Íslenski boltinn

FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitt­hvað“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gils Gíslason er einkar sprettharður ungur maður.
Gils Gíslason er einkar sprettharður ungur maður. Vísir/Sigurjón

Gils Gíslason mældist á 37,5 kílómetra hraða þegar hann tók um 40 metra sprett í leik við Víking í Kaplakrika fyrr í sumar. Það er hærri tala en þeir sneggstu í Evrópu.

Sé litið yfir hraðasta sprett leikmanna í stærstu fimm deildum Evrópu á síðustu leiktíð (England, Frakkland, Ítalía, Spánn, Þýskaland) var enginn sem náði svo hröðum spretti.

Klippa: FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Einn mesti íþróttmaður sem ég hef þjálfað“

Gils hefur ekki mikið fyrir hraðanum að eigin sögn.

Hvernig verður maður svona fljótur?

„Úff, ég veit það ekki. Góð gen eða eitthvað,“ segir Gils og hlær.

„Ég held þetta renni bara í fjölskyldunni. Mamma og afi voru mjög fljót og systkini hennar. Ætli ég hafi ekki fengið bestu genin þaðan,“ segir hann enn fremur.

Á pari við Íslandsmeistara í spretthlaupum

Kristófer Þorgrímsson, Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi og einn allra sneggsti maður landsins, er jafnframt styrktarþjálfari karlaliðs FH í fótbolta og heldur utan um GPS-mælingar sem mældu þennan svakalega hraða Gils í leiknum við Víking.

„Hann er bara rosalegur. Þetta er einn mesti íþróttamaður sem ég hef nokkurn tímann þjálfað. Hann er náttúrulega hraður og sterkur,“ segir Kristófer.

Kristófer Þorgrímsson, Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi og styrktarþjálfari fótboltaliðs FH.Vísir/Sigurjón

Það fylgir þá sögunni að Gils hefur ekki æft frjálsar íþróttir eða æft spretthraða sérstsaklega.

„Þetta er bara svo náttúrulegt. Ég hef eiginlega ekki þurft að kenna honum neitt. Það er bara að gera hann aðeins betri í því sem hann gerir. Annars er þetta bara meðfætt,“

„Ég tók þessi GPS-hlaupavesti sem þeir nota um daginn og ég held að ég hafi rétt svo farið yfir Gils. Og ég á að vera einn af hröðustu mönnum landsins – sem segir sitt um hversu hraður hann er,“ segir Kristófer, sem líkt og áður segir er Íslandsmeistari í spretthlaupum.

Sneggri en stjörnurnar

Sneggstur var Jackson Tchatchoua, leikmaður Wolves, sem náði 37,3 km/h spretti og næstur var Oliver Burke í RB Leipzig sem náði 37,0. Aðrir leikmenn náðu ekki upp í 37 kílómetra hraðann á spretti síðasta vetur.

Vinicius Junior náði ekki sama hraða og Gils.EPA

Á meðal manna sem náðu ekki upp í 37 kílómetra hraðann eru til að mynda sprettharðir menn á við Jeremie Frimpong (36,18), Erling Haaland (36,20), Anthony Elanga (36,35) og Vinicius Junior (36,42) sem allir eru fyrir neðan Gils.

Er það ekkert klikkað?

„Jú, þegar maður pælir í því. En svo er maður alltaf að clocka nálægt þessu svo maður bara venst því bara meira og meira.“

Ertu þá fljótastur í Evrópu?

„Nei, það held ég ekki,“ segir Gils og hlær.

Klár ef Jói Kalli segir já

Frjálsíþróttadeild FH, þar á meðal Kristófer, hefur plokkað aðeins í Gils og stefnan að reyna að fá Gils til að taka þátt á sprettmóti í vetur.

„Ég ætla nú ekki að stela honum úr fótboltanum, hann er það góður í fótbolta. En það væri mjög gaman að sjá hann taka allavega eitt spretthlaup og ég er viss um að hann er í topp þrjú í spretthlaupi á Íslandi,“ segir Kristófer.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, þarf að gefa leyfi svo Gils geti reynt við eins og eitt sprettmót í vetur.Vísir/Hulda Margrét

„Eigum við ekki bara að sjá hvað Jói Kalli (Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH) segir, hvort ég fái að prófa það eða ekki,“ segir Gils um hugmyndina.

Þannig að ef að Jói Kalli segir já ertu klár?

„Já, maður er alltaf klár.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×