Fleiri fréttir Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgar um 14,6% Samtals komu 35,8 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar síðastliðnum borið saman við 31,2 þúsund farþega í janúar í fyrra. 4.2.2011 09:54 Nýskráningar bíla jukust um 74% milli ára í janúar Nýskráningar bíla í janúar síðast liðnum voru 232 miðað við 133 í janúar í fyrra. Þetta er 74,4% aukning milli ára. 4.2.2011 09:47 Fulltrúar frá 14 löndum á Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic 2011 er stærsta ferðakaupstefnan sem haldin er á Íslandi. Hún er nú haldin í 19. sinn. 4.2.2011 09:44 Kortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra miðað við árið áður. Debetkortavelta jókst um 3,7% á sama tíma. Samtals jókstv greiðslukortavelta heimila á síðasta ári um 5,7%. 4.2.2011 09:44 Afli fyrir tvo milljarða á uppboðsmarkað í fyrra Á árinu 2010 var samtals landað yfir uppboðsmarkað hjá Faxaflóahöfnum 7.250 tonnum af fiski fyrir rétt um tvo þúsund milljónir króna. 4.2.2011 09:09 Vöruskiptin bötnuðu um 31 milljarð milli ára Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2010 fluttar út vörur fyrir 560,6 milljarða króna en inn fyrir 442,1 milljarð króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 118,6 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 87,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 31,2 milljörðum króna hagstæðari en árið áður. 4.2.2011 09:06 Netsmellur Icelandair aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Icelandair. Kemur málið því aftur til efnislegrar meðferðar hjá héraðsdómi. 4.2.2011 08:14 Samkeppniseftirlitið ógildir ekki samruna svínabúa Að mati Samkeppniseftirlitsins er ljóst að kaup Stjörnugríss á svínabúunum í eigu Arion banka skapar umtalsverðar samkeppnishömlur. Með vísan til framkominna gagna og upplýsinga er það hins vegar mat Samkeppniseftirlitsins að sú breyting á markaðnum sem felst í samrunanum sé óhjákvæmileg miðað við þær aðstæður sem uppi eru í málinu. Því er ekki unnt samkvæmt samkeppnislögum að ógilda samrunann. 4.2.2011 08:08 Kúlulánafélag olíuforstjóra gjaldþrota Einarsmelur 18, félag Einars Arnar Ólafssonar, forstjóra Skeljungs og fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið var stofnað í maí árið 2008 og hélt utan um rúmlega 800 milljóna króna kúlulán sem Glitnir veitti Einari til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Veðin voru bréfin sjálf. Þau urðu verðlaus með falli bankans í byrjun október sama ár og sitja aðeins skuldir eftir í félaginu. 4.2.2011 08:00 Æskilegt að kljúfa sundur viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir hagsmunaárekstra hugsanlega vegna samþættingar viðskipta- og fjárfestingarbankastarsfemi, líkt og við stofnfjárútboð Byrs Sparisjóðs. Hann segir æskilegast að kljúfa slíka starfsemi í sundur. 3.2.2011 19:34 Vilja koma útblásturlausum vetnisbílum á norrænan markað Hyundai - Kia Motors og helstu hagsmunaaðilar vetnis í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Íslandi hafa undirritað viljayfirlýsingu um samvinnu við að koma útblásturslausum vetnisrafbílum á markað. 3.2.2011 13:35 Segir Sigmund Davíð snúa Icesave áhættu á hvolf Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins misskilji áhættuna af nýjum Icesave-samningi. Raunar snúi Sigmundur Davíð áhættunni á hvolf. 