

Bakþankar

Vandvirk vandlæting
Það er átakanlegt að lesa athugasemdakerfi vefmiðla. Stundum svolítið skemmtilegt en aðallega átakanlegt. Sóðaleg uppröðun orða vefst ekki fyrir mannskapnum.

Heiðarleg uppskera
Eitt mikilvægasta veganestið sem ég var sendur með út í lífið voru þau einföldu sannindi að besta leiðin til að forðast vandræði væri að segja aldrei ósatt.

Barnaníð
Hvert barn sem fæðist er gætt þeim stórkostlega hæfileika að geta myndað tengsl. Jafnvel strax í móðurkviði venst það röddum og hljóðum sem það byrjar að tengja sig við. Í dag bregða margir foreldrar nýbura á það ráð ef barnið er órólegt, að fara á netið og finna upptökur af innyflahljóðum úr manneskju.

Átakaferlið
Hátíðirnar með sínum samviskulausu huggulegheitum eru liðnar. Skyldunni til að njóta æðislega mikið og troða í sig lokið. Og maður er rétt búinn að bölva síðasta flugeldinum á þrettándanum þegar skellurinn kemur.

Þegar hrikalegt ástand er alls ekki svo slæmt
Við höfum aldrei haft það jafn gott,“ segir verðandi forsætisráðherra ítrekað í fjölmiðlum. Staða ríkissjóðs sömuleiðis sögð glimrandi góð.

Laxness í nútímaútgáfu
Halldór Laxness var alla tíð vandvirkur málvöndunarmaður sem hafði íslenskuna í hávegum.

Völvur og tölvur
Stærsta verkefni ársins 2027 verður að finna verkefni fyrir vinnufært og -fúst fólk. Þetta segir sérfræðingur tölvufyrirtækisins Microsoft í hagfræði og ein af 17 vísindakonum þess sem í lok síðasta árs spáðu fyrir um árin 2017 og 2027.

Sá eini rétti að mati mömmu
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði níu mörk eftir áramót og fram að vori og meira og minna hélt heilu liði nánast einn síns liðs uppi í ensku úrvalsdeildinni, erfiðustu deild heims.

Ekki segja neinum
Í leikskóla var mér kennt að segja "pjalla“ en ekki "píka“ vegna þess að "píka“, hlutlaust heiti yfir kynfæri mín, var dónalegt orð.

Við áramót
Hvað situr eftir frá því herrans ári 2016? Minnisstæðasti atburður ársins var sjónvarpsviðtalið við Sigmund Davíð þar sem formaðurinn framdi harakiri í beinni. Þátturinn sjálfur var frábærlega unninn af Jóhannesi Kristjánssyni og sýndi okkur ofan í peningakistur huldufólks sem lýtur öðrum lögum en við hin.

Ekki slökkva hennar loga
Fyrir fáeinum mánuðum sat ég með hópi kvenna þegar talið barst að kunningjakonu. Sú hafði hlotið skjótan framgang á vinnumarkaði erlendis. Mér þótti sérstök ástæða að lofa árangur hennar. Viðbrögð viðstaddra vöktu undrun mína.

Dauðinn árið 2016
Það er eins og óvenju mörg dauðsföll hafi riðið yfir heimsbyggðina á þessu ári sem er að líða. Dauðinn setur fólk sem við þekktum í nýtt samhengi. Meira að segja söngvarinn í Wham! fær á sig nýtt yfirbragð.

Stóra fólkið
Er það ekki með þig eins og mig þegar jólin koma að vissar persónur líkt og fljóta upp í meðvitundina? Rétt eins og allt fólk velur sér minningar til að lyfta fram og halda í þannig veljum við okkur líka persónur sem við gefum heiðurssess í sál okkar

Bölvuð mandlan
Fyrir utan eina litla hefð þá eru jólin frábær. Við vitum öll um hvaða hefð er að ræða. Hefð sem hyglar sumum en leggur aðra nánast í einelti. Brýtur þá niður. Skilur einstaklinga eftir með sárt ennið ár eftir ár.

Geðveik jólagjöf
Landlæknir skrifaði nýlega um að Norðurlandamet Íslendinga í lyfjanotkun ætti rætur í kerfisvanda og að það þyrfti að huga að fleiri geðheilbrigðisúrræðum en ávísun lyfja. Þetta eru engar fréttir fyrir almenning sem hefur kallað eftir auknu aðgengi að sálfræðiþjónustu.

Gleðileg tuðarajól
Sælla er að gefa en þiggja var einhvern tíma sagt. Undir þeim formerkjum hefði maður haldið að gaman væri að fara og kaupa eitthvað fallegt sem þú gefur svo öðrum og bíður spenntur eftir brosinu á andliti viðkomandi. Það virðist þó ekki vera alveg satt ef marka má stemninguna á jólagjafarúnti Íslendinga.

Tíminn og jólin
Þessi misserin koma þau svolítið aftan að manni, jólin. Maður man eftir því að hafa farið að sofa einhvern tímann í ágúst og svo hrekkur maður til meðvitundar í miðju jólaboði með laufabrauð í munnvikinu og bölvar miskunnarlausum framgangi tímans.

Leiðbeiningar með hamingjuhjóli
Eflaust er það rétt hjá Megasi að ókeypis er allt það sem er best en síðan þarf að greiða dýru verði það sem er verst. En það sem þessi rándýri hryllingur hefur fram yfir okkar ókeypis djásn er að með honum koma ítarlegar leiðbeiningar.

Ógeðslega mikilvægt
Desember er undarlegur mánuður. Mér finnst ég annaðhvort vera kófsveitt í Kringlunni eða jólabjórablindfull með hneppt frá á jólaskemmtun.

Blessuð sauðkindin
Sauðkindin er hluti af íslenskri menningu og þjóðarsál. Íslendingar hafa lengi reynt að fá útlendinga til að skynja mikilfengleika skepnunnar.

Jól eftir þessi jól?
Hughrifin færa okkur árstímann. Dísætur bökunarilmur faðmar skilningarvitin. Veðurbarinn gluggi ljómar við ylhýran loga. Litríkt ljósaskrúð miskunnar sig yfir sótsvart skammdegið. Ljúfar minningar – kannski ljúfsárar – verma guðhræddar sálir.

Ljós heimsins
Ég verð að játa að ég er, og hef alltaf verið, mikið jólabarn. Mér finnst fátt gleðilegra en að fá frí frá daglegri vinnu og eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Borða góðan mat með vinum og ættingjum.

Hvísl andans
Mér þykir óendanlega vænt um jólaguðspjallið því það á svo marga snertifleti við veruleikann. Þar tekur ungt par fagnandi á móti nýfæddu barni þótt þau séu á hrakhólum vegna skilningsleysis yfirvalda og samferðafólks.

Jólaprófatöfrar
Nú á ég menntaskólastúlku sem les fyrir próf og dæsir. Vafrar um, opnar og lokar eldhússkápum og dæsir hærra. Horfir á okkur hin jólastússast brostnum augum og fer aftur inn í herbergi að læra.

Ó, mín meðvirka þjóð
Á dögunum fór fram ráðning í stöðu þingmanna Íslendinga. 63 manneskjur skyldu valdar úr hópi fjölda umsækjenda.

Hatursummæli
Íslendingar hafa frá landnámi verið móðgunargjörn þjóð. Gamlar lögbækur geyma alls kyns ákvæði um móðgandi ummæli og viðurlög við þeim. Hjalti Skeggjason var dæmdur fyrir níð um gömlu goðin í umróti kristnitökunnar.

Norsk tröll
Tveimur dögum áður en ákærur voru gefnar út í nokkrum málum vegna hatursáróðurs á Íslandi mælti norski forsætisráðherrann fyrir nýrri aðgerðaáætlun þarlendra stjórnvalda gegn hatri og hatursáróðri í samfélaginu.

Netsverðin brýnd
Jólalagið mitt er Here we go með Stakka BO. Fyrsta setning lagsins: "Here we go again“, á svo vel við þegar þessi mánuður gengur í garð. Af hverju? Jú, þá hefst á ný umræðan um íþróttamann ársins.

Slegið á frest
Desember er genginn í garð, mánuðurinn sem hnýtir rauða og gullbryddaða velúrslaufu aftan á árið. Allur lax er graflax og öll borð eru hlaðborð. Meðlimir Baggalúts snúa aftur á vinnumarkaðinn eftir ellefu mánaða hlé.