Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Árni Sæberg skrifar 13. ágúst 2026 14:26 Arnar Sigurðsson, til vinstri, og Elías Blöndal Guðjónsson eru eigendur Santé. Vísir/Vilhelm Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson, eigendur verslunarinnar Santé, sem sýslar með áfengi og ýmsar sælkeravörur á netinu, hafa verið ákærðir fyrir brot á áfengislögum og fyrir peningaþvætti, með því að taka við greiðslu fyrir áfengið. Um er að ræða aðra ákæruna sem gefin er út vegna netverslunar með áfengi.
Í ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur þeim Arnari og Elíasi, sem gefin var út þann 19. júní, segir að þeir hafi brotið gegn áfengislögum með því að hafa, sem daglegir stjórnendur Santé ehf. og SanteWines SAS, borið ábyrgð á smásölu áfengis með því að hafa þann 14. ágúst 2025 selt annars vegar eina rauðvínsflösku af tegundinni Guelbenzu Vierlas, árgerð 2020, fyrir 3.200 krónur og hins vegar eina rútu af Bola X bjór í stórum dósum fyrir 5.810 krónur. Hafi þvættað tæplega 10 þúsund krónur Umræddar smásölur áfengisins hafi verið liður í atvinnustarfsemi beggja félaganna Sante ehf. og SanteWines SAS. Félagið Sante ehf. hafi flutt inn áfengið á grundvelli leyfa til innflutnings eða keypt með öðrum hætti og geymt það á starfsstöð sinni að Skeifunni 8 í Reykjavík þar til áfengið var selt og afhent umræddum einstaklingum en framangreind viðskipti hafi farið fram án þess að ákærðu og félögin sem þeir veittu fyrirsvar, hefðu leyfi til smásölu áfengis á Íslandi á umræddu tímabili. Með þeim hætti hafi Arnar og Elías brotið gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi. Þá segir að þeir sæti ákæru fyrir peningaþvætti, með því að hafa þann 14. ágúst 2025 aflað SanteWines SAS ávinnings af brotunum, sem reifuð eru að framan, fyrir samtals 9.010 krónur og nýtt ávinninginn í þágu rekstrar félagsins. Svipuð saga og í máli Smáríkisins Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, var sakfelldur í apríl síðastliðnum fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. Hann hlaut 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að fyrirkomulag áfengissölu félaganna Kjútís ehf. og Icelandic Trading Company b.v., sem starfrækir vef Smáríkisins, hefði beinlínis verið komið á til þess að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Hildur Sunna Pálmadóttir, settur aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að tildrög ákærunnar á hendur þeim Arnari og Elíasi hafi verið þau sömu og ákærunnar á hendur Vilhjálmi Forberg. Það er að segja að hefðbundið eftirlit lögreglu hafi leitt í ljós brot á áfengislögum, sem leiddi þá til rannsóknar og útgáfu ákæru. Hún segir að ákærurnar tvær séu enn sem komið er þær einu sem gefnar hafa verið út en fleiri brot forsvarsmanna annarra áfengisnetverslana séu til rannsóknar. Bjóst við ákæru fyrir löngu Arnar ræddi við fréttastofu þegar greint var frá ákærunni á hendur Vilhjálmi fyrir rétt tæpu ári. Þá sagðist hann búast við ákæru hvað úr hverju. Þá sagðist hann einnig ekki hafa miklar áhyggjur af málinu og taldi mál Vilhjálms gjörunnið áður en það fór af stað. Hann reyndist ekki sannspár, enda var Vilhjálmur sakfelldur. Máli hans hefur verið áfrýjað en reikna má með því að það verði tekið fyrir í Landsrétti eftir nokkra mánuði.
Netverslun með áfengi Dómsmál Lögreglumál Áfengi Tengdar fréttir „Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10. júlí 2022 15:48 Hildur vill heimila íslenska netverslun með áfengi Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður frumvarps um breytingu á lögum um netverslun með áfengi sem hún leggur fram í dag. Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda. 9. febrúar 2022 10:39 Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Kári Stefánsson segir netverslun með áfengi í boði ríkisstjórnarinnar og sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög. 18. júlí 2026 13:50 Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Sjá meira
„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10. júlí 2022 15:48
Hildur vill heimila íslenska netverslun með áfengi Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður frumvarps um breytingu á lögum um netverslun með áfengi sem hún leggur fram í dag. Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu til neytenda. 9. febrúar 2022 10:39
Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Kári Stefánsson segir netverslun með áfengi í boði ríkisstjórnarinnar og sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög. 18. júlí 2026 13:50