Neytendur

Akur­eyringur gafst ekki upp og hafði betur gegn flugrisa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aðalsteinn má vera stoltur af baráttu sinni fyrir hönd neytenda. Koma verður í ljós hvort flugfélagið geri breytingar á mæligrind sinni víðar en á Gatwick-flugvelli í London.
Aðalsteinn má vera stoltur af baráttu sinni fyrir hönd neytenda. Koma verður í ljós hvort flugfélagið geri breytingar á mæligrind sinni víðar en á Gatwick-flugvelli í London.

Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið EasyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur.

Aðalsteinn Svan Hjelm lýsir hremmingum sínum og baráttu í færslu á Facebook frá því í maí síðastliðnum þegar hann var á leiðinni frá London til Grikklands með flugfélaginu EasyJet ásamt dóttur sinni. Þau voru stöðvuð við hlið flugfélagsins á Gatwick-flugvelli og beðin um að setja handfarangurstöskur sínar í málmgrind til að staðfesta að hún væri innan stærðarmarka.

„Þarna var búið að kalla út í vél, allir komnir í röð og hver fyrir sig beðinn um að máta handfarangurinn,“ segir Aðalsteinn í samtali við Vísi.

Um var að ræða Samsonite-handfarangurstösku sem Aðalsteinn segist hafa ferðast með víða um heim án vandræða. En ekki í þetta skiptið. Taskan passaði ekki í grindina. Var hann krafin um greiðslu sem nam um sextán þúsund krónum samanlagt fyrir tvær töskur og skipti engu um mótmæli hans.

„If it does not fit, you pay!“

Honum hafi fundist þetta allt svo undarlegt. Allir voru látnir setja farangurinn í mæligrindina, starfsfólkið var svo strangt og enginn að nenna að tala við hann.

„Auðvitað gefst maður upp og borgar til að missa ekki af vélinni,“ segir Aðalsteinn. Með óbragð í munni sneri hann við í rananum og fékk leyfi til að taka myndir af mæligrindinni. Svo var flogið til Aþenu.

Gat ekki sofið

Aðalsteinn náði ekki að hrista pirringinn úr sér í sólinni í Grikklandi og fyrstu nóttina settist hann upp í rúminu og hugsaði: „Nei, þetta er ekki rétt.“

Hann fór að gúggla og komst að því að fleiri höfðu svipaða sögu að segja. Einhverjir höfðu tekið slagið og sumir fengið greitt. Þó voru engin dæmi þess að easyJet viðurkenndi að eitthvað væri ekki í lagi. Aðalsteinn ákvað að láta reyna á rétt sinn og sýna fram á að eitthvað væri að umræddri mæligrind á Gatwick-flugvelli.

Hann hóf formlegt kæruferli hjá easyJet. Það skilaði engu og heldur ekki kvörtun til Gatwick-flugvallar sem annaðhvort gat ekki eða vildi ekki aðhafast. Að lokum fór málið til óháðs úrskurðaraðila sem hafnaði einnig kröfu hans.

Enginn aðili tók til greina að hreinilega mæla málmgrindina til að komast að því hvort hún væri af réttri stærð. Hann var ekki tilbúinn að kyngja því og fann áhugaverðar greinar sem vörpuðu ljósi á að easyJet hafði útvistað umræddri þjónustu til verktaka. Tekjur hans voru árangurstengdar að því leyti að því fleiri töskur sem kæmust ekki í grindina, því meiri tekjur. Því til viðbótar eru aukatekjur easyJet heilmiklar af hverri tösku sem reynist of stór. Aukagjöld af ýmsu tagi hafi numið verulegum hluta af heildartekjum easyJet á síðasta fjárhagsári samkvæmt ársreikningi félagsins.

Ætlar með málið lengra

Aðalsteinn ákvað að lokum að senda töluvpóst beint á stjórnendur easyJet og viti menn. Í kjölfarið hafði fulltrúi easyJet samband og sagði stálplötur hafa verið fjarlægðar úr farangursgrindunum eftir innri rannsókn. Hann fengi sextán þúsund krónurnar endurgreiddar.

Aðalsteinn segir um ótrúlega niðurstöðu að ræða. Réttlætið hefði sigrað að lokum en hann ætli þó ekki að láta staðar numið.

„Ég mun senda öll gögn áfram til neytendasamtaka í Bretlandi og nokkurra vel valinna fjölmiðla þar í landi, enda tel ég mikilvægt að upplýsa hvort fleiri farþegar hafi orðið fyrir sambærilegri meðferð. Þar verður eitthvað fjaðrafokið skal ég segja ykkur ef ég þekki Englendingana rétt!“

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×