Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. júlí 2026 11:44 Natland, sem er aðeins nítján ára gamall, tók myndina til vinstri. Þar sést hann handleika annað skotvopnið sem hann hafði í fórum sínum. Lundúnarlögreglan Norskur maður, Johannes Kongsnes Natland, hefur verið fundinn sekur um að hafa ferðast til Englands til að fremja launmorð fyrir alþjóðlegt glæpagengi sem er sagt hafa tengsl við stjórnvöld í Íran. Athygli vekur að Natland er aðeins nítján ára gamall.
Natland, sem vann í hlutastarfi á pizzastað, sagði fyrir dómi að hann hefði tekið verkið að sér til að útvega sér pening fyrir eiturlyfjum en haldið að um grín eða einhvers konar svik væri að ræða. Þegar hann áttaði sig á þeim vandræðum sem hann var kominn í hefði hann velt því fyrir sér að skjóta sig í fótinn til að þurfa ekki að fremja morðið. Lögregluyfirvöld sögðu gögn málsins hins vegar sýna að Natland hefði gert sér fyllilega grein fyrir því hverju hann var að ganga að. „Ég er á leið í sturlað verkefni,“ skrifaði Natland kærustu sinni. „Það verður svalt að drepa einhvern. Ef þeir ná mér ekki verðum við að fagna.“ Þá greindi vinur Natlands frá því að hann hefði stært sig af því að hafa komist í pening og sagt að einhver myndi deyja. Natland hefur haldið því fram að hann hafi bara verið að gera sig breiðan en í raun og veru hafi hann verið skíthræddur. Natland var handtekinn í mars í fyrra, tveimur dögum eftir komuna til Englands, á hóteli í Huddersfield í Vestur Jórvíkurskíri. Hann tók á móti lögreglu brosandi, á nærbuxunum einum fata. Undir rúminu hans fundust tvær skammbyssur og skotfæri. Valdamesta gengi Svíþjóðar Norðmaðurinn er sagður hafa verið efnilegur knattspyrnumaður en hafa byrjað að neyta fíkniefna þegar hann var aðeins þrettán ára gamall. Á dvalarheimili fyrir börn hafi hann komist í kynni við Foxtrot Network glæpagengið og verið vísað á mann sem kallaður var „hershöfðinginn“. Sá hafði það hlutverk að afla nýrra liðsmanna. Yfirvöld segja Natland hafa átt að fá jafnvirði 3,5 milljóna króna fyrir að myrða einstakling, sem ekki hafa verið borin kennsl á. Natland hafi verið stjórnað af enskumælandi yfirmanni Foxtrot sem gengur undir dulnefninu „Agent 47“. „Agent 47“ virðist vera tilvísun í Hitman tölvuleikina og bíómyndirnar. Foxtrot er sagt valdamesta gengi Svíþjóðar, sem beri ábyrgð á meirihluta þess gengjaofbeldis sem á sér stað í landinu. Þar má meðal annars nefna skotárásir og einstaka morð. Leiðtogi gengisins, Rawa Majid, er sagður dvelja í Íran og þá eru allt að þrjátíu Svíar handteknir utan Svíþjóðar í fyrra sagðir hafa tilheyrt Foxtrot. Poya Shafie, nánasti samstarfsmaður Majid og sá sem skipulagði aftökur Foxtrot, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð í júní síðastliðnum, eftir að hafa verið handtekinn í Írak. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Svíþjóð Íran Skotvopn Noregur Erlend sakamál Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira