Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttamynd

Upp­gjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leiks­lok

Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil.

Körfubolti
Fréttamynd

Orri: Það bara kviknaði á mér

Orri Gunnarsson fór mikinn í sigri Stjörnunnar á Njarðvíkingum og var næst stigahæstur sinna manna með 26 stig í 113-103 sigri. Orri var ánægður með að Stjarnan hafi unnið og þannig lagað svarað fyrir tapið um helgina.

Körfubolti
Fréttamynd

„Við erum mjög hungraðir í þennan titil“

Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins í kvöld þegar þeir lögðu Keflavík af velli í framlengdum leik 107-110. Hilmar Smári Henningsson átti stóra körfu undir lok leiks sem fór langt með þetta fyrir Stjörnuna.

Sport
Fréttamynd

„Þeir setja pressu á alla og gera allt ó­þægi­legt“

Sérfræðingarnir í Bónus Körfuboltakvöldi eru skiljanlega afar hrifnir af Stjörnuliðinu sem keyrir yfir flesta mótherja sína þessa dagana í Bónusdeild karla í körfubolta. 38 stiga stórsigur á Stólunum í síðustu umferð sýndi öðrum liðum hversu svakalega öflugir Garðbæingar eru orðnir.

Körfubolti