Hestar
Fréttir af hestamennsku og þættir af Stöð 2 Sport.
Íslenski hesturinn með Gretu Thunberg í Vogue
Greta Thunberg situr fyrir á forsíðu fyrsta tölublaðs Vogue Scandinavia. Með henni á forsíðunni er Íslenski hesturinn Strengur. Í blaðinu má finna nokkrar fallegar myndir af þeim saman.
Rekin af Ólympíuleikunum fyrir að slá hest
Þýskur fimmtarþrautarþjálfari hefur verið rekinn af Ólympíuleikunum í Tókýó fyrir að slá hest. Kim Raisner, þjálfarinn sem um ræðir, var að reyna að aðstoða íþróttakonuna Anniku Schleu við að ná stjórn á hestinum Soint Boy í miðri keppni í gær.
Fimm hross týnd á fjöllum í rúma viku
Fimm hross sem fældust og hlupu á fjöll hafa verið týnd í rúma viku. Hrossin týndust skammt frá Gatfelli á Uxahryggjaleið, suðvestur af Skjaldbreið, á þriðjudagsmorgun í síðustu viku.
Hæsti hestur í heimi er allur
Hesturinn Big Jake lést á dögunum tuttugu ára gamall. Hann var árið 2010 útnefndur hæsti hestur í heimi af heimsmetabók Guinness.
Segir dóminn geta ýtt við hestamannafélögum og komið í veg fyrir slys
Guðrún Rut Heiðarsdóttir knapi hafði betur í skaðabótamáli sínu gegn Vátryggingafélagi Íslands fyrr í mánuðinum eftir hestaslys sem hún lenti í fyrir rúmum fimm árum. Hún segir dóminn fordæmisgefandi og staðfesta það að hestamannafélög verði að passa betur upp á aðstæður og merkingar við skipulagðar æfingar.
Álfadís hefur kastað tuttugu folöldum
Hryssan Álfadís er engin venjuleg hryssa því hún var að kasta sínu tuttugasta folaldi. Mörg af folöldum hennar hafa náð frábærum árangri á sínum ferli, meðal annars stóðhesturinn Álfaklettur, sem er hæst dæmdi kynbóta hestur í heimi.
Fylfullar hryssur geta frestað köstun
Svo undarlega sem það kann að hljóma þá hafa fylfullar hryssur þann hæfileika að geta frestað köstun vegna kuldatíðar eins og vorið í vor hefur verið. Það kom þó ekki í veg fyrir að hryssan Gleði, sem Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra á kastaði hestfolaldi í vikunni.
Vöntun á hrossum til slátrunar
Sláturfélag Suðurlands leitar nú logandi ljósi af hrossum til slátrunar til að uppfylla samning um sölu á fersku hrossakjöt til Sviss.
Nýjum sáttmála ætlað að fækka árekstrum
Sérstakur sáttmáli hestafólks og fulltrúa annarra vegfarendahópa var undirritaður í félagsheimili Fáks í Víðidal í morgun. Er það gert í ljósi tíðra óhappa og slysa að undanförnu og ákváðu fulltrúar mismunandi hópar vegfarenda að taka höndum saman um sáttmála sem legið geti til grundavallar fræðslu fyrir alla hlutaðeigandi svo öryggi þeirra og annarra sé sem best tryggt.
Óttast stórslys vegna mikils ágangs á reiðstígum
Hestamenn hafa áhyggjur af auknum ágangi á reiðvegum í höfuðborginni, sem geti leitt til stórslysa. Dæmi eru um að hjólreiða- og motorcrossfólk nýti sér stígana sem hefur leitt til þess að knapar veigri sér við að fara í útreiðartúra.
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins aflýst
Alþjóðasamtök íslenska hestsins, FEIF, gáfu í morgun út tilkynningu þess efnis að heimsmeistaramóti íslenska hestsins árið 2021 hafi verið aflýst.
Tveir íslenskir hestar felldir vegna skæðrar veiru
Skæð herpesveira sem herjað hefur á hesta í Evrópu hefur greinst í íslenskum hestum á að minnsta kosti fjórum búgörðum í Þýskalandi. Þurft hefur að fella tvo íslenska hesta vegna sjúkdómsins sem veiran veldur, að því er fram kemur í tilkynningu Landssamtaka íslenska hestsins í Þýskalandi.
Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins
Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni.
Vísan sem þjóðskáldið sendi Þykkvbæingum
Vísa sem Matthías Jochumsson orti um Þykkvbæinga lýsti þeim sem hrossætum sem svæfu á hundaþúfum. Sagan segir að þjóðskáldið hafi haft óbeit á alræmdu hrossakjötsáti íbúanna í Þykkvabæ en Matthías var prestur í Odda á Rangárvöllum á árunum 1880 til 1886.
Þykkvbæingar alræmdir fyrir að éta annarra manna hross
Þjóðskáldið Matthías Jochumsson, þá prestur í Odda á Rangárvöllum, hafði lítið álit á Þykkvbæingum og kallaði þá hrossætur sem svæfu á hundaþúfum.