3.2.2011 11:23 Ríkiskaup gera rammasamning við RV Í kjölfar nýlegs útboðs Ríkiskaupa á hreinlætisvörum og hreinlætispappír, hafa Ríkiskaup ákveðið að semja við Rekstrarvörur (RV). 3.2.2011 11:10 Nokkuð dregur úr umfangi hópuppsagna á landinu Nokkuð hefur dregið úr fjölda þeirra sem sagt hefur verið upp í hópuppsögnum á síðustu sex mánuðum m.v. sama tímabil fyrir ári. Fjöldinn er 433 manns sem sagt hefur verið upp með þessum hætti s.l. sex mánuði samanborið við 532 á sama tímabili fyrir ári. 3.2.2011 10:31 SagaPro náttúruvaran komin í landsdreifingu í Kanada Markviss vöruþróun og öflugt markaðsstarf fyrirtækisins SagaMedica hefur skilað þeim árangri að SagaPro nátttúruvaran er nú komin í landsdreifingu í Kanada og jafnframt hefur náðst mjög athyglisverður árangur í Bandaríkjunum. 3.2.2011 09:34 Gistinóttum fækkar um rúm 3% Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 54.000 en 56.000 í sama mánuði árið 2009. Er þetta fækkun um rúm 3%. 3.2.2011 09:05 Sala á Lenovo tölvubúnaði jókst um 60% í fyrra Vörusala á tölvum og tæknibúnaði var yfir áætlunum hjá Nýherja á árinu 2010 og jókst sala mikið í flestum vöruflokkum miðað við árið á undan. Eftirspurn eftir Lenovo tölvubúnaði var mikil og jókst sala um 60% í íslenskum krónum miðað við árið á undan, að því er fram kemur í ársuppgjöri Nýherja. 3.2.2011 08:56 Tvö félög Kalla í Pelsinum eru gjaldþrota Félögin Eignamiðjan ehf. og Kirkjuhvoll ehf., sem nú heitir Eignarhaldsfélagið Vindasúlur ehf., voru tekin til gjaldþrotaskipta í janúar. Félögin voru í eigu Karls Steingrímssonar, sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, auk Ester Ólafsdóttur, sem átti helmingshlut í Kirkjuhvol samkvæmt ársreikningi félagsins árið 2008. 3.2.2011 08:22 Segja síðasta ár hafa verið gott Marel hagnaðist um 13,6 milljónir evra, jafnvirði 2,2 milljarða króna á síðasta ári. Fyrirtækið tapaði 11,8 milljónum evra árið 2009. Þar af nam hagnaðurinn 5,5 milljónum evra í fyrra samanborið við 23 milljóna evra tap ári fyrr. Tekjur í fyrra námu um 600 milljónum evra. Þar af námu tekjur af kjarnastarfsemi 582,1 milljón evra og jukust um 34 prósent frá fyrra ári. Í uppgjöri Marels segir að síðasta ár hafi verið mjög gott. - jab 3.2.2011 06:00 Ekki hægt að gefa sér frekari lækkanir 3.2.2011 03:00 Bifreiðaumboðið Hekla selt Arion banki hefur selt Friðberti Friðbertssyni og Franz Jeroski Heklu hf. Bifreiðarumboðið var auglýst til sölu þann 16. september síðastliðinn og bárust tólf tilboð bankanum. Fimm tilboðsgjafar héldu áfram í söluferlinu. 2.2.2011 19:28 Afsökunarbeiðni Í netútgáfu Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins, birtist í morgun frétt um meint tengsl Hrundar Rudolfsdóttur, stjórnarformanns Stefnis, við rekstur Sjóvár áður en félagið var yfirtekið af ríkinu. Fréttin var hálfunnin og 2.2.2011 17:18 Actavis áfrýjar í Bandaríkjunum Lyfjafyrirtækið Actavis hefur ákveðið að áfrýja máli sem fyrirtækið tapaði í Bandaríkjunum í gær. Dómari dæmdi þá tvær starfsstöðvar fyrirtæksins í hæstu sekt sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Starfsstöðvarnar voru dæmdar til að greiða um það bil 20 milljarða króna í sekt fyrir að hækka verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Til samanburðar eru það tveir þriðju af niðurskurði í fjárlögum ársins. 