Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2026 10:27 Kristján Flóki Finnbogason hefur leikið fjórtán leiki í Bestu deild karla í sumar. vísir/guðmundur FH-ingurinn Kristján Flóki Finnbogason hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir að traðka á Blikanum Ívari Erni Árnasyni í leik liðanna í Bestu deild karla 20. júlí.
Þegar fimm mínútur voru til leiksloka í viðureigninni í Kaplakrika steig Kristján Flóki ofan á bringuna á Ívari. Hann var þá nýbúinn að skalla í stöngina á marki Breiðabliks. Kristján Flóki slapp við refsingu í leiknum en málið fór fyrir aga- og úrskurðarnefnd sem dæmdi hann í tveggja leikja bann. FH-ingum gafst tækifæri á að skila inn greinargerð um málið. FH gerði athugasemd við að málinu hafi verið vísað til aga- og úrskurðarnefndar viku eftir að leikurinn fór fram og að félagið hafi ekki verið upplýst fyrr um málið. FH taldi að um óviljaverk hjá Kristjáni Flóka hefði verið að ræða. Hann hefði flækst í fótum Ívars þegar hann steig yfir hann. FH-ingar segja að Kristján Flóki hafi beðið Ívar afsökunar og að þeir hafi skilið sáttir í leikslok. Ennfremur telur FH að það verði að vera hægt að sanna ásetning og ofsafengna framkomu en að þeirra mati sýna upptökur af atvikinu að svo sé ekki. Í úrskurði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ kemur fram að samkvæmt myndbandsupptökum og ljósmyndum af atvikinu verði ekki séð að um óviljaverk hafi verið að ræða. Að mati nefndarinnar er um að ræða alvarlegt agabrot sem feli í sér ofsalega framkomu og að háttsemi Kristjáns Flóka hefði getað valdið Ívari alvarlegum meiðslum. Kristján Flóki missir af næstu tveimur leikjum FH í Bestu deildinni. Þeir eru gegn KR á heimavelli á miðvikudaginn og svo gegn KA á útivelli sunnudaginn 9. ágúst. FH, sem er ósigrað í sjö leikjum í röð, situr í ellefta og næstneðsta sæti Bestu deildarinnar.
Besta deild karla FH Breiðablik Tengdar fréttir Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var skiljanlega ósáttur eftir leikinn við FH í Kaplakrikanum í Bestu deild karla í fótbolta í gær og hafði ýmislegt til síns máls þegar hann gagnrýndi dómara leiksins í leikslok. Stúkan ræddi þessi vafaatriði í leik sem þurfti á marki að halda en endaði með markalausu jafntefli. 21. júlí 2026 09:01 „Slæmur dagur dómaranna ekki afsökun fyrir okkur“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var óánægður við bæði frammistöðu liðs síns og dómara leiksins þegar Blikar gerðu markalaust jafnteli á móti FH í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 20. júlí 2026 22:45 Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt FH og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í Bestu deild karla í kvöld en leikurinn var þó ekki laus við vafaatriði. Blikar setja stórt spurningamerki við dómgæslu leiksins. 20. júlí 2026 22:03 Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik FH og Breiðablik skildu jöfn, 0-0, þegar liðin leiddu saman hesta sína á Kaplakrikavöll í fimmtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 20. júlí 2026 21:06 Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Sjá meira
Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var skiljanlega ósáttur eftir leikinn við FH í Kaplakrikanum í Bestu deild karla í fótbolta í gær og hafði ýmislegt til síns máls þegar hann gagnrýndi dómara leiksins í leikslok. Stúkan ræddi þessi vafaatriði í leik sem þurfti á marki að halda en endaði með markalausu jafntefli. 21. júlí 2026 09:01
„Slæmur dagur dómaranna ekki afsökun fyrir okkur“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var óánægður við bæði frammistöðu liðs síns og dómara leiksins þegar Blikar gerðu markalaust jafnteli á móti FH í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 20. júlí 2026 22:45
Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt FH og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í Bestu deild karla í kvöld en leikurinn var þó ekki laus við vafaatriði. Blikar setja stórt spurningamerki við dómgæslu leiksins. 20. júlí 2026 22:03
Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik FH og Breiðablik skildu jöfn, 0-0, þegar liðin leiddu saman hesta sína á Kaplakrikavöll í fimmtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. 20. júlí 2026 21:06