Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 09:04 Sigríður Á. Andersen getur tekið 82,5 kg í bekk. Vísir/Vilhelm Alþingiskonunni Sigríði Á. Andersen er margt til lista lagt því hún nýtti sumarfríið meðal annars til að keppa á Evrópumeistaramótinu í bekkpressu og átti sinn þátt í frábærum árangri Íslendinga á mótinu.
Keppnin fór fram í Druskininkai í Litháen og var Sigríður á meðal keppenda í öldungaflokki 2 (50-60 ára), í -63 kg flokki, í bekkpressu með búnaði. Hún byrjaði á að gera ógilt í 72,5 kg lyftu en bætti fyrir það og setti nýtt Íslandsmet með 75 kg lyftu. Það hefði þó ekki dugað til verðlauna en Sigríður gerði sér lítið fyrir og lyfti 82,5 kg í lokalyftu sinni, stórbætti þannig Íslandsmetið í sínum flokki og landaði bronsverðlaunum. Hún lyfti 2,5 kg meira en heimakonan Danguole Popovic. Sigurvegari í flokknum varð hin norska Anette Heimstad-Aasbo sem lyfti 115 kg. Sigríður átti líka sinn þátt í því að Ísland varð í þriðja sæti í liðakeppninni í öldungaflokki 2. Guðný Ásta Snorradóttir, Laufey Kristjánsdóttir og Sesselja S. Ómarsdóttir voru með henni í að ná þeim glæsta árangri. Guðný hlaut silfur í +84 kg flokki, með því að lyfta 147,5 kg, Laufey hlaut brons í -69 kg flokki með 87,5 kg lyftu, og Sesselja lyfti svo mest 100 kg í -76 kg flokki. Árangur Guðnýjar Ástu var sá næstbesti heilt yfir í öldungaflokki 2, þvert á þyngdarflokka, samkvæmt stigagjöf alþjóða kraftlyfingasambandsins. Fleiri Íslendingar sem kannski eru þekktari fyrir önnur afrek en í kraftlyftingum náðu í verðlaun á mótinu því stjörnukokkurinn Hrefna Rósa Sætran vann til silfurverðlauna í -69 kg flokki, í öldungaflokki 1, þar sem hún lyfti mest 100 kg og bætti sig um heil 7,5 kg. Rebekka Sylvía Ragnarsdóttir var einnig í öldungaflokki 1 og hlaut brons í -57 kg flokki með því að lyfta 82,5 kg.
Kraftlyftingar Alþingi Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Líkir mótinu við að spila í dýragarði Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Dagskráin: Hörkuleikir í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Alcaraz heldur uppteknum hætti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Varamaður Ómars hetja Magdeburgar „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Sjá meira