2.2.2011 14:37 Seðlabankinn: Atvinnuleysi nær hámarki í 8,5% Atvinnuleysishorfur eru svipaðar í uppfærðri spá Seðlabankans og þær voru í nóvember. Reiknar bankinn með að atvinnuleysi komi til með að aukast á fyrri hluta ársins og nái hámarki í 8,5% á fyrsta fjórðungi. 2.2.2011 13:03 Sekt Actavis nemur tveimur þriðju af niðurskurði í fjárlögum Tvær starfsstöðvar Actavis hafa fengið hæstu sekt sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Starfsstöðvarnar voru dæmdar til að greiða um það bil 20 milljarða króna í sekt fyrir að hækka verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Til samanburðar eru það tveir þriðju af niðurskurði í fjárlögum ársins. 2.2.2011 12:08 Kraftmikill, mjúkur og rúmgóður bíll Yfir Heiðina með Óla Kristjáni: Ford Edge SEL Plus af 2007-árgerðinni er sportlegur jepplingur sem sökum framúrstefnulegs útlits vekur áhuga. 2.2.2011 12:00 Íbúðalánasjóð skortir lagaheimild til færa niður lán Íbúðalánasjóð skortir heimild í lögum til að afgreiða umsóknir um niðurfærslu fasteignalána. Velferðarráðherra segir að lagabreyting sé á leiðinni inn í þingið. Ljóst er að skuldarar þurfa að bíða töluvert lengur en vonir stóðu til þegar samkomulag um aðlögun fasteignalána var undirritað um miðjan janúar. 2.2.2011 11:00 Seðlabankastjóri: Óvissa um vaxtaþróun á næstunni Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að óvissa ríki nú um vaxtaþróun hjá bankanum á næstunni. Ekki sé lengur hægt að ganga að því vísu að vextir lækki jafn hratt og mikið og verið hefur á liðnu ári. 2.2.2011 10:50 Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti í ár Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti á landinu í ár sem er nokkru meira en bankinn spáði í nóvember s.l. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans sem gefin voru út í morgun í tengslum við vaxtaákvörðunina. 2.2.2011 10:13 Botninum gæti verið náð í vaxtalækkunnarferlinu Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að stóru tíðindin í tilkynningu Peningastefnunefndar um vaxtalækkunina í morgun gætu verið að botninum sé náð í vaxtalækkunnarferlinu að sinni. 2.2.2011 09:19 Segja nauðsynlegt að greina á milli nýja Spkef og þess gamla Ný stjórn og nýr sparisjóðsstjóri Spkef hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að nauðynlegt sé að aðgreina á milli aðila þegar fjallað er um lánveitingaákvarðanir Sparisjóðs Keflavíkur. „Þann 22. apríl 2010 var nýr sparisjóður reistur við undir merkjum Spkef sparisjóðs. Rannsókn stendur nú yfir af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á gamla Sparisjóði Keflavíkur og sinnir PWC þeirri rannsókn fyrir hönd FME. Stjórn og sparisjóðsstjóri nýja Spkef telja nauðsynlegt að bíða endanlegra niðurstaðna rannsóknar FME til að fá heildarmynd af starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur áður en hægt er að fella einhverja dóma byggða á umfjöllun fjölmiðla.“ 2.2.2011 09:10 Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. 2.2.2011 09:05 Framsókn: Viðskiptalífið verra en það var fyrir hrun Stjórn ungra Framsóknarmanna óttast að viðskiptalífið í landinu sé að þróast til enn verri vegar en fyrir hrun. 2.2.2011 07:50 Buðu 47,8 milljarða í Icelandic 2.2.2011 00:01 Actavis dæmt til að greiða 20 milljarða í sekt Tvær starfsstöðvar Actavis í Bandaríkjunum voru í dag dæmdar til að greiða 170 milljón dala, eða 20 milljarða króna, sekt. Ástæðan er sú að sannað þótti að fyrirtækið hafi hækkað verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni er um