Fer á milli hesthúsa og skiptir faxi á hestum
Sautján ára stelpa í Mosfellsbænum hefur meira en nóg að gera að fara á milli hesthúsa og skipta faxi á hestum. Hún segir að hestunum líki mjög vel við slíkt dekur en það tekur hana um fjörutíu og fimm mínútur að skipta faxinu með tilheyrandi föndri.
Fékk árs bann fyrir að fara bak á dauðum hesti
Írski knapinn Rob James hefur verið dæmdur í tólf mánaða bann eftir að myndband af honum sitja á dauðum hesti fór í dreifingu.
Tíu hross drepist úr hestaherpesveiru eftir hópsmit á Spáni
Matvælastofnun áminnir þá sem hafa tengsl við hestamennsku erlendis eða taka á móti einstaklingum að utan í tengslum við hestamennsku innanlands að fara varlega, sinna sóttvörnum og fara að reglum um innflutning búnaðar.
Allt gert til að verjast alvarlegum hrossasjúkdómi á Íslandi
Mjög alvarlegur hrossasjúkdómur hefur komið fram í Evrópu, sem valdið hefur dauða fjölda hrossa og miklum veikindum. Allt verður gert til að verjast því að sjúkdómurinn, sem er herpesveira, berist til Íslands.
Fluttu í Skaftárhrepp til að gera veiðidelluna að vinnu
Þau Jón Hrafn Karlsson og Linda Ösp Gunnarsdóttir ásamt börnum fluttu af Suðurnesjum fyrir sex árum austur í Meðalland að bænum Syðri-Steinsmýri. Hvorugt þeirra átti rætur í Skaftárhrepp.
Íslenskir hestar streyma úr landi
Árið 2020 voru 2.320 hross flutt út frá Íslandi en eftirspurn eftir íslenska hestinum erlendis hefur vaxið hratt. Þetta kemur fram á vef Íslandsstofu. Árið 2019 voru flutt út 1.509 hross frá Íslandi og nemur því aukningin milli ára 53 prósentum.
Varalitur er staðalbúnaður í hesthúsinu og á hestbaki
Varalitur og helst mikið af honum er staðalbúnaður hjá Katrínu Stefánsdóttur, 75 ára hestakonu í Þorlákshöfn en hún segist aldrei fara út í hesthús eða á hestbak nema með varalit.
Felldu tvo íslenska hesta eftir slys á flugvelli í Belgíu
Fella þurfti tvo íslenska hesta eftir að gámur sem þeir voru fluttir í féll af palli á flugvelli í Belgíu rétt fyrir jólin. Icelandair Cargo hefur stöðvað frekari flutning á hrossum til stærstu dreifimiðstöðvar fyrirtækisins í Evrópu um óákveðinn tíma.
Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn
Sex hestar í Þorlákshöfn lifa sældarlífi þessa dagana því þeir fá að éta jólatré út í gerðinu sínu, sem þeir gera með bestu lyst.
Norska smalakonan segist vera kölluð trans-Íslendingur
„Mig langaði bara að búa hérna, einhvernveginn. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af landinu. Fólk er oft að gera grín að mér, segir að ég sé trans-Íslendingur. Ég er bara fædd í vitlausu landi,“ segir hin norska Silje Dahlen Alviniussen og hlær, nýkomin úr sex daga fjárleitum að Fjallabaki þriðja árið í röð.
Fyrsti kvenkyns járningamaðurinn á Íslandi
Fyrsti kvenkyns járningamaðurinn á Íslandi hefur meira en nóg að gera en hún járnar að jafnaði átta hesta á dag. Konan, sem er frá Svíþjóð segist vera heilluð af íslenska hestinum.
Telur bændur hafa rekið fé á hálendið allt frá landnámi
„Sagan segir að menn hafi byrjað að reka bara um landnám,“ svarar fjallkóngurinn á Landmannaafrétti, Kristinn Guðnason, þegar við veltum því upp hversu rótgróinn þáttur fjárleitir á hálendinu er í þjóðmenningu Íslendinga.
Jakob Svavar knapi ársins 2020
Viðurkenningar fyrir knapa ársins og keppnishestabú ársins voru veittar sigurvegurum í hverjum flokki í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal um helgina.
RAX Augnablik: Folaldið sem dansaði í Sandey
„Ég fer oft til Færeyja og árið 1989 fór ég í enn eina ferðina og fór út í Sandey. Ég frétti af manni þar, Jónasi Madsen, sem að spilaði á munnhörpu fyrir kindurnar sínar og hestana. Mig langaði að sjá hvernig þetta færi fram,“
Fór hálf sjokkeruð til baka í geðshræringu
„Tíu eða ellefu ára varð ég kúskur sem þýddi að ég fékk náðarsamlegast að þræla mér út launalaust allan daginn að moka skít, teyma undir, leggja á, kenna smákrökkum og lóðsa ferðamenn um Rauðhóla. Ég dýrkaði þetta auðvitað,“ segir listakonan Rán Flygering.