Nýta hátækni úr Svartsengi í norskri metanólverksmiðju Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. Viðskipti innlent 25. október 2020 23:06
Gætu tekið af rafmagn hjá milljón manna til að draga úr eldhættu Orkufyrirtæki í Kaliforníu gæti tekið rafmagn af hjá allt að milljón viðskiptavinum sínum um helgina til að draga úr hættu á frekari gróðureldum. Spáð er sérstaklega eldfimum aðstæðum, þurrki og hvassviðri víða í Kaliforníu fram í næstu viku. Erlent 24. október 2020 10:08
Velti upp þörfinni á sameinuðu efnahags- og loftslagsráðuneyti „Neyðin til að samtvinna aðgerðir í efnahagslífinu og loftslagsmálum orðin svo brýn að maður veltir því fyrir sér hvort umhverfismál og efnahagsmál eigi ekki að heyra undir sama ráðherra,“ sagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, í sérstökum umræðum um loftslagsmál sem fara nú fram á Alþingi. Innlent 20. október 2020 15:55
Raunhæft að Ísland verði óháð bensíni og dísil árið 2050 Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, formaður starfshóps stjórnvalda um Orkustefnu til næstu 30 ára telur mögulegt að Ísland verði orðið óháð jarðefnaeldsneyti ári 2050. Bílar 17. október 2020 07:01
Kóralrifið mikla hefur minnkað um helming frá 1995 Kóralrifið mikla hefur tapað um helmingi alls kórals síns frá árinu 1995. Skaðann má að mestu rekja til hækkandi hitastigs sjávar og veðurfarsbreytinga af mannavöldum. Erlent 14. október 2020 12:00
Ábyrga leiðin Áskoranir okkar daga kalla á pólitískan kjark og skýra framtíðarsýn. Í heimsfaraldri og atvinnuleysi getur almenningur á Íslandi reitt sig á leiðarljós jafnaðarmanna – og hið sama gildir í glímunni við loftslagsbreytingar. Skoðun 13. október 2020 07:00
Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. Innlent 12. október 2020 22:12
Íbúar Louisiana búa sig undir enn eitt óveðrið Íbúar Louisiana í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir komu annars öfluga fellibyljarins á einungis sex vikum. Búist er við því að fellibylurinn Delta nái þar landi í nótt og er útlit fyrir að hann geti valdið miklum skaða. Erlent 9. október 2020 14:08
Verkfall í Noregi gæti stöðvað fjórðung olíuframleiðslu Framleiðsla á olíu og gasi gæti dregist saman um allt að fjórðung vegna verkfalls starfsmanna í olíuiðnaði í Noregi. Heimsmarkaðsverð á olíu gæti hækkað fyrir vikið. Norska ríkisstjórnin ætlar ekki að grípa inn í verkfallið eins og sakir standa. Viðskipti erlent 8. október 2020 14:34
Frekari hlýnun líkleg til að valda stórfelldum breytingum á fiskveiðum við Ísland Hlýni sjórinn í kringum Ísland um tvær til þrjár gráður ylli það líklega stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum á Íslandi. Innlent 7. október 2020 20:30
Delta hefur náð landi í Mexíkó Fellibylurinn Delta hefur náð landi í Mexíkó og þá sem annars stigs fellibylur með um 50 m/meðalvindhraða. Erlent 7. október 2020 12:43
Evrópuþingið samþykkti metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Markmið Evrópusambandsins verður að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 60% árið 2030 borið saman við árið 1990 og losunarmarkmið verða lagalega bindnandi samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Evrópuþinginu í gær. Erlent 7. október 2020 11:42
Delta mun valda usla í Mexíkó og stefna svo á Bandaríkin Fellibylurinn Delta stefnir nú hraðbyri að ströndum Mexíkó og mun ná landi í Bandaríkjunum seinna í vikunni. Erlent 6. október 2020 13:33
Evrópuþingið greiðir atkvæði um metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Óljóst er um afdrif frumvarps um að gera loftslagsmarkmið Evrópusambandsins lagalega bindandi í atkvæðagreiðslu sem verður haldin í Evrópuþinginu í kvöld. Erlent 6. október 2020 11:18
Spennandi tímamót og 8000 strætóar Í hringrásarhagkerfi (e. circular economy) er leitast við að hanna burt úrgang, mengun og útblástur gróðurhúsalofttegunda, halda vörum og efnum lengur í notkun og endurnýja náttúruleg kerfi. Skoðun 6. október 2020 07:01
Hnattræn hlýnun gerir gróðureldana „ótvírætt“ verri Loftslagsbreytingar af völdum manna hafa ótvíræð áhrif á umfang og áhrif gróðurelda sem hafa valdið hörmungum í Kaliforníu í Bandaríkjunum undanfarin ár. Hlýnun hefur skapað kjöraðstæður fyrir eldana. Erlent 25. september 2020 15:47
Ætla að banna sölu nýrra bensínbíla í Kaliforníu Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, tilkynnti í dag áætlun um að banna sölu nýrra bensínbíla í ríkinu. Byrjað verður að draga úr sölu slíkra bíla og á sala þeirra að vera alfarið bönnuð árið 2035. Erlent 23. september 2020 23:50
Staðfestu tæplega þrjátíu ára gamalt kuldamet á Grænlandi Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar. Erlent 23. september 2020 12:03
Xi tilkynnti óvænt um að Kína stefni að kolefnishlutleysi 2060 Kínverjar ætla að stefna að því að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2060 til að draga úr hættunni á verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti þetta óvænt í ávarpi á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Erlent 23. september 2020 10:57
Önnur minnsta útbreiðsla hafíssins á norðurskautinu í sögunni Útbreiðsla hafíssins á norðurskautinu þegar hún var minnst í lok sumars var sú önnur minnsta frá því að mælingar hófust. Þau fjórtán ár sem útbreiðslan hefur mælst minnst hafa nú öll verið undanfarin fjórtán ár. Erlent 22. september 2020 12:09
Afmæliskönnun Sameinuðu þjóðanna: Mikill stuðningur við alþjóðlega samvinnu Heimsbyggðin hefur áhyggjur af aðgangi að heilsugæslu, hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun, ef marka má niðurstöður könnunar Sameinuðu þjóðanna á afstöðu til heimsmála. Heimsmarkmiðin 21. september 2020 10:24
Fingraför manna alls staðar á gróðureldunum vestanhafs Loftslagsbreytingar af völdum manna sköpuðu aðstæðurnar sem hafa gert gróðureldana miklu í vestanverðum Bandaríkjunum enn verri en ella. Fleiri mannanna verk hafa þó stuðlað að alvarleika eldanna, þar á meðal umhirða skóga og skipulag byggðar. Erlent 19. september 2020 09:00
Stefnir í að losun Bandaríkjanna aukist vegna stefnu Trump Afnám reglna sem var ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum í tíð Donalds Trump Bandaríkjaforseta gæti leitt til þess að losun gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum verði hátt í tveimur milljörðum tonna meiri en ella fram til 2035. Erlent 18. september 2020 11:43
Alþjóðadagur til verndar ósonlaginu Í dag er aþjóðadagur til verndar ósonlaginu til þess að vekja athygli á þeirri ógn sem felst í þynningu ósonlagsins. Ósonlagið hindrar að megnið af skaðlegum útfjólubláum geislum sólar (UV-B) nái til jarðar. Heimsmarkmiðin 16. september 2020 11:25
Sally byrjar að valda usla með flóðum Fellibylurinn Sally hefur safnað krafti og skilgreinist nú sem annars stigs fellibylur. Hann ógnar nú Flórída og Alabama með miklum sjávarflóðum, rigningu og roki. Erlent 16. september 2020 09:07
Dularfullir draugabátar og ólöglegar veiðar Hundruðum norðurkóreskra fiskibáta hefur skolað á strendur Japans undanfarin ár. Beinagrindur dáinna sjómanna eru eini farmurinn. Erlent 15. september 2020 09:00
„Ég held að vísindin viti það ekki, í rauninni“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, endurvakti í gær afstöðu sína um að slæm umhirða skóga leiði til gróðurelda og að þörf sé á að raka skóglendi til að sporna gegn þeim. Erlent 15. september 2020 07:54
Facebook í hart gegn áróðri um loftslagsbreytingar Forsvarsmenn Facebook hafa stofnað sérstaka loftslagsbreytinga-miðstöð sem ætlað er að gera trúverðugum heimildum um loftslagsbreytingar hærra undir höfði. Erlent 15. september 2020 06:27
Gróðureldar orðnir að pólitísku bitbeini Íbúar Kaliforníu, Oregon og Washington hafa orðið fyrir barðinu á sögulegu eldhafi en eldarnir hafa brunnið hraðar og meira en nokkru sinni áður. Eldarnir hafa þó orðið að pólitísku bitbeini milli Demókrata og Repúblikana. Erlent 14. september 2020 08:36
110 ferkílómetra ísjaki brotnaði frá íshellu norðurskautsins Risastór ísjaki hefur brotnað frá stærstu íshellu norðurskautsins, sem kölluð er 79N eða Nioghalfjerdsfjorden, á norðausturströnd Grænlands. Erlent 14. september 2020 08:32