Fjölmiðlafrumvarpi frestað fram yfir áramót Umræðu um fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra verður frestað fram yfir áramót og umsagnarfrestur um stofnun hálendisþjóðgarðs verður lengdur. Þetta er á meðal þess sem þingflokkarnir sömdu um í gærkvöldi þegar samkomulag náðist um afgreiðslu mála fyrir þinghlé. Samþykkt var að taka fyrstu umræðu um nokkur stjórnarmál, líkt og frumvarp fjármálaráðherra um afnám tvöfaldrar refsingar við skattalagabrotum og frumvörp félagsmálaráðherra um samþættingu á þjónustu fyrir börn. Innlent 9. desember 2020 20:00
Hinn grenjandi minnihluti Í umræðum um stofnun hálendisþjóðgarðs á Alþingi í gær voru flestir þingmenn sem tóku til máls andvígir stofnun hálendisþjóðgarðsins eða höfðu uppi verulega fyrirvara við stofnun garðsins. Skoðun 9. desember 2020 13:30
Spurði hvort „grenjandi minnihluti“ ætti að hafa neitunarvald varðandi hálendisþjóðgarð Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og þingmaður Vinstri grænna, blandaði sér í umræður á þingi í gærkvöldi um frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra, um hálendisþjóðgarð. Innlent 9. desember 2020 10:18
Alþingismenn samstíga um kjarabætur til öryrkja Fulltrúar allra flokka á Alþingi eru sammála um nauðsyn þess að frumvarp sem felur í sér fimmtíu þúsund króna eingreiðslu og hækkun skerðingamarka bóta öryrkja verði að lögum fyrir jól. Full samstaða á Alþingi er ekki algeng í málum sem þessum. Innlent 8. desember 2020 19:21
Spyr hvort eðlilegt sé að sami flokkur stýri ráðuneytinu og fari með formennsku í nefndinni Kristján Guy Burgess, kennari í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir nauðsynlegt að ræða það á vettvangi Alþingis hvort eðlilegt sé að utanríkisráðherra, formaður utanríkismálanefndar og nú jafnframt varaformaður nefndarinnar komi öll úr sama stjórnmálaflokki. Innlent 8. desember 2020 14:28
244 grásleppusjómenn vilja setja tegundina í kvóta Grásleppusjómenn afhentu sjávarútvegsráðherra stuðningsyfirlýsingu í morgun við frumvarp hans um kvótasetningu grásleppuveiða. Ríflega helmingur leyfishafa grásleppuveiða skrifaði undir. Ráðherrann segir að þetta sýni þörfina á að breyta veiðistjórnun tegundarinnar. Innlent 8. desember 2020 14:00
Alþingi og utanríkismálin Í framhaldi af greinum Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðings langaði mig að bæta við umræðuna um hlutverk Alþingis í utanríkismálum þjóðarinnar. Skoðun 8. desember 2020 10:31
54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni. Viðskipti innlent 7. desember 2020 21:00
Útgöngubann – aldrei án aðkomu Alþingis Ég skaust með grímuna út í Fjarðarkaup um daginn. Einu sinni sem oftar. Þegar ég kem að kjötborðinu stoppar maður mig með glaðsinna augu og grímuna á sínum stað og spyr hvernig það sé að vera á þingi á þessum tímum. Skoðun 7. desember 2020 18:30
Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist rúm 27 prósent Ný könnun MMR leiðir í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,1 prósent, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember. Innlent 7. desember 2020 12:05
Móðurmissirinn hafi engin áhrif haft á kröfu um afsögn án tafar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir ríkisstjórnina hafa misst fótanna í Landsréttarmálinu í fyrra og ætlað að láta það snúast um hana sem persónu. Það hafi ekki verið eitthvað sem hún hafi ætlað að sitja undir og því sagt af sér sem dómsmálaráðherra. Innlent 6. desember 2020 18:12
„Okkur finnst að lýðræði eigi að standa öllum til boða, ekki bara sumum“ Fulltrúar tuttugu sveitarfélaga hafa lagt fram tillögu til landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þess efnis að fallið verði frá hugmyndum um lögfestingu íbúalágmarks. Innlent 6. desember 2020 13:02
Ólögmætt uppgreiðslugjald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt uppgreiðslugjald lánþega á lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á árunum 2005-13 ólögleg. ÍLS var óheimilt að krefja lánþega um greiðslu uppgreiðslugjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Skoðun 6. desember 2020 10:01
Stuðningurinn víðtækari en fréttir gefi til kynna Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir stuðning við hugmyndir sínar um miðhálendisþjóðgarð víðtækari en fréttir gefi til kynna. Hann hyggst mæla fyrir frumvarpinu eftir helgi og er vongóður að það nái fram að ganga. Innlent 5. desember 2020 12:52
Sigríður og Sjallar utan svæðis Sinn er siðurinn í hverju landi þegar kemur að skyldum og skyldurækni í þeim störfum sem fólk, konur og karlar taka að sér í einhverskonar samfélagsþjónustu. Þau okkar sem starfa í almannaþjónustu og/eða í opinberri þjónustu eru þá oftar ekki bundin í þá klafa lagalega að þurfa bregðast við þeim erindum sem að þeim er beint. Skoðun 4. desember 2020 14:31
Enn af andvaraleysi Alþingis gagnvart utanríkismálum Í lok þessarar viku eru sjö mánuðir frá því að utanríkismál voru síðast á dagskrá Alþingis. Meira en hálft ár. Það er ef frá er talin 30 mínútna umræða um græna utanríkisstefnu í október sl. sem þrír þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku þátt í. Skoðun 4. desember 2020 11:00
Fjölmiðlafrumvarpi vísað í nefnd í þriðja sinn Frumvarpi menntamálaráðherra um almennan stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur verið vísað til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Það var gert að lokinni fyrstu umræðu á þingi í kvöld. Innlent 3. desember 2020 20:23
Öryrkjar fagna hugmyndum Brynjars um rannsókn Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segist fagna hugmyndum Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að rannsaka bótasvik í almannatryggingakerfinu og aðbúnað öryrkja almennt. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Þuríður Harpa sendir fyrir hönd ÖBÍ. Innlent 3. desember 2020 14:44
Dómsmálaráðuneytið þarf frí frá Sjálfstæðisflokknum Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar, telur afar mikilvægt að dómsmálaráðuneytið fái frí frá Sjálfstæðisflokknum næstu kjörtímabil. Skoðun 3. desember 2020 14:43
Frumvarp um greiðslur til íþróttafélaga komið inn á Alþingi Stjórnvöld á Íslandi ætla með nýju frumvarpi inn á Alþingi að koma til móts við hið mikla rekstraráfall sem íþróttahreyfingin hefur orðið fyrir á árinu vegna kórónuveirufaraldursins. Sport 3. desember 2020 09:15
Vill rannsaka hvort öryrkjar og bótaþegar sigli undir fölsku flaggi Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist finna mjög til með fólki sem eru allar bjargir bannaðar. Hins vegar þurfi þeir sem ekki eru í þeirri stöðu að bera sjálfir einhverja ábyrgð. Fjöldi öryrkja og fólks á atvinnuleysisbótum sé allt of mikill. Innlent 2. desember 2020 22:53
„Við berum okkar ábyrgð“ Þingmenn hafa streymt upp í pontu Alþingis í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag til að ræða Landsréttardóminn. Innlent 2. desember 2020 15:44
Vilja að beðist verði afsökunar Þrettán þingmenn tveggja flokka hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi lýsi því yfir að rangt hafi verið að samþykkja málshöfðun gegn fjórum ráðherrum í september 2010 vegna starfa þeirra í ríkisstjórn Íslands fyrir efnahagshrunið. Auk þess eigi ráðherrarnir skilið afsökunarbeiðni. Innlent 2. desember 2020 15:15
Hefur alltaf séð mjög eftir „já“-inu Fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, sem sat á Alþingi þegar Landsréttarmálið var afgreitt snemmsumars 2017, segist alltaf hafa séð mjög eftir því að hafa greitt atkvæði með málinu. Þá segir hann Sjálfstæðisflokkinn hafa beitt aðra stjórnarflokka miklum þrýstingi í málinu á sínum tíma og lýsir hótunum um stjórnarslit „við minnsta tilefni“. Innlent 1. desember 2020 23:22
„Hentar ekki málstað sumra að ræða málefnalega um niðurstöðuna“ Í „pólitískum átökum“ um skipan Landsréttar gleymist oft að ræða hið eiginlega mál sem sem Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm um í dag. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook. Innlent 1. desember 2020 21:20
Sigríður segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu með dómi sínum í dag varðandi skipan dómara í Landsrétt. En dómurinn gagnrýnir hana og Alþingi fyrir hvernig staðið var að skipan dómaranna fimmtán. Innlent 1. desember 2020 19:20
Gerir sér ekki vonir um að hver einasti landsmaður verði sáttur Umhverfisráðherra telur komið til móts við athugasemdir í nýju frumvarpi um hálendisþjóðgarð en segir ekki hægt að gera öllum til geðs. Sveitarstjóri segist enn mótfallin málinu. Innlent 1. desember 2020 19:01
Niðurstaðan skýrari að mati Katrínar en vonbrigði að sögn Áslaugar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að niðurstaða yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu sé skýrari en dómur undirdeildarinnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir niðurstöðuna vonbrigði. Innlent 1. desember 2020 13:08
Þingmaður talar um svartan dag í sögu íslenskrar stjórnskipunar Helga Vala Helgadóttir segist ekki lengur geta treyst íslenskum stjórnvöldum eftir að dóm MDE í Landsréttarmálinu. Innlent 1. desember 2020 13:04
Mótfallin hálendisþjóðgarði þrátt fyrir málamiðlun Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst enn gegn frumvarpi umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð. Nýtt frumvarp var lagt fram á Alþingi í gær en í því er reynt að koma til móts við athugasemdir sveitafélaga. Innlent 1. desember 2020 11:54