að ræða starfsstöðvarnar Actavis Mid-Atlantic LLC and Actavis Elizabeth LLC. 1.2.2011 22:59 Þór gerir innreið í Hagkaup Hagkaup og framleiðslufyrirtækið CAOZ hafa gert með sér samning um framleiðslu og sölu á fatnaði og ýmsum öðrum vörum er tengjast vörumerkinu Hetjur Valhallar-Þór. Samningur þess eðlis var undirritaður í verslun Hagkaups í Smáralindinni í síðustu viku. 1.2.2011 20:30 Opnir fundir með stjórnendum Landsbankans um land allt Stjórnendur Landsbankans munu á næstu dögum efna til opinna funda um allt land til að kynna nýja stefnu bankans og framtíðarsýn, „þær breytingar sem gerðar hafa verið á starfsemi bankans og aðgerðaáætlun næstu mánaða,“ segir í tilkynningu frá bankanum. 1.2.2011 17:23 Viðræðum Framtakssjóðsins við Triton slitið Stjórn Framtakssjóðs Íslands hafnaði í dag tilboði Triton í verksmiðjurekstur Icelandic Group. Viðræðum sem hafa staðið yfir undanfarnar vikur er því lokið. 1.2.2011 17:18 Söluferli Icelandic Group til Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitinu hefur borist kvörtun frá bandarískum fjárfestum vegna söluferlis Icelandic Group. Kvörtunin barst seint í gærkvöldið samvkæmt fréttamiðli Viðskiptablaðsins, vb.is. 1.2.2011 16:07 Samtök atvinnulífsins vilja fara „Atvinnuleiðina“ Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur eindregið til samstöðu milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og Alþingis um að marka svokallaða „Atvinnuleið“ út úr því „kreppuástandi sem nú ríkir í atvinnulífinu og samfélaginu öllu og birtist í slæmri stöðu fjölda fyrirtækja og atvinnuleysi 14000 manns.“ 1.2.2011 16:01 Meðallækkun höfuðstóls 41% eftir endurútreikning Landsbankinn er nú að ljúka endurútreikningi á erlendum íbúðalánum. Þetta á við þau lán sem falla undir lög um vexti og verðtryggingu frá því í desember á síðasta ári. Tæplega 2.800 lán koma til endurútreiknings hjá Landsbankanum. Lækkun höfuðstóls erlendra lána verður aldrei minni en 25% en meðallækkun höfuðstóls er 41%. Dæmi eru um, þegar greitt hefur verið af lánum samkvæmt upphaflegum skilmálum, að lækkun höfuðstóls geti orðið talsvert meiri eða allt að 70%. 1.2.2011 15:59 Fulltrúar AGS vinna að fimmtu endurskoðun Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru staddir hér á landi til þess að vinna að fimmtu endurskoðun á samstarfssamningi sjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Franek Rozwadovski talsmanni sjóðsins hér á landi. Hópurinn kom til landsins í gær og áætlað er að þeir haldi af landi brott þann 7. febrúar næstkomandi. 1.2.2011 12:49 Verðbólguvæntingar undir markmiði Seðlabankans Stjórnendur á meðal stærstu fyrirtækja landsins vænta þess að verðbólgan næstu 12 mánuði verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Þetta eru niðurstöður könnunar Capacent Gallup sem Seðlabankinn hefur nú birt. 1.2.2011 11:26 Bandaríkjamenn fylgjast með söluferli Icelandic Group Bandarísk stjórnvöld fylgjast með söluferli Icelandic Group og vilja vita hvers vegna bandarískum fjárfestingasjóðum er ekki gefið tækifæri til að bjóða í félagið. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskliptablaðisins sem aftur vitnar í fréttamiðillinn IntraFish. 1.2.2011 11:20 GAMMA: Meðaldagveltan 10 milljarðar í janúar Meðaldagsvelta á skuldabréfamarkaðinjm í janúar var um 10,2 milljarðar kr. Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti GAMMA um janúarmánuð. 1.2.2011 11:13 Sjá næstu 50 fréttir
