Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Andri Broddason skrifar 14. október 2026 11:01 Nicolo Tresoldi gat fagnað vel eftir sigurinn í gær og fékk að eiga boltann eftir leik. Marco Luzzani/Getty Images Nicolo Tresoldi átti sannkallað draumakvöld þegar hann skoraði þrennu fyrir Club Brugge í 4-3 sigri liðsins á Inter Milan í Meistaradeild Evrópu karla í gær. Hann náði því að hefna sín á ítölskum félögum eftir að hafa verið hafnað af þeim þegar hann var yngri.
Tresoldi fæddist á Ítalíu og ólst þar upp. Hann byrjaði ungur að æfa bæði tennis og fótbolta en honum gekk betur í fótbolta og reyndi pabbi hans að koma honum fyrir í unglingaliðum á Ítalíu. Eftir að Tresoldi skoraði 12 mörk í leik gegn strákum sem voru tveim árum eldri en hann var pabbi hans viss um að hann gæti náð langt. Þeir feðgarnir fóru til ýmissa liða eins og Atalanta, Fiorentina og Juventus en ekkert lið vildi fá hann í liðið. Hann hélt áfram að spila í litla smábænum sínum á Ítalíu þangað til hann flutti til Þýskalands með fjölskyldu sinni. Fjölskyldan flutti vegna þess að móðir hans var að vinna þar sem flugfreyja. Þar gekk hann í unglingalið Hannover 96 og vann sig þaðan upp í aðalliðið. Eftir að hafa staðið sig vel þar í nokkur ár keypti Club Brugge hann á síðasta tímabili og byrjaði hann strax að raða inn mörkum fyrir félagið. Liðið heimsótti Inter Milan í gær þar sem Tresoldi gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk gegn Inter og náði því að hefna sín á ítölsku félögunum sem vildu ekki fá hann í liðið. Tresoldi hefur spilað leiki fyrir bæði U19 og U21 landslið Þýskalands en hann hefur enn ekki ákveðið hvort hann vilji spila fyrir þýska eða ítalska landsliðið. Ef hann heldur áfram góðu gengi sínu með Club Brugge þá er ekki langt í að hann þurfi að ákveða með hvaða landsliði hann vill spila með.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Ítalski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Sjá meira