Hilmar Örn setti mótsmet og Jacques vann bæði gull og silfur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 18:25 Hilmar Örn Jónsson á Íslandsmetið í sleggjukasti og hann var nálægt því að bæta það í dag. vísir/Arnar FH-ingurinn Hilmar Örn Jónsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í sleggjukasti karla á Meistaramóti Íslands í dag með risakasti. Hundraðasta MÍ í frjálsíþróttum fer fram á ÍR-vellinum í Skógarseli um helgina.
Hilmar setti nýtt mótsmet með því að kasta 77,82 metra í fjórða kasti en gamla mótsmetið var 73,84 metra kast Hilmars frá árinu 2020. Hilmar var einnig bara 21 sentimetra frá Íslandsmeti sínu. Yfirburðir hans sjást vel á því að hann kastaði meira en þrjátíu metrum lengra en næsti maður, sem var Ingvar Freyr Snorrason, með kast upp á 47,71 metra. Hinn átján ára gamli Jacques R. S. Borges Schmitt komst á verðlaunapall í tveimur stökkgreinum. Hann vann langstökkið með 6,61 metra stökki en Gylfi Ingvar Gylfason var annar með 6,52 metra stökk. Jacques var síðan annar í hástökki með stökk upp á 1,88 metra sem var nýtt persónulegt met. Ármenningurinn Kristófer Snær Þorgeirsson varð Íslandsmeistari en hann fór yfir tvo metra í fyrsta sinn á ferlinum. ÍR-ingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir varð Íslandsmeistari í áttunda sinn í kúluvarpi kvenna að þessu sinni með kasti upp á 15,83 metra. Birna Kristín Kristjánsdóttir er að koma inn eftir meiðsli en vann langstökk kvenna með stökki upp á 6,26 metra. Irma Gunnarsdóttir varð önnur með 5,69 metra stökk og María Rún Gunnlaugsdóttir fékk bronsið með 5,55 metra stökk. FH-ingurinn Leó Örn Þórarinsson vann 800 metra hlaup karla og Aníta Hinriksdóttir vann 800 metra hlaup kvenna en þessi uppaldi ÍR-ingur keppir nú fyrir FH. Arnar Pétursson vann 3000 metra hindrunarhlaup karla en hann var eini keppandinn. Íris Anna Skúladóttir vann hjá konunum. Sveit FH vann 4x100 metra boðhlaup kvenna en sveit Fjölnis vann óvænt sama boðhlaup hjá körlunum. FH, sem stillti upp sterkustu sveitinni, með þrjá hröðustu úr úrslitum 100 metra hlaupsins en hún gerði ógilt á þriðju skiptingu og þegar þeir misstu keflið.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Líkir mótinu við að spila í dýragarði Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Dagskráin: Hörkuleikir í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Alcaraz heldur uppteknum hætti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Varamaður Ómars hetja Magdeburgar „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Sjá meira