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgar um 14,6% Samtals komu 35,8 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar síðastliðnum borið saman við 31,2 þúsund farþega í janúar í fyrra. 4.2.2011 09:54
Nýskráningar bíla jukust um 74% milli ára í janúar Nýskráningar bíla í janúar síðast liðnum voru 232 miðað við 133 í janúar í fyrra. Þetta er 74,4% aukning milli ára. 4.2.2011 09:47
Fulltrúar frá 14 löndum á Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic 2011 er stærsta ferðakaupstefnan sem haldin er á Íslandi. Hún er nú haldin í 19. sinn. 4.2.2011 09:44
Kortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í fyrra miðað við árið áður. Debetkortavelta jókst um 3,7% á sama tíma. Samtals jókstv greiðslukortavelta heimila á síðasta ári um 5,7%. 4.2.2011 09:44
Afli fyrir tvo milljarða á uppboðsmarkað í fyrra Á árinu 2010 var samtals landað yfir uppboðsmarkað hjá Faxaflóahöfnum 7.250 tonnum af fiski fyrir rétt um tvo þúsund milljónir króna. 4.2.2011 09:09
Vöruskiptin bötnuðu um 31 milljarð milli ára Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2010 fluttar út vörur fyrir 560,6 milljarða króna en inn fyrir 442,1 milljarð króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 118,6 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 87,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 31,2 milljörðum króna hagstæðari en árið áður. 4.2.2011 09:06
Netsmellur Icelandair aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Icelandair. Kemur málið því aftur til efnislegrar meðferðar hjá héraðsdómi. 4.2.2011 08:14
Samkeppniseftirlitið ógildir ekki samruna svínabúa Að mati Samkeppniseftirlitsins er ljóst að kaup Stjörnugríss á svínabúunum í eigu Arion banka skapar umtalsverðar samkeppnishömlur. Með vísan til framkominna gagna og upplýsinga er það hins vegar mat Samkeppniseftirlitsins að sú breyting á markaðnum sem felst í samrunanum sé óhjákvæmileg miðað við þær aðstæður sem uppi eru í málinu. Því er ekki unnt samkvæmt samkeppnislögum að ógilda samrunann. 4.2.2011 08:08
Kúlulánafélag olíuforstjóra gjaldþrota Einarsmelur 18, félag Einars Arnar Ólafssonar, forstjóra Skeljungs og fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið var stofnað í maí árið 2008 og hélt utan um rúmlega 800 milljóna króna kúlulán sem Glitnir veitti Einari til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Veðin voru bréfin sjálf. Þau urðu verðlaus með falli bankans í byrjun október sama ár og sitja aðeins skuldir eftir í félaginu. 4.2.2011 08:00
Æskilegt að kljúfa sundur viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir hagsmunaárekstra hugsanlega vegna samþættingar viðskipta- og fjárfestingarbankastarsfemi, líkt og við stofnfjárútboð Byrs Sparisjóðs. Hann segir æskilegast að kljúfa slíka starfsemi í sundur. 3.2.2011 19:34
Vilja koma útblásturlausum vetnisbílum á norrænan markað Hyundai - Kia Motors og helstu hagsmunaaðilar vetnis í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Íslandi hafa undirritað viljayfirlýsingu um samvinnu við að koma útblásturslausum vetnisrafbílum á markað. 3.2.2011 13:35
Segir Sigmund Davíð snúa Icesave áhættu á hvolf Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins misskilji áhættuna af nýjum Icesave-samningi. Raunar snúi Sigmundur Davíð áhættunni á hvolf. 3.2.2011 11:23
Ríkiskaup gera rammasamning við RV Í kjölfar nýlegs útboðs Ríkiskaupa á hreinlætisvörum og hreinlætispappír, hafa Ríkiskaup ákveðið að semja við Rekstrarvörur (RV). 3.2.2011 11:10
Nokkuð dregur úr umfangi hópuppsagna á landinu Nokkuð hefur dregið úr fjölda þeirra sem sagt hefur verið upp í hópuppsögnum á síðustu sex mánuðum m.v. sama tímabil fyrir ári. Fjöldinn er 433 manns sem sagt hefur verið upp með þessum hætti s.l. sex mánuði samanborið við 532 á sama tímabili fyrir ári. 3.2.2011 10:31
SagaPro náttúruvaran komin í landsdreifingu í Kanada Markviss vöruþróun og öflugt markaðsstarf fyrirtækisins SagaMedica hefur skilað þeim árangri að SagaPro nátttúruvaran er nú komin í landsdreifingu í Kanada og jafnframt hefur náðst mjög athyglisverður árangur í Bandaríkjunum. 3.2.2011 09:34
Gistinóttum fækkar um rúm 3% Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 54.000 en 56.000 í sama mánuði árið 2009. Er þetta fækkun um rúm 3%. 3.2.2011 09:05
Sala á Lenovo tölvubúnaði jókst um 60% í fyrra Vörusala á tölvum og tæknibúnaði var yfir áætlunum hjá Nýherja á árinu 2010 og jókst sala mikið í flestum vöruflokkum miðað við árið á undan. Eftirspurn eftir Lenovo tölvubúnaði var mikil og jókst sala um 60% í íslenskum krónum miðað við árið á undan, að því er fram kemur í ársuppgjöri Nýherja. 3.2.2011 08:56
Tvö félög Kalla í Pelsinum eru gjaldþrota Félögin Eignamiðjan ehf. og Kirkjuhvoll ehf., sem nú heitir Eignarhaldsfélagið Vindasúlur ehf., voru tekin til gjaldþrotaskipta í janúar. Félögin voru í eigu Karls Steingrímssonar, sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, auk Ester Ólafsdóttur, sem átti helmingshlut í Kirkjuhvol samkvæmt ársreikningi félagsins árið 2008. 3.2.2011 08:22
Segja síðasta ár hafa verið gott Marel hagnaðist um 13,6 milljónir evra, jafnvirði 2,2 milljarða króna á síðasta ári. Fyrirtækið tapaði 11,8 milljónum evra árið 2009. Þar af nam hagnaðurinn 5,5 milljónum evra í fyrra samanborið við 23 milljóna evra tap ári fyrr. Tekjur í fyrra námu um 600 milljónum evra. Þar af námu tekjur af kjarnastarfsemi 582,1 milljón evra og jukust um 34 prósent frá fyrra ári. Í uppgjöri Marels segir að síðasta ár hafi verið mjög gott. - jab 3.2.2011 06:00
Bifreiðaumboðið Hekla selt Arion banki hefur selt Friðberti Friðbertssyni og Franz Jeroski Heklu hf. Bifreiðarumboðið var auglýst til sölu þann 16. september síðastliðinn og bárust tólf tilboð bankanum. Fimm tilboðsgjafar héldu áfram í söluferlinu. 2.2.2011 19:28
Afsökunarbeiðni Í netútgáfu Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins, birtist í morgun frétt um meint tengsl Hrundar Rudolfsdóttur, stjórnarformanns Stefnis, við rekstur Sjóvár áður en félagið var yfirtekið af ríkinu. Fréttin var hálfunnin og 2.2.2011 17:18
Actavis áfrýjar í Bandaríkjunum Lyfjafyrirtækið Actavis hefur ákveðið að áfrýja máli sem fyrirtækið tapaði í Bandaríkjunum í gær. Dómari dæmdi þá tvær starfsstöðvar fyrirtæksins í hæstu sekt sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Starfsstöðvarnar voru dæmdar til að greiða um það bil 20 milljarða króna í sekt fyrir að hækka verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Til samanburðar eru það tveir þriðju af niðurskurði í fjárlögum ársins. 2.2.2011 14:37
Seðlabankinn: Atvinnuleysi nær hámarki í 8,5% Atvinnuleysishorfur eru svipaðar í uppfærðri spá Seðlabankans og þær voru í nóvember. Reiknar bankinn með að atvinnuleysi komi til með að aukast á fyrri hluta ársins og nái hámarki í 8,5% á fyrsta fjórðungi. 2.2.2011 13:03
Sekt Actavis nemur tveimur þriðju af niðurskurði í fjárlögum Tvær starfsstöðvar Actavis hafa fengið hæstu sekt sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Starfsstöðvarnar voru dæmdar til að greiða um það bil 20 milljarða króna í sekt fyrir að hækka verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Til samanburðar eru það tveir þriðju af niðurskurði í fjárlögum ársins. 2.2.2011 12:08
Kraftmikill, mjúkur og rúmgóður bíll Yfir Heiðina með Óla Kristjáni: Ford Edge SEL Plus af 2007-árgerðinni er sportlegur jepplingur sem sökum framúrstefnulegs útlits vekur áhuga. 2.2.2011 12:00
Íbúðalánasjóð skortir lagaheimild til færa niður lán Íbúðalánasjóð skortir heimild í lögum til að afgreiða umsóknir um niðurfærslu fasteignalána. Velferðarráðherra segir að lagabreyting sé á leiðinni inn í þingið. Ljóst er að skuldarar þurfa að bíða töluvert lengur en vonir stóðu til þegar samkomulag um aðlögun fasteignalána var undirritað um miðjan janúar. 2.2.2011 11:00
Seðlabankastjóri: Óvissa um vaxtaþróun á næstunni Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að óvissa ríki nú um vaxtaþróun hjá bankanum á næstunni. Ekki sé lengur hægt að ganga að því vísu að vextir lækki jafn hratt og mikið og verið hefur á liðnu ári. 2.2.2011 10:50
Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti í ár Seðlabankinn spáir nú 2,8% hagvexti á landinu í ár sem er nokkru meira en bankinn spáði í nóvember s.l. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans sem gefin voru út í morgun í tengslum við vaxtaákvörðunina. 2.2.2011 10:13
Botninum gæti verið náð í vaxtalækkunnarferlinu Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að stóru tíðindin í tilkynningu Peningastefnunefndar um vaxtalækkunina í morgun gætu verið að botninum sé náð í vaxtalækkunnarferlinu að sinni. 2.2.2011 09:19
Segja nauðsynlegt að greina á milli nýja Spkef og þess gamla Ný stjórn og nýr sparisjóðsstjóri Spkef hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að nauðynlegt sé að aðgreina á milli aðila þegar fjallað er um lánveitingaákvarðanir Sparisjóðs Keflavíkur. „Þann 22. apríl 2010 var nýr sparisjóður reistur við undir merkjum Spkef sparisjóðs. Rannsókn stendur nú yfir af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á gamla Sparisjóði Keflavíkur og sinnir PWC þeirri rannsókn fyrir hönd FME. Stjórn og sparisjóðsstjóri nýja Spkef telja nauðsynlegt að bíða endanlegra niðurstaðna rannsóknar FME til að fá heildarmynd af starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur áður en hægt er að fella einhverja dóma byggða á umfjöllun fjölmiðla.“ 2.2.2011 09:10
Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. 2.2.2011 09:05
Framsókn: Viðskiptalífið verra en það var fyrir hrun Stjórn ungra Framsóknarmanna óttast að viðskiptalífið í landinu sé að þróast til enn verri vegar en fyrir hrun. 2.2.2011 07:50
Actavis dæmt til að greiða 20 milljarða í sekt Tvær starfsstöðvar Actavis í Bandaríkjunum voru í dag dæmdar til að greiða 170 milljón dala, eða 20 milljarða króna, sekt. Ástæðan er sú að sannað þótti að fyrirtækið hafi hækkað verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum. Samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni er um að ræða starfsstöðvarnar Actavis Mid-Atlantic LLC and Actavis Elizabeth LLC. 1.2.2011 22:59
Þór gerir innreið í Hagkaup Hagkaup og framleiðslufyrirtækið CAOZ hafa gert með sér samning um framleiðslu og sölu á fatnaði og ýmsum öðrum vörum er tengjast vörumerkinu Hetjur Valhallar-Þór. Samningur þess eðlis var undirritaður í verslun Hagkaups í Smáralindinni í síðustu viku. 1.2.2011 20:30
Opnir fundir með stjórnendum Landsbankans um land allt Stjórnendur Landsbankans munu á næstu dögum efna til opinna funda um allt land til að kynna nýja stefnu bankans og framtíðarsýn, „þær breytingar sem gerðar hafa verið á starfsemi bankans og aðgerðaáætlun næstu mánaða,“ segir í tilkynningu frá bankanum. 1.2.2011 17:23
Viðræðum Framtakssjóðsins við Triton slitið Stjórn Framtakssjóðs Íslands hafnaði í dag tilboði Triton í verksmiðjurekstur Icelandic Group. Viðræðum sem hafa staðið yfir undanfarnar vikur er því lokið. 1.2.2011 17:18
Söluferli Icelandic Group til Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitinu hefur borist kvörtun frá bandarískum fjárfestum vegna söluferlis Icelandic Group. Kvörtunin barst seint í gærkvöldið samvkæmt fréttamiðli Viðskiptablaðsins, vb.is. 1.2.2011 16:07
Samtök atvinnulífsins vilja fara „Atvinnuleiðina“ Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur eindregið til samstöðu milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og Alþingis um að marka svokallaða „Atvinnuleið“ út úr því „kreppuástandi sem nú ríkir í atvinnulífinu og samfélaginu öllu og birtist í slæmri stöðu fjölda fyrirtækja og atvinnuleysi 14000 manns.“ 1.2.2011 16:01
Meðallækkun höfuðstóls 41% eftir endurútreikning Landsbankinn er nú að ljúka endurútreikningi á erlendum íbúðalánum. Þetta á við þau lán sem falla undir lög um vexti og verðtryggingu frá því í desember á síðasta ári. Tæplega 2.800 lán koma til endurútreiknings hjá Landsbankanum. Lækkun höfuðstóls erlendra lána verður aldrei minni en 25% en meðallækkun höfuðstóls er 41%. Dæmi eru um, þegar greitt hefur verið af lánum samkvæmt upphaflegum skilmálum, að lækkun höfuðstóls geti orðið talsvert meiri eða allt að 70%. 1.2.2011 15:59
Fulltrúar AGS vinna að fimmtu endurskoðun Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru staddir hér á landi til þess að vinna að fimmtu endurskoðun á samstarfssamningi sjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Franek Rozwadovski talsmanni sjóðsins hér á landi. Hópurinn kom til landsins í gær og áætlað er að þeir haldi af landi brott þann 7. febrúar næstkomandi. 1.2.2011 12:49
Verðbólguvæntingar undir markmiði Seðlabankans Stjórnendur á meðal stærstu fyrirtækja landsins vænta þess að verðbólgan næstu 12 mánuði verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Þetta eru niðurstöður könnunar Capacent Gallup sem Seðlabankinn hefur nú birt. 1.2.2011 11:26
Bandaríkjamenn fylgjast með söluferli Icelandic Group Bandarísk stjórnvöld fylgjast með söluferli Icelandic Group og vilja vita hvers vegna bandarískum fjárfestingasjóðum er ekki gefið tækifæri til að bjóða í félagið. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskliptablaðisins sem aftur vitnar í fréttamiðillinn IntraFish. 1.2.2011 11:20
GAMMA: Meðaldagveltan 10 milljarðar í janúar Meðaldagsvelta á skuldabréfamarkaðinjm í janúar var um 10,2 milljarðar kr. Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti GAMMA um janúarmánuð. 1.2.2011 11:13