Primex á Siglufirði. Í október í fyrra kviknaði umfangsmikill eldur í iðnaðarhúsnæði á Siglufirði sem hýsti starfsemi fyrirtækisins Primex. Allt tiltækt slökkvilið frá Siglufirði og Dalvík var kallað á vettvang og slökkvistarf stóð yfir í þrettán klukkustundir. Bæturnar nemi rúmum 1,3 milljarði króna. Tjón vegna brunans á Siglufirði var mikið. Fjöldi tjónatilkynninga endurspegli ekki fjölda brunatilvika. „Í stórum brunum geta margir aðilar verið með tryggingar í sama húsnæði og því myndast margar tjónatilkynningar vegna eins og sama atburðar. Í einu tilviki bárust til að mynda um tvö hundruð tjónatilkynningar vegna sama brunans,“ segir í samantekt HMS. Í umræddu tilviki bárust tilkynningar frá viðskiptum efnalaugar sem varð tjón á, segir Regína. Heildarupphæð bættra brunabóta árið 2025 nam 3,6 milljörðum króna en í samanburði var upphæð brunabóta hátt í fimm milljarðar árið þar á undan, 2024, og tæplega sjö milljarðar árið 2023. Regína ítrekar í samtali við Vísi að í tölum HMS séu aðeins tilgreindar bætur íslenskra tryggingarfélaga. Dæmi séu um að stærri fyrirtæki séu með erlendar tryggingar sem rati ekki inn í þeirra tölur. „Mikilvægt er að huga að brunavörnum á heimilum og í nærumhverfi til að draga úr líkum á eldsvoða og takmarka afleiðingar hans,“ ítrekar HMS.
Fjallabyggð Reykjavík Slökkvilið Tryggingar Eldsvoði á Hjarðarhaga Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira