Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar 8. september 2026 15:32 Nýjar PISA-niðurstöður eru slæmar fyrir Ísland. Það er engin ástæða til að milda það. 44% íslenskra 15 ára barna ná ekki grunnviðmiði í lestri. 38% ná því ekki í stærðfræði og 38% í náttúrufræði. Á aðeins tíu árum hefur Ísland fallið um 64 PISA-stig í lestri. Ekkert samanburðarland hefur fallið meira samanlagt frá 2015. Þetta er grafalvarlegt, en niðurstöðurnar koma mér því miður ekki á óvart. Ekki vegna þess að íslensk börn geti ekki lært. Ekki vegna þess að kennararnir okkar séu ekki nógu góðir. Heldur vegna þess að frá síðustu PISA-niðurstöðum höfum við ekki gert nóg af því sem hefði þurft til að ætla skólunum okkar að snúa þróuninni við. Við höfum greint vandann en ekki gefið kennurum verkfærin Við höfum kafað ofan í tölurnar. Við höfum greint vandann frá öllum hliðum. Við höfum rætt mikið um það sem skólarnir gera ekki nógu vel. Við höfum þróað betri leiðir til að mæla árangur þeirra. En höfum við á sama tíma tryggt kennurum betri verkfæri til að ná þessum árangri? Þar er svarið miklu óþægilegra. Kennarinn þarf tíma til að kenna Við tölum mikið um að bæta kennslu. En til þess þarf fyrst að skapa kennurum svigrúm til að kenna. Tími kennara er takmörkuð auðlind og við höfum smám saman fyllt hann af sífellt fleiri verkefnum. Skráningum. Skýrsluskilum. Fundum. Félagslegum úrlausnarefnum. Samskiptum. Einstaklingsáætlunum. Mati. Eftirfylgni. Og ofan á allt þetta þurfa íslenskir kennarar í allt of miklum mæli að finna, aðlaga og jafnvel búa sjálfir til námsgögnin sem þeir nota við kennsluna. Svo segjum við þeim að námsárangur sé að falla og þeir verði að gera betur. Spurningin á ekki að vera hvað kennarinn geti gert betur. Spurningin er hvað við getum tekið af herðum kennarans svo hann geti varið meiri tíma í það sem aðeins hann getur gert: að kenna. Að sjá hvaða barn hefur ekki skilið. Að útskýra hlutina á annan hátt. Að kveikja áhuga. Að æfa færni. Að fylgja eftir framförum. Að grípa inn í þegar barn er að dragast aftur úr. Í það á tími kennarans að fara. Námsgögn eru ekki aukaatriði Þess vegna verðum við líka að hætta að tala um námsgögn eins og þau séu jaðarmál í umræðunni um námsárangur. Þau eru eitt af grunnverkfærum kennarans. Ef við ætlumst til þess að börn nái ákveðinni færni þurfum við að tryggja að kennarar hafi framúrskarandi verkfæri til að kenna hana. Og eitt verkfæri hentar ekki öllum börnum. Sum börn læra best með bók. Önnur þurfa meiri endurtekningu. Sum þurfa sjónrænar skýringar. Önnur læra í gegnum leik, verkefni eða samtal. Sum börn þurfa meiri áskorun. Önnur þurfa að fá að dvelja lengur við grunninn. Þess vegna eigum við að tryggja kennurum fjölbreytt úrval vandaðra námsgagna sem þeir geta valið úr eftir þörfum nemenda sinna. Kennarinn á ekki að þurfa að eyða kvöldinu í að búa til verkefnablaðið fyrir morgundaginn. Hann á að geta valið úr framúrskarandi verkfærakistu og notað fagþekkingu sína til að ákveða hvaða verkfæri hjálpa hverju barni að ná markmiðinu. Það er allt annað starf sem skilar allt annarri niðurstöðu. Skýr markmið en fjölbreyttar leiðir að þeim Það þýðir ekki að við eigum að gefa kennurum námsgögn og segja þeim nákvæmlega hvernig þeir eigi að kenna. Þvert á móti. Við eigum að vera miklu skýrari um hvað börnin eiga að kunna en gefa kennurum betri möguleika á að ákveða hvernig þau komast þangað. Hvaða grunnfærni á barn að hafa náð? Hvað þarf það að kunna til þess að næsta skref í náminu verði raunhæft? Þetta á ekki að vera ráðgáta fyrir kennara, foreldra eða börnin sjálf. Setjum fá, skýr og metnaðarfull markmið. Mælum nógu snemma hvort börnin séu að ná þeim. Og ef börnin eru ekki að ná þeim, þá á næsta skref ekki bara að vera önnur mæling eða skýrsla. Kennarinn þarf verkfæri til að bregðast við. Við eigum fólkið. Gefum þeim nú verkfærin Það er nefnilega mikilvægt að lesa meira úr PISA en einkunnirnar einar. Íslensk börn virðast ekki hafa gefist upp á náminu. Þau eru forvitin, segjast tilbúin að leggja meira á sig þegar verkefni verða erfið og eru líkleg til að leita til kennara eftir aðstoð. Jafnframt lýsa nemendur kennurum sínum sem umhyggjusömum. 83% segja kennarann sýna áhuga á námi hvers nemanda, samanborið við 69% að meðaltali innan OECD. Foreldrar eru sömuleiðis virkari í námi barna sinna en áður. Við eigum börn sem vilja læra, foreldra sem vilja styðja þau og kennara sem vilja ná árangri. Það er undirstaða sem getur tryggt viðsnúning ef við búum þeim nógu góð skilyrði til þess. Nú þurfum við að fjárfesta í lausnum Nú þurfum við að hætta að eyða meginorkunni í að lýsa vandanum og fara að fjárfesta af alvöru í lausnunum. Setjum skýrari væntingar um þá lykilfærni sem öll börn eiga að ná. Tryggjum kennurum fjölbreytt, vönduð námsgögn og tæki sem hjálpa þeim að mæta ólíkum þörfum barna. Nýtum tæknina til að draga úr yfirferð, undirbúningi og umsýslu. Og verndum tíma kennarans svo hann geti farið í það sem skiptir mestu máli: að kenna, sjá hvaða barn er að dragast aftur úr og finna leiðina sem hjálpar því að ná þeirri færni sem það þarf. Við þurfum ekki fleiri ár í að staðfesta að vandinn sé til staðar. Við vitum það nú þegar. Næstu PISA-niðurstöður byrja að verða til í kennslustofum landsins í dag. Þegar þær birtast eigum við ekki aftur að spyrja hvað fór úrskeiðis. Við eigum að geta bent á það sem við gerðum öðruvísi: að við settum skýr markmið, færðum kennurum verkfærin til að ná þeim og gáfum þeim tíma til að sinna því starfi sem við réðum þá til að vinna. Gefum kennurum tíma til að kenna – og verkfærin til að ná til allra barna. Höfundur er formaður Þróunarsjóðs námsgagna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar