Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar 10. september 2026 13:02 Í vikunni sagði mennta- og barnamálaráðherra í viðtali að hún vildi hvetja fólk til að verða „leikskólakennarar og alvöru kennarar“. Orðin vöktu, eðlilega, hörð viðbrögð meðal leikskólakennara. Ráðherra baðst í kjölfarið afsökunar, sagði sér hafa orðið fótaskortur á tungunni og að hún liti „ofboðslega mikið upp til“ stéttarinnar. Hún útskýrði að hún hefði í raun ætlað að hvetja fólk til að verða „kennarar og sérhæfðir kennarar“. Ég trúi því að afsökunarbeiðnin hafi verið einlæg en ég held að hún hafi, ef eitthvað er, staðfest vandann frekar en að leysa hann. Því útskýringin sjálf að (leikskóla)kennarar eigi að verða „kennarar og sérhæfðir kennarar“ setur leikskólakennara enn fram sem hóp sem stendur fyrir utan þann flokk. Sama tvískiptingin lifir, bara í nýjum orðabúningi: annars vegar eru „kennarar“, hins vegar eru leikskólakennarar sem þurfa að vinna sig inn í þann hóp. Staðreyndin er sú að leikskólakennarar eru nú þegar bæði kennarar og sérhæfðir kennarar. Í kennaranámi velja þeir ólíkar leiðir og áherslur, meðal annars tengdar yngsta stigi grunnskóla, táknmáli, útinámi, forystu og skólaþróun, fullgildri þátttöku, máli og læsi. Umfram allt sérhæfa þeir sig í námi, þroska og menntun ungra barna, á æviskeiði þar sem lagður er grunnur að máli, hugsun, tilfinningaþroska og félagsfærni. Þetta er ekki minni sérhæfing en hjá öðrum kennarastéttum. Hún er einfaldlega annars eðlis. Þetta gerist ekki í tómarúmi Ég skrifa þennan pistil ekki fyrst og fremst til að fordæma einn ráðherra. Ég skrifa hann vegna þess að ég er þessa dagana að undirbúa fyrirlestur um fagmennsku og fagvitund leikskólakennara, þar sem ég fjalla um þá þætti sem móta hvernig fagvitund heillar stéttar verður til: viðhorf, menningarbundin áhrif, söguleg áhrif, hefðir, uppruna stéttarinnar, þjóðfélagsleg áhrif, áhrif stéttarinnar sjálfrar og áhrif stefnumörkunar og stjórnmála. Ummæli ráðherra og ekki síður skýringin sem fylgdi í kjölfarið eru nánast kennslubókardæmi um þetta allt í senn. Því orð spretta ekki upp úr engu. Þau eiga sér sögulegar og menningarlegar rætur. Leikskólinn var lengi flokkaður sem gæsla frekar en menntun. Fóstrur, eins og starfsheitið var áður, tóku upp starfsheitið leikskólakennarar undir lok síðustu aldar og sameiginleg löggjöf um starfsréttindi kennara á öllum skólastigum er enn yngri. Stéttin er, og hefur alltaf verið, yfirgnæfandi kvennastétt og sú staðreynd hefur sögulega fylgt lægra virðingarstigi og lakari kjörum en hjá öðrum kennarastéttum. Þessi hugsun að leikskólinn sé „fyrsta stigið“ í óeiginlegri merkingu, biðstofa áður en „alvöru“ námið hefst, situr djúpt í samfélaginu. Hún kemur ekki bara fram í tali eins ráðherra. Hún kemur fram í því hvernig við fjármögnum leikskólastigið, hvernig við mönnum það, hvernig við tölum um það í fjölmiðlum og hvernig við hugsum um það sjálf, hvert og eitt. Þess vegna held ég að rétt viðbrögð séu ekki einfaldlega að krefjast afsökunar og halda svo áfram eins og ekkert hafi í skorist. Rétt viðbrögð eru að nota þetta tækifæri til að skoða af hverju svona ummæli detta svona auðveldlega út úr okkur, ráðherrum jafnt sem almenningi, og hvað þarf til að breyta því. Ráðherra er ekki ein um þessa hugsunarvillu. Hún endurspeglar viðhorf sem eiga sér djúpar rætur í samfélaginu og við þurfum öll bæði vilja og auðmýkt til að vinna okkur út úr þeim. Það gerist með því að staldra við, hlusta og læra. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar er lagður mikilvægur grunnur að námi, þroska, líðan og þátttöku barna. Ef við viljum efla íslenskt menntakerfi verðum við því að byrja á því að viðurkenna fagmennsku þeirra sem starfa með börnum á fyrstu árum skólagöngunnar, ekki aðeins í stefnu og lögum heldur einnig í orðum, viðhorfum og verki. Vöndum okkur í tali Ég hvet ekki til þess að við eltum uppi hvert einasta mismæli með heift. Ég hvet til þess að við stöldrum við þegar svona ummæli falla, hjá ráðherrum, í fjölmiðlum, í hversdagslegu tali og spyrjum okkur af hverju þau detta svona auðveldlega út úr okkur. Það er ekki vísbending um vonda manneskju. Það er vísbending um viðhorf sem sitja djúpt og sem við þurfum öll, saman, að vinna í að breyta. Leikskólakennarar eru alvöru kennarar með sérhæfingu. Það er kominn tími til að orðræða okkar og hugsunin sem að baki henni býr endurspegli það. Höfundur er leikskólakennari, kennaramenntandi og dósent við menntavísindasvið HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar