Breiðablik

Breiðablik

Fréttir af Ungmennafélaginu Breiðabliki í Kópavogi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Með­vitaðir um pressuna

„Það er komin mikil tilhlökkun og spenna,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sem mætir Aftureldingu í bikarúrslitum Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli í kvöld en leikur hefst klukkan 19:00.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“

„Það er klárlega gleði og mikil stemning fyrir leiknum, bara tilhlökkun að fara að keppa hérna á Laugardalsvelli. Við höfum frábærar minningar frá því að við unnum Keflavík og skrifuðum nýjan kafla í fótboltanum í Mosfellsbæ fyrir tveimur árum. Frábær minning með stuðningsmönnum okkar hérna og við erum að skrifa nýjan kafla í fótboltanum í Mosó,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Breiðabliki í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Ólafur skilur Magga en er ekki sam­mála

Breiða­blik og Aftur­elding mætast í úr­slita­leik Mjólkur­bikars karla í fót­bolta á Laugar­dals­velli í kvöld. Þjálfari Breiða­bliks skilur tal kollega síns hjá Aftur­eldingu sem segir alla pressu á Blikum í leik kvöldsins en er ekki sammála honum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Vona að það verði enginn munur á vellinum“

Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Ó­sann­gjörn bar­átta um Gullskóinn

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu kláraðist í gær og er hörð barátta um Gullskóinn. Baráttan er þó ekki sanngjörn þar sem leikmenn í neðri hluta deildarinnar spila færri leiki en liðin í efri hlutanum og fá þá sumir leikmenn fleiri leiki til að skora mörk.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Draumurinn að rætast

Knattspyrnumaðurinn Ágúst Orri Þorsteinsson gekk til liðs við knattspyrnuliðið Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni á dögunum. Hann gerði þá samning til 2029, en er aðeins 21 árs gamall og lék með Breiðabliki á þessu tímabili. Á tímabilinu skoraði hann sex mörk og lagði upp fjögur til viðbótar í Bestu-deildinni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ó­öruggir og við þurfum að laga það“

Breiðablik tapaði 0-2 gegn Stjörnunni í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfara Breiðabliks, taldi skortur á trú og sjálfsöryggi eiga sinn þátt í frammistöðu liðsins.

Sport